Fréttablaðið - 16.10.2003, Side 24
SÍÐUSTU SÆTIN TIL KÚBU Heims-
ferðir selja nú síðustu sætin í
sérflugi sínu til Kúbu 4. nóvem-
ber. Glæsileg 4 og 5 stjörnu hótel
í boði. Verð frá kr. 78.950 fyrir
flugsæti með sköttum og 89.950
fyrir flug, skatta og gistingu á
Arenas Doradas **** 7 nætur.
PARÍS, LONDON & KAUPMANNA-
HÖFN Terra Nova-Sól býður borg-
arævintýri í vinsælustu borgum
Evrópu í haust og vetur, París á
verði frá 43.570 kr. á mann í tví-
býli í 3 nætur, London á verði frá
39.100 kr. á mann í tvíbýli í 2
nætur, Kaupmannahöfn á verði
frá 42.650 kr. á mann í tvíbýli í 2
nætur. Innifalið er flug, gisting
með morgunverði, þjónustugjöld
og flugvallaskattar. Verðið gildir
frá 1. nóvember - 31. mars (fyrir
utan jól og áramót).
TVEIR FYRIR EINN TIL KANARÍ
Úrval-Útsýn býður 33 daga ferð
til Kanarí 28.október á Cay
Beach Princess. Þetta eru falleg
smáhýsi í stórum og gróðursæl-
um garði. Einungis fá hús í boði.
Verðið er 65.835 kr. og 66.835 á
mann miðað við tvo í smáhýsi í
33 nætur, eftir stærð húsanna.
Innifalið er flug, skattar, akstur
til og frá flugvelli, gisting með
morgunverði og íslensk farar-
stjórn.
TILBOÐ TIL KANARÍ Úrval-Útsýn
býður tilboð á 9 og 19 daga ferð-
um til Kanarí 30. nóvember. Verð
fyrir 9 daga ferð og gistingu á
Las Camelias er 39.930 og 55.830
fyrir 19 daga á sama stað. Inni-
falið er flug, flugvallaskattar,
gisting, akstur og íslensk farar-
stjórn.
TVEIR FYRIR EINN TIL
BARCELONA Heimsferðir bjóða
tveir fyrir einn tilboð á síðustu
sætunum til Barcelona 26. októ-
ber. Verð frá kr. 19.950. Hægt er
að velja um úrval hótela, þriggja
og fjögurra stjarna.
Helgarslaufur
fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum.
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 30 75
hopadeild@flugfelag.is
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Íslensk hjón með fyrirtæki á Spáni:
Selja og leigja út
eignir á Costa Blanca
Íslensk kona, Kristín Bergmann,sem er búsett á Benidorm á
Spáni, hefur í fjögur ár rekið þar
fasteignasölu og leigumiðlunina
Espis ásamt spænskum eigin-
manni sínum, Gabriel.
„Við erum búin að vera starf-
andi í fjögur ár,“ segir Kristín.
„Ég er búin að búa hér í fimm ár,
en Gabriel er héðan af svæðinu,
frá Alcoy, sem er borg á stærð við
Reykjavík og stendur hátt uppi í
fjöllunum fyrir ofan Benidorm.
Hann flutti með móður sinni og ís-
lenskum stjúpföður til Íslands
þegar hann var 14 ára og bjó þar í
12 ár og talar íslensku lýtalaust.“
Gabriel, sem er menntaður
fasteignasali, og Kristín hafa átt
mjög góð samskipti við Íslendinga
og viðskiptahópurinn er orðinn
stór. „Bæði höfum
við selt Ís-
lending-
um eignir sem við höfum svo um-
sjón með og leigjum út þegar eig-
endur eru ekki að nota þær, og svo
hefur stór hópur Íslendinga leigt
íbúðir og hús hjá okkur til sumar-
dvalar. Við höfum alltaf lagt áher-
slu á fyrsta flokks þjónustu og
sem dæmi höfum við vatn og aðra
drykki í ísskápum þegar fólk
kemur, svo það þurfi ekki að byrja
á því að hlaupa út í búð, og sömu-
leiðis brauð, ost og fleira ef fólk
vill.“
Kristín og Gabriel útvega bíla-
leigubíla á hagstæðu verði og
bóka fyrir fólk skemmtanir eða
borð á veitingastöðum. „Þjónust-
an er mjög persónuleg og fáum
við gjarnan sömu fjölskyldurnar
aftur og aftur,“ segir Kristín.
Skrifstofa hjónanna er í gamla
bænum í Benidorm og þau eru með
hús á leigu á Benidorm, Albir, La
Cala Finestrat og La Nucia. ■
■ Út í heim ÍT ferðir:
Göngur inn-
an lands og
utan
ÍT ferðir munu á næsta ári bjóðaupp á nokkrar gönguferðir er-
lendis:
5. júní verður boðið upp á tvær
miserfiðar göngur í Pýreneafjöll-
unum. Gengið er eina viku og síð-
an er boðið upp á viku í Tossa de
Mar.
5. júní verður einnig efnt til
lúxusgöngu á Playa de Aro.
Gengnar fjórar stuttar göngur á
milli yndislegra bæja á Costa
Brava-ströndinni.
23. júní verður flogið beint til
Stafangurs. Trússferð um Lyse-
fjord. Meðal annars gengið á
Preikestolen.
ÍT ferðir bjóða einnig upp á
nokkrar gönguferðir innanlands
árið 2004, meðal annars trússferð-
ir í Fjörður með heimamönnum,
fjölbreyttar trússferðir um
Víknaslóðir í fylgd heimamanna,
trússferð um Snæfjallaströnd,
Grunnuvík og Jökulfirði.
Göngugarpar ÍT ferða hittast
alla sunnudagsmorgna í október
kl. 11 og ganga tvo til þrjá tíma.
19. október verður gengið upp
með Fossá í Hvalfirði og 26. októ-
ber hringur í Vífilsstaðahlíðinni.
Ef veður leyfir ekki fjallgöngur
verða valdar aðrar leiðir. Mæting
er við Vetnisstöðina (Skalla/Skelj-
ung) við Vesturlandsveg 19. októ-
ber en þann 26. er hist við Hafnar-
fjarðarkirkjugarð. ■
Kristbjörg Kjeldleikkona segist
hafa ferðast til mar-
gra yndislegra
staða hér á landi í
gegnum tíðina.
„Ég get nefnt
A r n a r v a t n s -
heiði sem er ein-
staklega fögur
að vori til. Mér
finnst hún yndis-
leg og mig langar
alltaf þangað aftur.
Það eru nokkuð mörg
ár síðan ég fór þangað síðast. Þar
upplifði ég vorið og sá fuglana
gera sér hreiður. Kyrrðin var al-
veg dásamleg.“
Á meðal annarra eftirminni-
legra staða nefnir Kristbjörg
Lónsöræfi og Skaftafell.
„Ég er í gönguklúbb og hef far-
ið með honum í Lónsöræfin og í
Víkurnar fyrir austan. Það var
hvort tveggja alveg dásamlegt,“
segir Kristbjörg. „Víkurferðin var
yndisleg. Þá lögðum við upp frá
Borgarfirði eystra. Það var alveg
sérstakt að ganga Víkurnar, eitt-
hvað svo magnað og fegurðin var
mikil. Austfirðirnir eru svolítið
sérstakir, eða voru það í það
minnsta.“ ■
TÓNLEIKAR Í PRAG
Síðustu sætin til Prag 20. og 27.
október eru seld á verðinu 2 fyrir 1
hjá Heimsferðum. Hægt er að velja
um úrval hótela, þriggja og fjögurra
stjarna. Verð fyrir flugsæti er kr.
19.950, 20.-23. október og 27.-30.
október, miðað við staðgreiðslu. 22.
október eru tvennir spennandi tón-
leikar í Prag, Public Enemy (verð frá
um 1.660 ísl. kr.) og Iron Maiden
(verð frá um 1.930 ísl. kr.).
Miðapantanir á www.ticketpro.cz.
KRISTBJÖRG KJELD
Yndislegt að ganga Vík-
urnar fyrir austan.
Uppáhaldsstaðurinn:
Arnarvatns-
heiði að vori
ÍBÚÐIR Á VEGUM ESPIS ERU VEL STAÐSETTAR
Í mörgum tilfellum eru sundlaugar í garðinum og stutt í alla þjónustu.
Á TOPPNUM
Stoltir göngugarpar hafa náð tindinum.
VIÐ LEIFSSTÖÐ
Upplýsingar
í síma 421 2800