Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 35

Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 35
Aðalhljómsveitarstjóri Sinfóní-unnar, Rumon Gamba, hyggst flytja allar fimmtán sinfóníur tón- skáldsins Dmitrí Sjostakovitsj á næstu starfsárum hljómsveitar- innar. Þetta er eitt metnaðar- fyllsta verkefni sem hljómsveitin hefur ráðist í á síðari árum. Hafist er handa í kvöld með flutningi á fyrstu þremur sinfóní- unum Sjostakovitsj. Þær voru samdar þegar hann var ungur maður, 19-23 ára. Þetta var á þriðja áratug síðustu aldar, en þá var mikið gróskutímabil í rúss- neskri tónlist. Hljómsveitarstjórinn Rumon Gamba er nú að hefja annað starfsár sitt með Sinfóníunni. Söngsveitin Fílharmonía tekur þátt í flutningnum undir stjórn Olivers Kentish. ■ Ég er með útgáfutónleika á Ísa-firði í kvöld þar sem ég kynni lög af nýútkomnum geisladiski,“ segir bassaleikarinn Tómas R. Ein- arsson. Havana er heitið á geisla- disknum, sem inniheldur kúb- verskan latíndjass: „Ég gaf síðast út diskinn Kúbanska og þar voru á ferðinni íslensk latínjasslög. Núna freistaði ég þess að skreppa til Havana og rjóminn af kúbversk- um tónlistarmönnum spilar með mér inn á plötuna. Hljómsveitin sem spilar hér á Íslandi verður hins vegar kúbversk-íslensk því hingað eru komnir tveir Kúbverj- ar, tresgítarleikari og trompetleik- ari, til að spila með okkur. Við höld- um fjóra útgáfutónleika og verð- um hér á Ísafirði, Húsavík, Akur- eyri og í Reykjavík.“ Tómas hefur alltaf haft mikinn áhuga fyrir kúbverskri menn- ingu: „Það sem kveikti tónlistar- áhugann var hlutverk bassans í kúbverskri tónlist. Það er mjög ólíkt þeim djassi sem ég hef spil- að fram að þessu. Maður ætti alltaf að reyna að fást við það sem maður kann ekki og fyrir mig var þetta nánast eins og að læra upp á nýtt á bassann.“ Spurningin er svo hvort Tómas skelli sér í tónleikaferð til Kúbu: „Ég þyrfti að safna miklum pening- um til að gera það því laun tónlistar- manna þar í landi eru ekki há. En það er aldrei að vita nema ég skjótist þangað til að taka lagið. Útgáfutónleikar Tómasar eru í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í kvöld og hefjast klukkan 20.30. ■ FIMMTUDAGUR 16. október 2003 35 Kúbversk-íslensk hljómsveit á Ísafirði TÓMAS R. EINARSSON ÁSAMT CÉSAR HECHEVARRÍA OG DANIEL RAMOS Kúbversku tónlistarmennirnir spila ásamt íslenskri hljómsveit Tómasar á útgáfutónleikum á Ísafirði, Húsavík, Akureri og Reykjavík ■ TÓNLIST FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A Hljóð og mynd stjórnað með hjólabretti Tónlistarhátíðin IcelandAirwaves hefst í dag og er margt forvitnilegt á dagskránni. Í Iðnó verður raftónlistaráhuga- mönnum boðið upp á samruna rafhljóða og mynda. Þetta er fyrsta framlag hópsins Kvikt til íslenskra tónlistarlífsins, og er einkaframtak hópsins sem lak inn á dagskrá tónlistarhátíðar- innar í ár. „Kvikt er eitthvað lifandi. Þetta vísar til þess að á kvöldinu ætlum við að reyna að komast sem næst því að flytja raftónlist og vídeóverkin eins lifandi og mögulegt er,“ útskýrir Arnþrúð- ur Ingólfsdóttir, Adda, umsjóna- maður tónleikana í kvöld. „Okkur viljum að þessi listgrein fái tæki- færi til þess að blómstra og ætl- um að reyna að ýta undir það hér með því að beina ljósinu alger- lega að raftónlist og vídeóverk- um. Hvert einasta atriði er með vídeóverk sem er alveg órjúfan- legur hluti af sýningunni.“ Á tónleikunum koma fram raf- tónlistarmenn frá Hollandi og Íslandi. Það er vegna þess að Adda nam raftónlist í skóla í Hollandi og kynntist tónlistar- mönnunum þar. „Þetta eru allt menn sem eru mjög framarlega og eru virtir í þessum raftónlist- arbransa. Þeir hafa spilað úti um allar trissur. Til dæmis Eboman, sem hefur komið fram á tónleik- um í tæp tíu ár. Hann notar mjög sérstakar og persónulegar að- ferðir til þess að spila tónlistina og vídeóin. Styðst m.a. við hjóla- bretti. Hann er með heimasmíðað forrit sem virkar þannig að nem- ar geta haft áhrif á það sem hann gerir á sviðinu. Hann setur nem- ann á hjólabrettið, þannig að þegar hann hreyfir það hefur það áhrif á tónlistina og vídeóverkið. Hljóð og mynd breytast eftir því sem hann hreyfir sig á brettinu. Hann ætlar meira að segja að stökkva.“ Tónleikarnir hefjast kl. 21 og fram koma Kira Kira og Darri Lorenzen frá Íslandi og The Kilimanjaro Darkjazz Ensemble, Telcosystems + dk, Bong-Ra og Eboman frá Hollandi. ■ KVIKT Hópurinn ætlar að blanda saman hljóð og mynd í Iðnó í kvöld. ■ AIRWAVES Sinfónían spilar Sjostakovitsj ■ TÓNLIST SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Fyrstu þrjár sinfóníur Dmítrí Sjostakovitsj verða á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói í kvöld. Miðasalan, sími 568 8000 BORGARLEIKHÚSIÐ ER FJÖLSKYLDUVÆNT LEIKHÚS Börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum Gildir ekki á barnasýningar og sýningar með hækkuðu miðaverði. STÓRA SVIÐ ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR: THE MATCH eftir Lonneke Van Leth - heimsfrumsýning SYMBIOSIS eftir Itzik Galili PARTY eftir Guðmund Helgason 3. sýn lau 18/10 kl 20 - rauð kort 4. sýn fi 30/10 kl 20 - græn kort 5. sýn su 2/11 kl 20 - blá kort LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 18/10 kl 14 -UPPSELT Su 19/10 kl 14 - UPPSELT Lau 25/10 kl 14 - UPPSELT Lau 25/10 kl 17 - UPPSELT Su 26/10 kl 14 - UPPSELT Lau 1/11 kl 14 - UPPSELT Su 2/11 kl 11 - AUKASÝNING UPPSELT Su 2/11 kl 14 - UPPSELT Lau 8/11 kl 14 - UPPSELT Su 9/11 kl 14 - UPPSELT Lau 15/11 kl 14 - UPPSELT Su 16/11 kl 14 - UPPSELT Lau 22/11 kl 14 - UPPSELT Su 23/11 kl 14 - UPPSELT Lau 29/11 kl 14 Su 30/11 kl 14 Lau 6/12 kl 14 Su 7/12 kl 14 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Fö 17/10 kl 20 Fö 24/10 kl 20 Fö 31/10 kl 20 Lau 8/11 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Su 19/10 kl 20 Su 26/10 kl 20 Lau 1/11 kl 20 Su 9/11 kl 20 Lau 15/11 kl 20 Síðustu sýningar NÝJA SVIÐ KVETCH e. Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Lau 18/10 kl 20 - UPPSELT Fö 24/10 kl 20 - UPPSELT Fi 30/10 kl 20 Fö 31/10 kl 20 Ath: Aðeins örfáar sýningar 15:15 TÓNLEIKAR Lau 18/10 kl 15:15 Voces Thules - Þá og Nú LITLA SVIÐ HÆTTULEG KYNNI byggt á sögu Laclos í samstarfi við DANSLEIKHÚS MEÐ EKKA Forsýning lau 18/10 kl 20 - kr. 1.000 Frumsýning su 19/10 kl 20 - UPPSELT fö 24/10 kl 20 su 26/10 kl 20 Aðeins 5 sýningar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.