Fréttablaðið - 16.10.2003, Page 37
JohnnyDepp hef-
ur samþykkt
að leika í
framhalds-
mynd hinnar
geysivin-
sælu Pirates
of the
Caribbean
frá því í
sumar. Það verður allt sama liðið
sem ætlar að standa að gerð
framhaldsmyndarinnar. Einnig er
orðið ljóst að bæði Keira Knight-
ly og Orlando Bloom muni leika í
framhaldsmyndinni. Ekki er vit-
að hverjir aðrir snúa aftur. Það
hefði svo sem alveg verið hægt
að gera mynd þar sem sjóræning-
inn Jack Sparrow væri einn
strandaður á eyðieyju, svo góður
var Depp í hlutverkinu.
Teiknimyndin Finding Nemo fórrakleiðis í efsta sæti banda-
ríska bíóaðsóknarlistans á frum-
sýningahelgi sinni. Myndin tók
inn 7,4 milljónir dollara um helg-
ina sem þykir skrambi gott.
Myndin er nýjasta verkefni Pix-
ar, sama framleiðanda og gerði
Toy Story. Myndin Bad Boys 2 er
ennþá gríð-
arlega vin-
sæl í Banda-
ríkjunum og
færði sig úr
efsta sætinu
í sætið fyrir
neðan.
Gwyneth Paltrow kom mörgumá óvart í sjónvarpsviðtali á
dögunum þegar hún talaði opin-
skátt um fyrri ástarsambönd sín
við Brad Pitt og Ben Affleck. Eft-
ir að hafa verið gagnrýnd fyrir
þetta sagðist hún vonast til að
þetta yrði til þess að binda enda á
áralangar vangaveltur um af
hverju fyrri sambönd hennar
hafi siglt í strand. Það vakti hins
vegar mikla undrun að þrátt fyrir
að stúlkan væri mjög til í að tala
um fyrri
sambönd
neitaði hún
alfarið að
ræða núver-
andi ástar-
samband sitt
við Cold-
play-söngv-
arann Chris
Martin.
Ozzy Os-bourne
hefur leit-
að til lækn-
is vegna
þess
hversu
mikið hann
titrar. Ozzy óttast að hann sé með
fyrstu einkenni Parkinsonveiki
og leitaði hann til sama sérfræð-
ings og hefur annast leikarann
Michael J. Fox. Ozzy er sagður
hafa miklar áhyggjur af titringi
sínum, en lætur það víst ekki
hafa mikil áhrif á skap sitt.
KEFLAVÍK
SELFOSS
Hvolsvöllur
HÖFN
Egilsstaðir
BORGARNES
REYKJAVÍK
MOSFELLSBÆR
AKRANES
HAFNARFJÖRÐUR
Fréttiraf fólki
Holburn West-kirkjan í Aber-deen í Skotlandi hefur hafið
fremur nýstárlega herferð til
þess að lokka yngri kynslóðina inn
um kirkjudyrnar. Séra George
Cowie fékk nefnilega þá fyrir-
takshugmynd að kenna guðspjall-
ið samkvæmt gildum Simpson-
fjölskyldunnar. Þannig vonast
presturinn til þess að leysa úr
þeim árekstrum sem þegnar nú-
tímaþjóðfélaga eiga við trúna.
„Við viljum brúa bilið á milli
trúarinnar og poppmenningar,“
segir séra George Cowie, sem
bendir á að þrátt fyrir taumlítinn
húmor sé The Simpsons einn af
fáum sjónvarpsþáttum þar sem
aðalpersónurnar fara reglulega í
kirkju. „Námskeiðið verður hald-
ið fjórum sinnum og er opið öllum
þeim sem vilja læra meira um
kristna trú.“
Presturinn mun sýna atriði úr
Simpsons-þáttunum og útskýra
frá sjónvarhorni kirkjunnar
hverjar tilvísanirnar séu. Þess má
geta að presturinn er mikill aðdá-
andi þáttanna. ■
Skrýtnafréttin
SIMPSONS
■ Kirkja í Skotlandi er með fremur nýstár-
lega leið til þess að lokka yngri kynslóðina
inn, kenna Guðspjall Simpson-fjölskyld-
unnar.
Guðspjallið samkvæmt
gildum The Simpsons
THE SIMPSONS
Ned Flanders yrði stoltur af skoska
prestinum séra George Cowie.
37FIMMTUDAGUR 16. október 2003