Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 14
14 16. október 2003 FIMMTUDAGUR
■ Innlent
AFLEIÐINGAR VOPNAVIÐSKIPTA
Mannréttindasamtökin Amnesty
International létu koma fyrir hundruðum
legsteina á Trafalgar-torgi í London. Sam-
tökin vildu með þessu vekja athygli á við-
skiptum með vopn og afleiðingum notk-
unar þeirra.
Vinnumarkaðsrannsókn:
4.400 manns án atvinnu
ATVINNA Í þriðja ársfjórðungi voru
að meðaltali 4.400 manns án vinnu
og í atvinnuleit, að því er fram
kemur í vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofunnar. Á sama tíma voru
167.300 manns á vinnumarkaði og
mældist atvinnuleysi því 2,6%.
Atvinnuleysi var nokkuð meira
hjá körlum en konum, 2,9% gegn
2,3%. 2,8% þeirra sem voru á
vinnumarkaði á höfuðborgar-
svæðinu voru án vinnu á þeim
tíma sem rannsóknin tók til en
2,2% á landsbyggðinni.
Atvinnuleysi er mest meðal
þeirra yngstu. 4,4% einstaklinga á
aldrinum 16 til 24 ára voru í at-
vinnuleit, en það er þó talsvert
minna en á öðrum ársfjórðungi
þegar 12,2% ungmenna voru án
atvinnu. Atvinnuleysi var minnst
meðal 55 til 74 ára, tvö prósent. ■
NAUÐASAMNINGAR „Vegna þessarar
skuldar þurftum við að berjast til
að forðast gjaldþrot. Það tókst og
við sluppum við að fara í þann
kennitöluleik sem sumir stunda,“
segir Kári Pálsson, stjórnarfor-
maður vélsmiðjunnar Hamars,
um samskiptin við kjúklingabúið
Móa í Mosfellsbæ
sem skuldar Hamri
20 milljónir króna
vegna uppsetning-
ar á vinnslulínum.
Hjá Hamri star-
fa 15 menn og segir Kári stjórnar-
formaður að minnstu hafi munað
að fyrirtæki hans yrði gjaldþrota
vegna greiðslufalls Móa. Eigend-
ur Hamars höfnuðu því að fallast
á 70 prósenta niðurfellingu af
skuld Móa. Fram hefur komið hjá
Kristni Gylfa Jónssyni, stjórnar-
formanni Móa, að
Kári og félagar
hafi viljað fallast
á nauðasamninga
gegn því að fá
meira en aðrir
kröfuhafar. Þetta
kallaði Kristinn
Gylfi mútuþægni
a ð s t a n d e n d a
Hamars sem hafi
verið tilbúnir til
að samþykkja
nauðasamninga
ef hluti kröfunnar
yrði greiddur
undir borðið.
„Allt tal um
mútur er helbert kjaftæði. Það
eina sem við höfum gert er að
reyna að fá hluta af kröfum okkar
greiddar. Við ætlum okkur að elta
þá uppi en mannorð okkar er ekki
til sölu fyrir neinn pening,“ segir
Kári.
Framkvæmdastjóri og lögmað-
ur Hamars undirbúa kæru á hend-
ur forsvarsmönnum Móa. Heim-
ildir herma að kæran sé grund-
völluð á því að Móar hafi verið
gjaldþrota áður en lagt var út í
framkvæmdir við uppbyggingu á
nýrri stöð Móa í Mosfellsbæ.
„Hafi maður fulla vitneskju
um að geta ekki á nokkurn máta
greitt fyrir vörur eða þjónustu en
fjárfestir samt í henni er um fjár-
svik að ræða og ekkert annað,“
segir Kári.
Hann segir að Móamenn hafi
allt fram að því að þeir óskuðu
eftir greiðslustöðvun fengið lof-
orð um að skuldin yrði greidd en
ekkert hafi staðist. Hann segir að-
gerðir stjórnar Móa hafa verið
ótrúlegar og í stað þess að grípa
til aðhaldsaðgerða í erfiðri stöðu
hafi þeir steypt
Móum í gegndar-
lausar fjárfesting-
ar án þess að eiga
nokkurn möguleika
á því að standa í
skilum.
„Einnig lánaði
fyrirtækið stjórn-
armönnum og eig-
endum hátt í 50
milljónir króna á
sama tíma og það
greiddi ekki skuld-
ir. Mitt mat er að
stjórnarmenn Móa
hafi staðið frammi
fyrir því að setja
félagið í þrot en valið þá leið vel
undirbúnir að fjárfesta gríðarlega
og fara síðan í nauðasamninga og
ná að byggja upp eigið fé innan
fyrirtækisins með niðurfellingu
skulda,“ segir Kári.
rt@frettabladid.is
Framsóknarmenn:
Fagna átaki
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn í
Reykjavíkurkjördæmi norður
fagna boðuðu átaki Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra í mál-
efnum fatlaðra og segja að með
því sé stigið stórt skref í átt að því
að efna kosningaloforð Framsókn-
arflokksins um að eyða biðlistum
vegna búsetu fatlaðra.
Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt á aðalfundi Framsóknarfé-
lags Reykjavíkurkjördæmis norð-
urs. Gestur Kr. Gestsson var end-
urkjörinn formaður félagsins á
fundinum. Aðrir í stjórn eru: Haf-
dís J. Hannesdóttir, Guðmundur
Geir Sigurðsson, Hilmar Hansson,
Kári Bjarnason, Ragnhildur Jón-
asdóttir og Halldór Lárusson. ■
DEILUR Enn halda deilur sam-
gönguráðherra og forsvarsmanna
vélstjóra áfram. Sturla Böðvars-
son svarar grein Friðriks Á. Her-
mannssonar, lögfræðings Vél-
stjórafélags Íslands, sem birtist í
Fréttablaðinu 9. október, fullum
hálsi á heimasíðu sinni og beinir
því til forsvarsmanna félagsins að
taka upp vandaðri og málefna-
legri vinnubrögð.
Sturla segir að erfitt sé að rök-
ræða við menn sem snúi málum á
haus. Hann segir málflutning
Friðriks með ólíkindum. Í grein-
inni sakaði Friðrik Sturlu um
valdníðslu í garð vélstjóra. Sturla
kallar greinina dæmalausa og
ekki til þess fallna að koma á sátt-
um í deilu Sturlu og Helga Laxdal,
formanns Vélstjórafélagsins.
Sturla segir að lögmanninum
verði á í messunni þegar hann
dragi þá ályktun að í grein hafi
ráðherra hótað því að mál sem
tengist vélstjórum fengju annars
konar afgreiðslu hjá samgöngu-
ráðuneytinu en mál annarra
stétta. „Er vandséð hvað mannin-
um gengur til í rökþrota leit sinni
að stóryrðum til að þóknast vinnu-
veitanda sínum,“ segir Sturla.
Ráðherrann segist ekki taka
því þegjandi að vera vændur um
að vinna gegn hagsmunum vél-
stjóra og vísar ummælum um
slíkt út í hafsauga.
Í lok greinar sinnar viðurkenn-
ir Sturla að hann sé fyrir löngu
orðinn fullsaddur af framgöngu
Helga Laxdal en lengi megi mann-
inn reyna. ■
■
„Mannorð okk-
ar er ekki til
sölu fyrir neinn
pening.“
SAMGÖNGUR Mörgum sjálfsagt til
ómældrar ánægju hefur drykkj-
arfontur verið settur upp við Suð-
urströnd. Það er áberandi hversu
umferð um göngu- og hjólreiða-
stíga á Seltjarnarnesi og víðar
hefur vaxið gríðarlega á undan-
förnum árum. Þeir sem nota stíga-
kerfið reglulega hafa tekið eftir
að áningarstöðum hefur fjölgað
mikið á undanförnum misserum
og samkvæmt heimildum verður
ekki látið staðar numið við þennan
áfanga. ■
JARÐSKJÁLFTI VIÐ GRÍMSEY
Jarðskjálfti sem mældist 3,6 á
Richter mældist rétt fyrir klukk-
an ellefu í gærmorgun. Upptök
skjálftans voru um 14 km norður
af Grímsey. Aðeins tveir eftir-
skjálftar að stærð 1,5 mældust í
kjölfarið. Samkvæmt upplýsing-
um frá Gunnari B. Guðmunds-
syni, jarðeðlissviði Veðurstofu Ís-
lands, er ekki vitað til þess að fólk
hafi orðið vart við skjálftann.
HAFNA VÍNSÖLU Í HLÍÐARFJALLI
Íþrótta- og tómstundaráð Akureyr-
ar telur ekki rétt „á þessari
stundu“ að sækja um vínveitinga-
leyfi fyrir Hlíðarfjall. Forstöðu-
maður Skíðastaða hafði óskað eftir
afstöðu ráðsins til umsóknar á vín-
veitingaleyfi fyrir skíðasvæðið.
DRYKKJARFONTUR
Fonturinn er sömu gerðar og settur var
upp við borholuhús Hitaveitunnar í fyrra.
Seltjarnarnes:
Drykkjarfontur
við Suðurströnd
VIÐ VINNU
84,3% vinnufærra karla og kvenna voru á vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi.
Samgönguráðherra svarar vélstjórum fullum hálsi:
Fullsaddur á
framgöngu Helga
Segir allt mútutal
helbert kjaftæði
Hamar, sem hafnaði nauðasamningum Móa,
undirbýr kæru á forsvarsmenn kjúklingabúsins.
Eltum þá uppi, segir stjórnarformaðurinn.
HAMAR
Forsvarsmenn segjast hafa verið á
barmi gjaldþrots.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M