Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 15
15FIMMTUDAGUR 16. október 2003
BAKÚ, AP Forsetakosningar fóru
fram í Aserbaídsjan í gær. Allar
líkur voru taldar á að Ilham Aliev,
núverandi forsætisráðherra, færi
með sigur af hólmi og tæki við
embættinu af Geidar Aliev, átt-
ræðum föður sínum.
Kjörfundur hófst klukkan átta í
gærmorgun og lauk klukkan 19.
Átta buðu sig fram en Ilham Aliev
er eini frambjóðandi stjórnar-
flokksins, Yeni Azerbaijan. Nærri
4,4 milljónir manna eru á kjörskrá
í landinu og var kjörsókn mjög
góð.
Um 600 manns fylgjast með
kosningunum á vegum Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu. Þrír
Íslendingar eru í þeim hópi: Ólafur
Sigurðsson, fréttamaður Sjón-
varpsins, Haukur Ólafsson, sendi-
fulltrúi á alþjóða-
skrifstofu utanrík-
isráðuneytisins,
og Guðrún Ög-
mundsdóttir, þing-
kona Samfylking-
arinnar.
„Þetta er mjög
fallegt land og
gaman að vera
hérna. Við ferð-
umst saman tvö,
ásamt túlki og bíl-
stjóra. Við erum
búin að vera á níu
kjörstöðum í dag, vorum við opnun
eins þeirra í morgun og endum svo
á einhverjum talningarstað í kvöld
[gærkvöld],“ sagði Guðrún í sam-
tali við blaðið í gær.
Guðrún segir að eitt og annað
megi gagnrýna í sambandi við
framkvæmd kosninganna.
„Margt af þessu má þó flokka
undir sveitamennsku. Annars bíð-
um við með yfirlýsingar þar til
kosningarnar eru afstaðnar og við
höfum skilað okkar skýrslu.“
Alþjóðleg samtök hafa tekið
undir með stjórnarandstöðuflokk-
unum og sakað stjórnvöld í
Aserbaídsjan um víðtæk brot á
kosningalögum. Óttast var að átök
brytust út í gærkvöld.
Isa Gambar, leiðtogi Musavat-
flokksins, fullyrti í gær að stjórn-
völd myndu falsa niðurstöður
kosninganna og sagðist ekki geta
stöðvað flokksmenn sína.
„Ég get ekki beðið fólk að horfa
aðgerðalaust hjá meðan atkvæðum
þess er rænt,“ sagði Gambar.
the@frettabladid.is
Leikskóli á Akureyri:
Fær alþjóða-
verðlaun
BÖRN Leikskólinn Iðavöllur á Ak-
ureyri fékk þriðju verðlaun í al-
þjóðlegri keppni Evrópulands um
framúrskarandi upplýsinga- og
samskiptaverkefni í leikskólum.
Verðlaunin voru veitt fyrir
samnefnda heimasíðu Iðavallar.
Dómnefnd sagði „endurnærandi
að sjá svo vandaðan vef sem sé
sérstaklega ætlaður börnum.“
Höfundar vefjarins, Arnar
Yngvason og Anna Elísa Hreið-
arsdóttir, veittu verðlaununum
viðtöku í Genf ásamt Kristlaugu
Svavarsdóttur leikskólastjóra.
Alls voru 600 verkefni skráð til
þátttöku. ■
FORSETI ÍSLANDS
Ólafur Ragnar hefur lýst 15. október sem
dag kvenna í dreifbýli.
15. október:
Kvennadag-
ur í dreifbýli
KVENRÉTTINDI Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, lýsti
því yfir í gær að fimmtándi októ-
ber verði framvegis dagur
kvenna í dreifbýli.
Í yfirlýsingunni segir forsetinn
að í samfélagsflóru nýrrar aldar
geti dreifbýliskonur orðið afger-
andi og vakið athygli á mörgum
málum, hvatt til nýbreytni og
þarfra verka og virkjað kraftinn
sem jafnan hafi í þeim búið.
„Dreifbýliskonur eru áfram afl
í þjóðlífinu og verða ætíð á nýrri
öld; samtaka sveit sem eftir er
tekið, eins konar samviska þjóðar-
innar og sá hópur sem þingmenn
og ráðherrar hlusta á,“ segir í yf-
irlýsingu forsetans. ■
Árborg:
Styrkir skák-
mót um eina
milljón
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Árborg-
ar hefur samþykkt að styrkja al-
þjóðlegt svokallað Mjólkurskák-
mót sem haldið verður á Hótel
Selfossi með einni milljón króna.
Styrkurinn verður ekki greidd-
ur út fyrr en mótið er hafið, eins
og segir í fundargerð bæjarráðs
Árborgar.
Afgreiðsla bæjarráðs er fram-
hald fundar sem Einar Njálsson
bæjarstjóri átti í sumar með
Hrafni Jökulssyni, forseta skák-
félagsins Hróksins, og hjónunum
Margréti Frímannsdóttur alþing-
ismanni og Jóni Gunnari Ottós-
syni, forstöðumanni Náttúru-
fræðistofnunar. ■
Guðrún Ögmundsdóttir segir ýmsa hnökra á kosingunum í Aserbaídsjan:
Forsetasonurinn í embættið
VERÐANDI FORSETI
Ilham Aliev, forsætisráðherra Aserbaídsjan
og sonur sitjandi forseta.
GUÐRÚN ÖG-
MUNDSDÓTTIR
Guðrún er ein
þriggja íslendinga
sem fylgdust með
kosningunum í
Aserbaídsjan.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM