Fréttablaðið - 17.11.2003, Page 30

Fréttablaðið - 17.11.2003, Page 30
Ég hafði mjög gaman af að geraþessa aðgerð á Breka,“ segir Ólafur Einarsson lýtalæknir, sem lagaði munnhol holgóma Cocker spaniel hunds. Ólafur segir að hundurinn hafi fæðst með þennan galla og klofa úr nös niður í munnhol þannig að tungan hafi leitað upp í nefið. „Ég hafði mjög gaman af því að geta gert þessa aðgerð á hundinum sem gerði það að verkum að hon- um leið betur,“ segir Ólafur, sem sjálfur er hundaeigandi og á for- láta veiðihund af Weimaraner teg- und. Eigandi hundsins var Stefán Hreiðarsson barnalæknir en ekki var hægt að gera aðgerðina fyrr en Breki var orðinn nógu gamall til að þola hana. „Þetta var tiltölu- lega auðveld aðgerð sem heppnað- ist mjög vel,“ segir Ólafur. Breki hefur nú eignast nýtt heimili í Grafarvogi og nýja eig- endur því barnabörn Stefáns og konu hans Margrétar voru svo hrædd við hundinn. „Hann er ynd- islegur og heldur að hann sé kóng- urinn á heimilinu. Hann hegðar sér samkvæmt því og er hvers manns hugljúfi,“ segir Sigríður Birgisdóttir, sem ættleiddi Breka. „Ég er alltaf heima og það fer vel um hann hjá okkur,“ segir hún al- sæl með þennan fallega hund sem hefur fengið bót meina sinna. ■ Hrósið 30 17. nóvember 2003 MÁNUDAGUR TÓNLIST Í fyrra kom poppsveitin Í svörtum fötum sér fyrir alvöru á kortið sem þungavigtarsveit í ís- lensku tónlistarlífi. Í ár hreppti Jón Jósep Snæbjörnsson aðal- hlutverkið í Grease-söngleikn- um og söng um koppafeiti þess á milli sem hann framleiddi svita á dansgólfum skemmtistaðanna. Nú er þriðja platan, Tengsl, kom- in út. „Okkur þótti rosalega vænt um þá síðustu en núna komumst við að því að það er hægt að gera svo margt við lögin eftir að búið er að hljóðrita hljóðfærin,“ segir Jónsi. „Okkur gafst ekki eins mikill tími síðast til þess að fara út í einhverjar krúsídúllur.“ Hafþór Guðmundsson sá um hljóðfitl en Jónsi færir sig upp á skaftið hvað lagasmíðar varðar. Liðsmenn sveitarinnar skipta þó á milli sín laga- og textasmíðum en þótt undarlegt megi virðast samdi Jónsi ekki texta lagsins Ekkert að fela, sem var vinsælt í sumar og margir höfðu talið að væri svar Jónsa við þrálátum orðrómi um kynhneigð hans. „Ég held að Palli trommari hafi reyndar verið að hugsa um mig þegar hann samdi textann. Þetta hefði verið mjög gott svar hjá mér við kjaftasögunum, en Palli var bara sneggri til.“ Í einu lagi á plötunni, Langar til að lifa, mæta liðsmenn Igore á hljóðrásirnar. „Ég hringdi í Igore og spurði hvort þau vildu koma og gera eitthvað. Þau komu samdægurs og unnu í þessu frá klukkan ell- efu um kvöldið til klukkan sjö um morguninn. Á þeim tíma var allur textinn saminn og allar rímur rappaðar inn. Ég held að hiphoppsenan mætti gefa þeim meiri gaum því þau eru líklegri til þess að selja miklu fleiri plöt- ur og fá fleiri á böll og tónleika en neðanjarðarrappararnir,“ segir Jónsi að lokum. biggi@frettabladid.is Tónlist Í SVÖRTUM FÖTUM ■ Poppsveitin Í svörtum fötum gaf á dög- unum út þriðju breiðskífu sína, Tengsl. Þar fikra piltarnir sig áfram í hljóðvinnslu og fá nokkra góða gesti í heimsókn. ... fær kötturinn Flóki fyrir ein- staka stundvísi og elju við útburð á Fréttablaðinu. Igore klæðist svörtum fötum ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Paul Martin. Skaftahlíð 24. Sigfús Sigurðsson. Orri Vigfússon úr laxinum í brennivínið Eiður með milljóna- samning við Adidas í dag Með fulla vasa af grjóti Árni laus úr steininum Í SVÖRTUM FÖTUM Jónsi segir uppáhaldslagið sitt á plötunni vera Þrá vegna þess hversu mikil vinna var lögð í lagið. Útgáfutónleikarnir verða í Borgarleikhúsinu 20. nóvember. BREKI FYRIR AÐGERÐ Tungan átti það til að koma út um nefið á Breka. RÉTT EINS OG MANNFÓLKIÐ Ólafur segist hafa gert aðgerðina á sama hátt og hann gerir við mannfólkið. BREKI FULLFRÍSKUR Nú nokkrum mánuðum eftir aðgerð Ólafs Einarssonar lýtalæknis er Breki kátur og hress með eigendum sínum. Lýtalæknir lagaði holgóma hund HundalífCOCKER SPANIEL HUNDURINNBREKI ■ fæddist holgóma. Hann var svo lán- samur að Stefán Hreiðarsson barnalækn- ir eignaðist hann og fékk vin sinn Ólaf Einarsson lýtalækni til að gera á honum aðgerð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.