Fréttablaðið - 16.10.2003, Side 31
FIMMTUDAGUR 16. október 2003
Númer eitt í notuðum bílum
Innifalið í rekstrarleigu:
20.000 km. akstur á ári,
smurningar, olíuskipti og
þjónustuskoðanir.
Rekstrarleiga er háð
gengi gjaldmiðla og getur
því breyst án fyrirvara.
ÚT
KE
YR
SL
A
Í B
ÍL
Afi
IN
GI
Laugavegi 170 – 174
Sími 590 5040
www.bilathing.is
bilathing@hekla.is
Nýlegir fyrrum bílaleigubílar
á hreint ótrúlegu verði.
Á mánuði miðað við rekstrar-
leigu til þriggja ára
23.500 KR.
SKODA OCTAVIA
Á mánuði
miðað við
rekstrar-
leigu til þr
iggja ára
VW POLO 5
DYRA
Dallas Mavericks:
Jón Arnór
með sex stig
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
lék með Dallas Mavericks sem
tapaði 107-129 fyrir Los Angeles
Clippers í fyrrinótt. Jón Arnór lék
í sextán mínútur, tveimur mínút-
um minna en í síðasta leik. Hann
skoraði sex stig, átti fimm
stoðsendingar og tók eitt frákast.
Clippers var mun sterkari aðil-
inn í leiknum og leiddi allan tím-
ann. Í hálfleik var staðan 69-44
fyrir Clippers.
Jiri Welsch og Antawn Jamison
voru stigahæstir í liði Mavericks
með nítján stig hvor, en Marquis
Daniels skoraði tólf. Elton Brand
skoraði tuttugu stig fyrir Clippers,
og þeir Corey Maggette og Quent-
in Richardson skoruðu sextán stig
hvor. Leikurinn var hluti af undir-
búningstímabili liðanna fyrir
NBA-deildina. Fyrsti leikur Mav-
ericks verður gegn Los Angeles
Lakers þann 28. október. ■
Anna Kournikova:
Leggur spaðann á hilluna
TENNIS Anna Kournikova, fræg-
asta tenniskona heims, hefur
ákveðið að leggja spaðann á hill-
una.
Kournikova, sem er 22 ára, var
meðal kynna á tónlistarverðlauna-
hátið í Monte Carlo um helgina.
„Leiklist og kynningarstarfið er
eitthvað sem mér líkar,“ sagði
Kournikova. „Ég myndi gjarnan
vilja koma fram í þáttum á borð
við Friends og Sex and the City.
Ég hef fengið mörg slík tilboð en
hef ekki haft tíma til að sinna
þeim vegna tennisins.“
Kournikova náði hæst í áttunda
sæti heimslistans þegar hún
komst í undanúrslit Wimbledon-
mótsins árið 1997. Henni hefur
ekki gengið sem skyldi síðan og er
í 302. sæti heimslistans. Hún hef-
ur átt við meiðsli að stríða síðustu
ár.
„Ég hef ekki getað lagt mig
100% fram vegna meiðsla,“ sagði
Kournikova. „Ég hef leikið tennis
í sautján ár og legg hart að mér á
æfingum. Ég veit ekki hvað mun
gerast en ég mun taka ákvörðun í
janúar.“ ■
Segir Beckham
hafa hrækt á sig
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Alpay segir David Beckham hafa hrækt á
sig. Ensk blöð segja Alpay aðalóvin Englands eftir slagsmál leikmanna í
undankeppni Evrópumótsins á laugardag.
FÓTBOLTI Alpay Özalan, tyrkneski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
sakar David Beckham, landsliðs-
fyrirliða Englands, um að hafa
hrækt á sig í viðureign þjóðanna í
undankeppni Evrópumótsins í
knattspyrnu um síðustu helgi.
Alpay, sem ensk blöð hafa lýst
sem óvini Englands númer eitt,
ögraði Beckham með því að
hlaupa upp að honum eftir að sá
síðarnefndi klúðraði vítaspyrnu í
leiknum á laugardag. Hann lét þó
ekki þar við sitja því þegar liðin
gengu til búningsklefa í hálfleik
potaði hann í andlitið á landsliðs-
fyrirliðanum.
Alpay snerist í gær til varnar og
í samtali við Sky-fréttastofuna seg-
ir hann Beckham hafa ögrað sér.
„Hann skallaði mig og hrækti
síðan á mig,“ sagði Alpay. „Ef hrák-
inn hefði lent á höfði mínu hefði ég
ekki kippt mér upp við það. En hann
lenti á stjörnunni á tyrknesku lands-
liðstreyjunni minni. Ég var pirraður
út af því en engu öðru.“
Alpay segist ekki hafa tekið þátt
í slagsmálum sem brutust út meðal
leikmanna á leið til búningsher-
bergja en Evrópska knattspyrnu-
sambandið, UEFA, rannsakar nú
málið. Enskir fjölmiðlar greina frá
því að tyrkneskir leikmenn hafi
hrækt á þá ensku en í gær þvertóku
tyrknesk knattspyrnuyfirvöld fyrir
það.
„Ég tók ekki þátt í slagsmál-
unum. Ég sá ekki einu sinni
hvað gerðist,“ segir Alpay.
„Kannski brutust slagsmálin út
vegna þess sem gerðist eftir
vítaspyrnuna. En ég á erfitt með
að trúa því að menn leggist svo
lágt út af því.“
Alpay hefur fengið þriggja daga
frí frá Aston Villa. Hann mun ekki
eiga sjö dagana sæla ef hann leikur
aftur á Englandi en framtíð hans
hjá Aston Villa er óráðin sem og
landsliðsferillinn. ■
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON
Hefur leikið tvo leiki af fjórum á undirbún-
ingstímabilinu með Dallas Mavericks.
BECKHAM OG ALPAY
Alpay segir David Beckham, landsliðsfyrirliða Englands, hafa hrækt á sig í leik Tyrklands og Englands í undankeppni Evrópumótsins
um síðustu helgi.
AÐ HÆTTA
Anna Kournikova hefur lagt tennisspaðann
á hilluna. Ástæðuna segir hún vera
langvarandi meiðsli.