Fréttablaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 31
■ Nýjar bækur
31MÁNUDAGUR 17. nóvember 2003
Hún á mikið hrós skilið fyrirað hafa haldið út öll þessi ár
með mér,“ segir Júlíus Hafstein,
formaður Afmælisnefndar
heimastjórnar, um eiginkonuna
Ernu Hauksdóttur. „Hún er alltaf
í jafn góðu skapi. Það segir
meira um hana en nokkuð
annað.“
■ Konan mín
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt: 1 skarar framúr, 6 á húsi, 7 ell-
efu, 8 sk.st., 9 sær, 10 hestur, 12 svar, 14
málmur, 15 á fæti, 16 í röð, 17 tíma-
mæla, 18 safi.
Lóðrétt: 1 líkamshluti, 2 tré, 3 tveir
eins, 4 klaufdýrin, 5 bein, 9 hrópa, 11
kunna skil á, 13 áflog, 14 hestur, 17
stefna.
Lausn.
Lárétt: 1bestur, 6ris,7x1,8ik,9haf,
10jór, 12ans,14eir, 15il,16st,17úra,
18saft.
Lóðrétt: 1bris,2eik,3ss,4uxarnir, 5rif,
9hóa,11vita,13slag,14ess,17út.
Hemmi Gunn gerði sér lítiðfyrir eftir alvarleg veikindi
og brá sér vestur á Þingeyri við
Dýrafjörð þangað sem hann á
rætur að rekja. Þar var hann
veislustjóri á árlegu hjónaballi
þeirra Dýrfirðinga.
Góður rómur var gerður að
stjórn Hemma og leysti hann hlut-
verk sitt með einstakri prýði, enda
fagmaður við að skemmta fólki.
Mikið fjör og mörg skemmtiat-
riði voru í boði og segir á Þingeyr-
arvefnum að skemmtunin, sem
haldin var þann 1. nóvember, hafi
heppnast einstaklega vel.
Hemmi sagði ekki annað hafa
komið til greina en að mæta þar
sem það hafi alltaf staðið til, burt-
séð frá öllum veikindum. „Þetta
er yndislegt fólk og ég fann já-
kvæða strauma frá öllum salnum.
Aðeins mánuður var liðinn frá
áfallinu og engum datt í hug að ég
gæti staðið við mitt. Læknarnir
botna ekki upp né niður í neinu og
ef ég á að segja eins og er ég
hressari nú en í mörg ár,“ segir
Hemmi, sem skemmti sér kon-
unglega á hjónaballinu. ■
HEMMI GUNN
Hann lét ekki alvarleg veikindi aftra sér frá
því að bregða sér vestur á Þingeyri og
skemmta fólki á árlegu hjónaballi þeirra
Dýrfirðinga.
Hjónaball
HEMMI GUNN ■
Er hressari en nokkru sinni fyrr. Aðeins
mánuði eftir alvarlegt hjartaáfall var
Hemmi mættur vestur í Dýrafjörð og
skemmti vinum sín með röggsamri
veislustjórn.
Hemmi skemmti í Dýrafirði
ÞYKKSKINNA er sunnlenskar
þjóðsögur og þættir eftir Helga
Hannesson sem eru að koma út
um þessar mundir. Það er Sunn-
lenska bókaútgáfan sem gefur
bókina út. Þykkskinna er úrval
sagnaþátta og ljósmynda. Sagt er
frá kunnum héraðsdraugum
Rangæinga eins og Kotsmóra og
Gunnari Ívars. Þá eru kynntir til
sögunnar álfar og skrímsli auk
þess sem fjöldi Rangæinga fyrri
tíðar er leiddur fram á sjónvar-
sviðið.
HUNDABÓKIN, þýdd og staðfærð
af Brynju Tomer, er komin út á
vegum Eddu miðlunar. Í henni er
að finna hafsjó af fróðleik í máli
og myndum um allflestar hunda-
tegundir í heiminum. Í inn-
gangsköflum bókarinnar er fjall-
að um sögu og uppruna hunda,
líkamsbyggingu, ræktun, teg-
undahópa og val á hundum. Þá er
í bókarlok sérstakur kafli eftir
Brynju um hunda og hundahald á
Íslandi. Bókin er unnin í samráði
við fjölda sérfróðra aðila hér-
lendis og hefur þýðandinn kapp-
kostað við að laga bókina að ís-
lenskum aðstæðum.