Fréttablaðið - 16.10.2003, Page 22
tíska o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tiska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Uppáhaldsflíkin:
Diskókjóll
frá New York
Í augnablikinu er uppáhaldsflík-in mín diskókjóll sem ég keypti
í New York í maí,“ segir Svala
Björgvinsdóttir söngkona. „Hann
er keyptur í búð sem selur notuð
föt. Ég fer oft í þessa búð þegar ég
er í New York en þar eru vel með
farin og flott föt. Kjóllinn er frá
diskótímabilinu og mjög sérstak-
ur. Hann er einhvern veginn sjáv-
arblágrænn og þegar ég sá litinn
fannst mér hann æðislegur,
enda er ég mjög litaglöð. Snið-
ið á honum er líka flott, hann
er púffaður yfir axlirnar, mjög
flottur og
öðruvísi.“
Svala segist hafa notað kjólinn
tvisvar, einu sinni í New York og
einu sinni á Íslandi. „Hann er
mjög þægilegur en mjög áberandi
þannig að maður fer ekki oft í
hann.“
Svala segist yfirleitt falla fyrir
fötum sem eru sérstök á einhvern
hátt. „Ég kaupi annað hvort notuð
gömul föt eða föt frá hönnuðum.
Ég fæ líka oft föt gefins. Mér
finnst ekki gaman að kaupa
eitthvað fjöldaframleitt og
versla mikið erlendis.
Hér heima kaupi ég
mikið í búðum eins og
Spútnik og Fríðu frænku eða
á mörkuðum. Ég er líka
hrifin af því sem íslensku hönnuð-
irnir Hrafnhildur og Bára Hólm-
geirsdætur eru að gera og eins er
Harpa Einarsdóttir að gera góða
hluti.“
Svala er nú að taka upp nýja
plötu, en hún segist ekki viss um
að diskurinn verði tilbúinn fyrir
jól. Hún segist þó telja að einhver
lög af disknum komi út á smáskífu
og í spilun fyrir jól. ■
hársverði?
BIO+ fæst á hársnyrtistofum og í apótekum.
Vandamál í • psoriasis
• exem
• flasa
• skán
• hárlos
• kláði
• feitur
hársvörður
lausnin er BIO+
hársnyrtivörur frá Finnlandi
SVALA
BJÖRGVINSDÓTTIR
Keypti kjólinn notaðan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SUMAR Í
BLEIKU
Fyrirsæta í bleiku
silkidressi frá ítal-
ska hönnuðinum
Valentínó. Hann
sýndi hönnun
sína fyrir næsta
sumar á tískuvik-
unni í París á
dögunum.
Hársýning:
Nýja línan
frá Sebastian
Halldór Jónsson ehf. stóð fyrirhársýningu í Borgarleikhúsinu
í byrjun október þar sem kynnt var
vetrarlínan frá Sebastian. Sebastian
sendi til landsins sérvalinn hóp hár-
greiðslufólks til að kynna vetrarlín-
una sem kallast Modrephenia og í ár
komu hársnyrtirinn Carlos Ponce
og snyrtifræðingurinn Daniela
Cisteme og héldu kynningu fyrir
viðskiptavini Halldórs Jónssonar.
Helga Rakel Þorgilsdóttir fræðari
segir línuna í ár vera undir áhrifum
frá sjöunda áratugnum. „Línurnar
eru þungar og líta út fyrir að vera
jafnsíðar, en eru með mikilli innri
klippitækni. Við erum með herra-
og dömulínu í styttra hári, millisíða
og síða línu. Í síðu línunni eru þung-
ir toppar fram á ennið einkennandi
og mikil hreyfing í hárinu, en litirn-
ir kallast fram eftir því hvernig hár-
ið fellur.“
Helga Rakel segir litina valda
eftir því hvað klæðir hvern og einn.
„Við erum ekki lengur með þessar
spagettístrípur sem hafa verið
einkennandi til margra ára, heldur
fallega mjúka liti,“ segir hún. ■
NÝ HÁRLÍNA FRÁ SEBASTIAN
Í ár velur fólk sér þá liti í hárið sem klæða það best og klippingarnar eiga að
líta út fyrir að vera þungar.
Verð kr. 249,-
Gæðavara á góðu verði
Aðhaldsbuxur
St.: S - M - L -XL - XXL
Litir: Ljósar, húðlitar og svartar. Verð kr. 3.500
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum v/Faxafen) s. 568 2560
Fást eingöngu í
www.brudarkjolaleiga.is
SÍMI 5813665
VORUM AÐ FÁ MIKIÐ ÚRVAL AF CASIO ÚRUM
Corselett frá kr. 3.990
Undirfatasett frá kr. 2.990
Mjaðma blúndu boxer.
Verð aðeins kr. 1.390
Sjáumst!
S. 588 5575 - Nýr Glæsibær
COS
S: 551 6688
Njóttu
lífsins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
tíska
gæði
betra verð
www.hm.is