Fréttablaðið - 16.10.2003, Qupperneq 34
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is Sambíóin
Kringlunni, s. 588 0800 Sambíóin Álfa-
bakka, s. 587 8900 Háskólabíó, s. 530
1919 Laugarásbíó, s. 5532075 Regn-
boginn, s. 551 9000 Smárabíó, s. 564
0000 Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666 Borg-
arbíó, Akureyri, s. 462 3500.
■ ■ TÓNLEIKAR
10.30 Tónleikar með Kvennakór
Reykjavíkur og Páli Óskari verða
haldnir í Austurbæ. Á efnisskrá verður
fjölbreytt tónlist, allt frá Hljómasyrpu til
Supremes og fleiri. Stjórnandi er Sigrún
Þorgeirsdóttir og auk hennar verður
þriggja manna hljómsveit.
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands
leikur fyrstu þrjár sinfóníur tónskáldsins
Dmitri Sjostakovitsj í Háskólabíói undir
stjórn Rumon Gamba.
21.30 Jazztónleikaröðin á Kaffi List
heldur áfram með tónleikum hins róm-
aða B-3 tríó, sem leggur áherslu á svo-
nefndan Hammond jazz. Tríóið er skip-
að þeim Agnari Má Magnússyni á orgel,
Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar og Erik Qvick á
trommur. Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Tómas R. Einarsson bassaleikari og
félagar hans verða með útgáfutónleika í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði í tilefni
þess að fyrir skemmstu kom út með
þeim geisladiskurinn Havana, sem inni-
heldur íslensk/kúbverskan latíndjass.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Erling með Stefáni Jónssyni
og Jóni Gnarr er sýnt í Loftkastalanum.
■ ■ LISTOPNANIR
Guðrún Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Kristinn Breiðfjörð úr Húsinu og ýmsir
listamenn frá Bjarkarási opna sýningu á
Kjarvalsstöðum á listahátíðinni List án
landamæra.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Á Kránni, Laugavegi 73,
verður haldin árleg trúbadorkeppni und-
ir yfirskriftinni Foster’s Trúbadorkeppn-
in. Fyrsta kvöldið af þremur.
20.00 Brjálaðir tónleikar á Loftinu í
Hinu Húsinu á Fimmtudagsforleik þar
sem Jan Mayen, Dikta og Mínus ætla
að gera allt vitlaust tónlistarlega séð.
Eins og ávallt er frítt inn og allir eldri en
16 ára og allsgáðir velkomnir.
20.15 Tristian, Santiago, The
Lovers, Eivör Pálsdóttir, Leaves og
Calla koma fram á Nasa á Airwaves há-
tíðinni.
21.00 Gunnar Óla og Einar Ágúst
verða í trúbadorstellingum á Glaumbar.
21.00 Imanti, Tonik, Sk/um,
Santa Barbara og Dr. Gunni koma fram
á Airwaves á Grand Rokk.
21.00 Innvortis, Canora, Her-
oglymur og Mosquito spila á de
Boomkikker, Hafnarstr. 9. Rvk. Frítt inn.
21.00 DJ Leaf og John B spila á
Kapital á Airwaves.
21.00 Rúnar, Ingó, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, Hera, Melodikka og Eberg
koma fram á Vídalín á Airwaves tónlist-
arhátíðinni.
21.00 Kira Kira, The Kilimanjaro
Darkjazz Ensemble, Darri Lorenzen,
Telcosystems + dk, Bong - Ra og
Eboman á raftónleikum í Iðnó á Airwa-
ves hátíðinni.
22.30 Delphi, Atingere, Ampop og
SKE spila á Airwaves hátíðinni í Þjóð-
leikhúskjallaranum.
Hörður Torfa syngur og spilar á
Græna Hattinum á Akureyri á sínu ár-
lega haustferðalagi um landið. Á ferða-
laginu kynnir hann nýútkomna plötu
sína Eldssaga.
Hljómsveitin Spútnik spilar í Pakk-
húsinu á Selfossi.
TMC, Bent & 7Berg, ESP, Mezzías &
MC Bangsi, Forgotten Lores, O.N.E.,
Killa Kella og Lords of the Und-
erground spila á Airwaves á Gauknum.
Varði, Noise, Oblivious, Smack og
Phuture fx rokka á Airwaves á Lauga-
vegi 11.
■ ■ FYRIRLESTRAR
16.00 Sigurgeir Björn Geirsson
heldur fyrirlestur um verkefni sitt til
meistaraprófs í véla- og iðnaðarverk-
fræði í fyrirlestrarsal í húsakynnum
Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1.
17.00 „Vítamín, skuld og vals“
nefnist erindi Þorsteins Gylfasonar á
Heimspekitorgi Háskólans á Akureyri.
Þorsteinn ræðir þar um einn anga af
smættavandanum í líffræði. Erindið
verður flutt í Þingvallastræti 23, stofu 14.
20.00 Fræðslufundur hjá Foreldra-
félagi barna með AD/HD, (áður For-
eldrafélag misþroska barna) verður í
Safnaðarheimili Háteigskirkju. Hrefna
Haraldsdóttir foreldraráðgjafi hjá
þroskahjálp flytur erindi er hún nefnir
Hlutverk foreldraráðgjafa.
■ ■ FUNDIR
20.00 Foreldrar og aðstandendur
lesbía og homma á Norðurlandi hittast
í Sigurhæðum á Akureyri. Á fundinn
kemur Harpa Njáls, félagsfræðingur,
sem um árabil hefur stýrt samtökum
foreldra og aðstandenda samkyn-
hneigðra í Reykjavík.
20.00 Fræðslufundur um Íslenskt
samfélag verður haldinn á kínversku í
Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18. Sérfræð-
ingur frá Alþýðusambandi Íslands fjallar
um réttindi launafólks.
■ ■ SÝNINGAR
Félagar í Samlagið listhús á Akureyri
opna sýningu á smáverkum í Iðnó.
Þessi sýning er lokahnykkurinn á hring-
ferðalagi um landið sem 10 listamenn
og félagar í Samlaginu Listhúsi á Akur-
eyri tóku sér á hendur. Sýningin er opin
á opnunartíma Iðnó.
34 16. október 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
OKTÓBER
Fimmtudagur
Söngkonan Eivör Pálsdóttirkemur fram á Airwaves 2003
og í kvöld verður hún með tónleika
ásamt hljómsveit sinni á NASA:
„Ég hlakka mikið til að spila því ég
er búin að vera í fríi svo lengi að
það verður æðislegt að komast aft-
ur á svið,“ segir þessi hæfileika-
ríka tónlistarkona sem hefur hald-
ið sig í Danmörku undanfarið: „Ég
á færeyskan kærasta sem er pí-
anisti og býr í Danmörku. Það er
mikið að gera hjá okkur báðum en
við reynum að vera dugleg að
heimsækja hvort annað.“
Færeyska sjarmadrottningin
er nú búin að leggja lokahönd á
nýjan geisladisk: „Ég hætti í skóla
þegar ég var sextán ára og þá
ákvað ég að snúa mér alfarið að
tónlistinni. Það eru fjögur ár liðin
síðan ég gaf út mína fyrstu plötu
og á þessum tíma hef ég þroskast
mikið sem tónlistarmaður. Ég hef
verið að semja lög síðan þá en nú
langaði mig til að starfa með ís-
lenskum tónlistarmönnum og við
erum búin að vinna að plötunni í
ár.“
Krákan er heiti nýju plötunnar
sem kemur út 22. október: „Yrkis-
efnið er blandað en þetta eru aðal-
lega færeysk lög sem fjalla um
ástina og lífið. Það er eitt lag eftir
mig sem var þýtt á íslensku en svo
eru tvær færeyskar rímur á plöt-
unni og önnur þeirra nefnist Krák-
an. Mig langaði til að titillinn á
plötunni vísaði í fugla því mér
finnst fuglar æðislegir, þeir eru
tákn um frelsi. Krákur eru algeng
fuglategund í Færeyjum og þær
halda sig gjarnan fyrir utan húsið
mitt heima.“
Krákan kemur út í Færeyjum
og á Íslandi: „Við höldum útgáfu-
tónleika í Íslensku óperunni 28.
október en svo ætlum við að fara í
tónleikaferð um Ísland, Noreg,
Danmörk og Svíþjóð.“ Á NASA í
kvöld spila tónlistarmennirnir
Pétur Grétarsson trommur, Birgir
Bragason á bassa og Edward Lár-
usson á gítar með Eivöru. ■
■ TÓNLEIKAR
Eivör komin
frá Danmörku
HÖRÐUR TORFASON
Ég á einn eldgamlan Hagström-gítar sem ég hef samið mikið
á,“ segir söngvaskáldið Hörður
Torfason, sem um þessar mundir
er að ferðast um landið á sinni ár-
legu hausttónleikaferð. „Ég hef
átt hann síðan 1968, keypti hann
notaðan eins og ég geri alltaf.
Dags daglega nota ég samt annan
gítar sem heitir Takamine. Þetta
er klassískur gítar sem ég keypti
gamlan árið 1982. Ég kaupi hljóð-
færi alltaf gömul. Það borgar sig
því þá eru kostirnir komnir í ljós.
Þetta er eins og með vínið. Maður
getur keypt sér nýtt hljóðfæri en
svo reynist það kannski ómögu-
legt.“
Hljóðfæriðmitt
EIVÖR PÁLSDÓTTIR
Færeyska tónlistarkonan verður á NASA í kvöld í tilefni af Airwaves-hátíðinni en 22. októ-
ber kemur út önnur plata hennar, Krákan.
Ferðadiskótek Sigvalda Búa
finnur réttan tón fyrir teitið þitt.
898 6070
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Magnús Ólafsson ljósmyndari
27. sept. - 1.des. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
s: 577-1111
Árbæjarsafn:
Safnhúsin eru lokuð en boðið er upp á
leiðsögn um safnsvæðið á mán., mið. og fös.
kl. 13. Skrifstofan er opin virka daga kl. 8.30-16.
Móttaka hópa eftir samkomulagi.
Viðey:
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í síma 568-0535 og 693-1440
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík.
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.borgarbokasafn.is
SUNNUDAGAR ERU BARNADAGAR
Í AÐALSAFNI, TRYGGVAGÖTU 15
... og næsta sunnudag
19. október kl. 15
les Yrsa Sigurðardóttir úr
nýju verðlaunabókinni sinni
BIOBÖRN
Minjasafn Orkuveitunnar
Breyttur opnunartími hjá
Minjasafni Orkuveitunnar
Nýju tímarnir eru:
mán.-fös. 13-16
sun. 15-17
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770
Áfram stelpur!
Nýja kvennahreyfingin
frá 7. áratugnum til dagsins í dag.
sýning á Reykjavíkurtorgi,
Tryggvagötu 15
11. október til 2. nóvember
Ókeypis aðgangur
HAFNARHÚS, 10-17
Úr byggingarlistarsafni, Yfir bjartsýnisbrúna,
Vögguvísur, Erró - Stríð.
Sýningarstjóraspjall Péturs Ármannssonar
sunnudag kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Kjarval, Frímerkjasýning, List án landamæra.
Leiðsögn alla sunnudaga kl. 15.00.
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn.
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran
Inese Klotiña píanóleikari
Sunnudaginn 19.október n.k. kl.17.00
Efnisskrá: Ljóðaflokkurinn Haugtussa eftir Grieg,
íslensk einsöngslög, verk eftir H.Wolf og A.Berg.
Miðaverð kr.1.500. Bókað á netinu
og í s: 5757700
LAUGARDAGUR 18. OKT. kl. 21
FUGLAR TÍMANS - útgáfutónleikar
Diddú og Valgeir Guðjónsson ásamt
úrvals hljóðfæraleikurum frumflytja
tónlist eftir Valgeir við ljóð Jóhannesar
út Kötlum.
SUNNUDAGUR 19. OKT kl. 20
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
Fimmtudagur 16.10. kl. 20:30 örfá sæti laus
Sunnudagur 19.10. kl. 16 uppselt
Sunnudagur 19.10. kl. 20 uppselt
Föstudagur 24.10 kl. 20 uppselt
Föstudagur 31.10. kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 08.11. kl. 20 laus sæti
Ósóttar pantanir seldar daglega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI