Fréttablaðið - 17.11.2003, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Á tímum þeirrar alþjóðavæðing-ar sem hér áður fyrr var köll-
uð „ameríkanísering“ gerast at-
hyglisverðir hlutir úti í heimi – og
reynslan sýnir að það sem gerist
úti í heimi gerist einnig á Íslandi,
bara ofurlítið seinna. Maður er
nefndur Cleveland Evans og er
sálfræðingur við háskóla í Nebr-
askafylki í Bandaríkjunum. Hann
hefur rannsakað mannanöfn þar
vestra í aldarfjórðung og hefur nú
skýrt frá því að greinilega megi
sjá tilhneigingu meðal foreldra í
þá átt að skíra börn sín eftir fræg-
um vörumerkjum, væntanlega í
þeirri von að dýrðarljómi og gifta
vörumerksins fylgi barninu.
L’OREAL, CHEVROLET og
Timberland eru vinsæl nöfn á
stráka, en Armani er aðallega not-
að á stúlkubörn, einhverra hluta
vegna. Del Monte, ávaxtanafnið,
er notað á drengi, sömuleiðis
Courvoisier, eftir konjakinu, og
Canon, eftir myndavélum og ljós-
ritunarvélum. Og árið 2000 voru
tveir drengir þar vestra skírðir
ESPN eftir íþróttarásinni frægu,
annar í Texasríki, hinn í Michigan.
Fimm stúlkur á árinu voru skírðar
Celica eftir hinni vinsælu Toyota-
bifreið.
ÞESSI TÍSKA er ekki ennþá
komin til Íslands, en þegar hún
loksins kemur velja foreldrarnir
vonandi íslensk merkjaheiti á
krógana. Þá munu systkini geta
heitið BAUGUR og LYFJA án þess
að mannanafnanefnd fái nokkuð að
gert. Trúlega mun lengri tími líða
áður en nöfn eins og McDonald,
Benetton, Dior og Hummer hafa
unnið sér þegnrétt í málinu.
Í NOREGI hins vegar hafa menn
áhyggjur af því að alþjóðavæðing-
in – og þá fyrst og fremst tölvu-
notkun – sé komin vel á veg með
að eyða úr málinu nöfnum sem
innihalda Æ, Ö og Å, en þessir
bókstafir tíðkast ekki í stafrófi
Internetsins. Þetta er fyrirkvíðan-
legt fyrir Íslendinga sem eiga
mörg falleg nöfn sem munu
hverfa ef foreldrar fara að forðast
að gefa börnum sínum nöfn sem
innihalda íslenska stafi eins og Á,
É, Í, Ð, Ý, Þ, Æ og Ö. Þá munu þær
Þóra, Gyða og Sigríður hverfa fyr-
ir fullt og allt úr máli okkar og
sömuleiðis Hörður, Þráinn, Össur
og Ægir og fleiri.
Alþjóðleg
mannanöfn
L Á G M Ú L A 8 • S Í M I 5 3 0 2 8 0 0 • W W W. O R M S S O N . I S