Fréttablaðið - 17.11.2003, Side 8

Fréttablaðið - 17.11.2003, Side 8
8 17. nóvember 2003 MÁNUDAGUR Hestinum allt „Ég fer fyrst á www.jonas.is. Eiturhvöss skrif eftir fremsta blaðamann landsins sem nú rit- stýrir hestablaði.“ Egill Helgason sjónvarpsmaður um netvapp sitt. Tímarit Morgunblaðsins, 16. nóvember. Loksins, loksins Hún glitraði eins og gimsteinn í mannhafinu. Ekki frá því að augu okkar hafi mæst eitt augnablik. Svo horft annað. Eiríkur Jónsson um fyrstu persónulegu kynnin af Dorrit Moussaieff. DV, 15. nóvember. Reyndur maður „Mér er ljóst að í dóms- og fang- elsismálum er miklu ábótavant og hef ég ákveðnar hugmyndir í þeim efnum sem þingflokkur Frjálslyndra styður heilshugar.“ Gunnar Örlygsson þingmaður um áherslur sínar. Tímarit Morgunblaðsins, 16. nóvember. Orðrétt Landssamtök lífeyrissjóða um breytingar á lögum um tryggingagjald: Leggjast gegn skerðingu viðbótarlífeyris LÍFEYRISMÁL Landssamtök lífeyr- issjóða leggjast gegn breyting- um á lagafrumvarpi um trygg- ingagjald sem kveða á um skerð- ingu viðbótarlífeyrissparnaðar. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn samtakanna um frumvarpið. Samkvæmt því verður framlag ríkisins til viðbótarlífeyris- sparnaðar fellt niður, en það get- ur nú hæst orðið 0,4% eða 10% af 4% iðgjaldi. Það er skoðun Landssamtaka lífeyrissjóða stuðla beri að aukn- um langtímasparnaði almennings frekar en að draga úr honum. „Nauðsynlegt er að hafa sérstakan hvata, þannig að launamenn sjái sér hag í því að leggja til hliðar ákveðinn hluta af launum sínum í viðbótarlíf- eyrissparnað,“ segir í umsögn samtakanna. „Frekar þurfi að auka þennan hvata heldur en draga algerlega úr honum. Þá ber þess að geta að almenn þátt- taka launafólks varðandi viðbót- arlífeyrissparnað dregur úr einkaneyslu og ætti þannig að hamla gegn þenslu í þjóðfélag- inu.“ Landssamtökin segja að einnig verði að hafa það í huga að launamenn greiði tekjuskatt af viðbótarlífeyrissparnaðinum og þar með einnig af framlagi ríkissjóðs. ■ Utanríkisráðherra kynnir staðfestingarfrumvarp EES: Bjartsýnn á staðfestingu EES-SAMNINGURINN Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi á föstudag frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið. Lagafrumvarpið er nauðsynlegt til þess að unnt verði að fullgilda nýjan samning á milli Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna vegna stækkunar Evrópusambandsins. Fullgildingu EES-samningsins þarf að vera lokið fyrir 1. maí 2004, þegar stækkun Evrópusam- bandsins tekur formlega gildi. Í flestum ríkjanna stóð til að full- gilda stækkunarsáttmála ESB og nýjan EES-samning samtímis en vegna tafa við undirritun EES- samningsins er ljóst að í flestum þjóðþingum þarf að taka sátt- málana fyrir hvorn í sínu lagi. Halldór segist bjartsýnn á að samningurinn geti tekið gildi á til- ætluðum tíma þrátt fyrir þær taf- ir sem urðu á undirritun sam- komulags EFTA og ESB. „Við höf- um engar aðrar fréttir en að þetta sé allt að fara á fullt í þjóðþingum landanna og höfum ekki ástæðu til að ætla annað en þetta gangi upp. Við höfum kynnt okkur það og fáum alls staðar sömu svörin, að það muni allir leggja áherslu á það,“ segir Halldór. ■ Heilbrigðisráðherra: Bíður með viðbrögð HEILBRIGÐISMÁL Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra hefur enn ekki borist lögfræðiálit, sem fjall- að var um í Fréttablaðinu í gær. Í álitinu er komist að þeirri niður- stöðu að allir starfsmenn embætt- is landlæknis séu vanhæfir til þess að fjalla um mál er varðar barn sem lést á Landspítala skömmu eftir fæðingu. Að sögn Sæunnar Stefánsdótt- ur, aðstoðarmanns heilbrigðisráð- herra, mun ráðherra kynna sér lögfræðiálitið um leið og honum berst það í hendur og taka ákvörð- un um að setja nýjan landlækni til þess að sinna þessu máli. ■ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Íslendingar hafa enga sérstaka varaáætlun til að vinna eftir ef miklar tafir verða á fullgild- ingu samningsins. STAÐA FULLGILDINGARFERLIS Í AÐILDARLÖNDUM EVRÓPU- SAMBANDSINS: Pólland og Kýpur hafa þegar fullgilt stækkunarsamning ESB og stefna að fullgildingu EES-samnings fyrir árslok 2003. Þýskaland, Portúgal, Lúxemborg, Lit- háen, Malta, Danmörk, Slóvakía og Tékkland hafa fullgilt stækkunarsamn- ing ESB og stefna að fullgildingu EES- samningsins fyrir 1. maí 2004. Finnland, Svíþjóð, Eistland, Bretland og Ungverjaland stefna að staðfestingu beggja samninga í árslok 2003 eða í byrjun árs 2004. Írland, Frakkland, Belgía, Slóvenía, Lett- land, Ítalía og Spánn stefna að fullgild- ingu stækkunarsáttmála ESB fyrir árslok og EES-samningsins fyrir 1. maí 2004. Austurríki, Holland og Grikkland stefna að fullgildingu beggja samninga í árs- byrjun 2004. LÍFEYRIR Landssamtök lífeyrissjóða segja að almenn þátttaka launafólks varðandi viðbótarlífeyris- sparnað dragi úr einkaneyslu og ætti þannig að hamla gegn þenslu í þjóðfélaginu. FERÐAMANNASTAÐIR LOKAÐIR Vinælir ferðamannastaðir á Grikklandi lokast í tvo daga vegna verkfalls verktaka sem krefjast meira starfsöryggis. Á meðal staðanna er Akrópólishæð. ■ Evrópa

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.