Fréttablaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 17
17MÁNUDAGUR 17. nóvember 2003 ■ Afmæli ■ Andlát ■ Jarðarfarir Það er talsvert síðan ég lauk viðað þýða Njálu á esperantó en það er rétt, hún var að koma út í Hollandi,“ segir Baldur Ragnars- son, fyrrum menntaskólakennari við Menntaskólann í Hamrahlíð og esperantósérfræðingur. Baldur segir ekki vitað hve margir tali tungumálið en giskað sé á að milli hálf og ein milljón manna tali og skilji málið. „Það eru á annað hundrað ár síðan það birtist fyrst en höfundurinn, Za- menhof, var af gyðingaættum og átti lengstum heima í Varsjá. Helsti kosturinn við esperantó er að það er algjörlega hlutlaust og tilheyrir engri sérstakri þjóð. Málfræðin er gerð eins einföld og hægt er, í málinu eru engar beyg- ingar en orðaforðinn er að mest- um parti úr Evrópumálunum.“ Baldur segir að fyrir mörgum árum hafi Hrafnkels saga Freys- goða og Völuspá verið gefin út í Svíþjóð í þýðingu hans. „Ég hef þýtt Sjálfstætt fólk og sömuleiðis Eddukvæðin, Gylfaginningu ásamt goðsagnaköflunum í Skáld- skaparmálum Snorra-Eddu sem bíða eftir að verða gefin út,“ segir Baldur, sem nýlega er hættur kennslu og fæst við þýðingar og esperantókennslu í frístundum. ■ Tímamót BALDUR RAGNARSSON ■ þýddi Njálu, sem var að koma út á esperantó í Hollandi. Njála á esperantó ■ Nýjar plötur BALDUR RAGNARSSON Eftir hann var að koma út þýðing á Njálu í esperantó hjá stóru forlagi í Hollandi. Skrekkur að hefjast Skrekkur, hæfileikakeppnigrunnskóla Reykjavíkur og ÍTR, verður nú haldinn í þrett- ánda sinn. Keppnin fer fram í Borgarleikhúsinu í dag og á morg- un og svo næsta mánudag og þriðjudag. Tuttugu og tveir grunnskólar í Reykjavík taka þátt í Skrekki í þetta sinn og er liðun- um er skipt niður á þrjú keppnis- kvöld en tvö lið komast í úrslit eft- ir hvert kvöld. Atriðin sem taka þátt í Skrekki eru í langflestum tilfellum valin í forkeppnum innan skólanna en lið Hagaskóla bar sigur úr býtum í keppninni í fyrra með atriðið Ópið. Unga kynslóðin leggur allt í sölurnar fyrir keppnina og gríðar- legur metnaður hefur einkennt at- riðin undanfarin ár. ■ ÚT ER KOMIN safnplata með poppsveitinni Rikshaw sem átti gríðarlegum vin- sældum að fagna um miðjan níunda áratuginn. Á plöt- unni eru 14 lög frá ferli sveitarinnar, en hún starfaði frá árunum 1985-1990, og þar á meðal má finna slagarana Into the Burn- ing Moon, Great Wall of China og Promises Promises. Einnig eru á plötunni þrjú lög sem unnin eru á þessu ári. Skífan gefur út. ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON út- varpsmaður hefur aftur raðað saman safnplötu undir merkjum Rokklands. Pakkinn í ár er bita- stæður, tvöföld safnplata sem inniheldur 40 lög. Á fyrri disknum eru þau rokklög sem Óla Palla þykja hvað áhuga- verðust af liðnu ári. Á seinni plötunni kafar Óli í rætur rokksins og er sá diskur því stút- fullur af klassískum rokklögum. Öll eru lögin erlend nema tvö. Það eru The Long Face með Mín- us og Japanese Policeman með Kimono. Skífan gefur út. Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndagerð- armaður, 55 ára. Anna Líndal myndlistarmaður, 46 ára. Ágústa Olga Þorkelsdóttir, Reykjahlíð 10, Reykjavík, lést föstudaginn 14. nóv- ember. Sigurrós Fanndal Torfadóttir, frá Hvíta- dal, lést sunnudaginn 2. nóvember. Út- förin fór fram í kyrrþey. 13.30 Júlíus J. Steingrímsson rafvirkja- meistari, áður Lyngheiði 10, Selfossi, verður jarðsunginn frá Áskirkju. 13.30 Guðrún Pétursdóttir, Bjarmalandi 14, verður jarðsungin í Bústaðakirkju. MARTIN SCORSESE Bandaríski leikstjórinn Martin Scorsese kom í heiminn árið 1942. 17. nóvember

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.