Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 4
4 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Hversu lengi endist bensínstríðið?
Spurning dagsins í dag:
Markar vopnafundur íslensku
sprengjuleitarmannanna í Írak
tímamót?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
18,0%
27,8%
Út vikuna
43,6%Lengur
Nokkra daga
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Saddam Hussein nýtur stöðu stríðsfanga:
Margir Írakar ósáttir
GENF, AP Framkvæmdaráð Íraks er
ósátt við að Bandaríkin skuli líta á
Saddam Hussein sem stríðsfanga.
„Ég held að þetta sé slæm
ákvörðun,“ segir Mahmoud
Othman, einn meðlima ráðsins.
„Bandaríkjamenn hafa engan rétt
til að taka slíka ákvörðun því það
er íraska þjóðin ein sem getur tek-
ið ákvörðunina. Íraska þjóðin vill
sækja Saddam til saka fyrir glæpi
hans samkvæmt íröskum lögum.“
Samkvæmt Genfarsamning-
unum um meðferð stríðsfanga
er einungis hægt að sækja þá til
saka fyrir glæpi gegn mannkyni
fyrir alþjóðlegum dómstóli eða
fyrir dómstóli í hernámsríkinu,
sem í þessu tilviki eru Banda-
ríkin.
Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að Saddam Hussein hafi
verið stríðsfangi alveg frá því að
hann var handtekinn. Það breyti
því ekki að unnt verði að draga
hann fyrir dómstól í Írak, eins og
Bandaríkin hafa lýst yfir vilja til
að gera.
Ian Piper, talsmaður Alþjóða-
nefndar Rauða krossins í Genf,
segir það fagnaðarefni að staða
Saddams hafi verið skilgreind.
Alþjóðlegi Rauði krossinn
krefst þess enn að fá að hitta
Saddam Hussein hið fyrsta, enda
er það ófrávíkjanleg regla Rauða
krossins að ræða við alla fanga
sem handteknir eru í tengslum við
stríðsátök. ■
Vinnuhópur lögreglu
gegn vélhjólaklíkum
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri sker upp herör gegn
glæpaklíkum sem reyna að fóta sig á Íslandi. Vitað er að útsendarar
Bandidos og Hells Angels komu til Íslands í fyrra.
GLÆPAHRINGIR Fulltrúar frá tveim-
ur stríðandi vélhjólaklíkum,
Bandidos og Hells Angels, komu
til Íslands á seinasta ári. Embætti
ríkislögreglustjóra fylgdist með
ferðum „rokkar-
anna“ svoköll-
uðu og er í víð-
tæku samstarfi
við lögregluyfir-
völd á hinum
Norðurlöndun-
um til að sporna gegn vél-
hjólaklíkunum.
Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri segir að ríkislög-
reglustjórar Norðurlandanna hafi
tekið um það ákvörðun fyrir
nokkrum árum að berjast saman
gegn skipulagðri glæpastarfsemi,
hverju nafni sem hún nefnist.
„Í framhaldi af þeirri ákvörðun
var lögreglustjórunum á Norður-
löndunum kynnt þessi afdráttar-
lausa afstaða ríkislögreglustjór-
anna og veittur stuðningur til þess
að gera það sem unnt er svo koma
megi í veg fyrir meðal annars af-
brotastarfsemi af þeim toga sem
Hells Angels og Bandidos stunda.
„Ég skipaði á sínum tíma
vinnuhóp með fulltrúum lögreglu
og tollgæslu til þess að leiða þetta
starf hér á landi. Starf vinnuhóps-
ins hefur tekist vel og skilað ár-
angri. Starfið verður eflt á næst-
unni,“ segir Haraldur.
Hann segir að aðgerðir lög-
reglu, tollgæslu og Útlendinga-
stofnunar séu margþættar.
„En almenningur verður mest
var við þær ákvarðanir sem yfir-
völd hafa tekið um að snúa með-
limum þessara samtaka til síns
heima. Umtalsverð vinna fylgir
þeirri stefnu sem mörkuð hefur
verið og töluverður kostnaður fell-
ur á embættin. Ég tel að um lang-
tímafjárfestingu sé að ræða enda
eru það markmið skipulagðra
glæpasamtaka að auka völd sín og
hagnað,“ segir Haraldur. Hann
segir að glæpasamtök á borð við
Bandidos og Hells Angels beini
baráttu sinni gegn yfirvöldum og
reyni að ná fótfestu, en þó helst
þar sem viðbrögð og mótstaða
yfirvalda er veik og ómarkviss.
„Nauðsynlegt er að yfirvöld
geri allt sem í þeirra valdi stend-
ur til þess að stemma stigu við
þeirri ógn sem samfélaginu getur
stafað af skipulagðri glæpastarf-
semi,“ segir Haraldur Johannes-
sen.
Embætti ríkislögreglustjóra
óskar eftir upplýsingum sem að
gagni mættu koma á netfangið
rls@rls.is
rt@frettabladid.is
BIÐRÖÐ ALLAN DAGINN
Sexfaldur pottur freistaði margra.
Sexfaldur vinningur:
Þrír með
allar tölur
LOTTÓ Þrír miðahafar höfðu allar
tölurnar réttar í Lottóinu. Hver
þeirra fær tæpar 16 milljónir
króna í verðlaun. Réttu tölurnar
voru 4, 14, 18, 22 og 24 en bón-
ustalan 28.
Afgreiðslufólk Happahússins í
Kringlunni hafði vart undan að af-
greiða lottómiða í gær og ljóst að
margir gátu hugsað sér að næla í
sexfaldan vinning.
„Hér er búið að vera mikið að
gera alla þessa viku. Þegar pottur-
inn er svona margfaldur kaupa
fleiri miða. Fólk vill auðvitað ná
sér í stærri vinninga,“ sagði Frið-
rik Þorsteinsson, eigandi Happa-
hússins. Þar var biðröð við sölu-
kassa frá því klukkan tíu í gær-
morgun. „Á venjulegum laugar-
dögum eru reyndar líka biðraðir
en ekki svona miklar.“ ■
ÁREKSTUR
Engin slys urðu á fólki.
Reykjavík:
Harður
árekstur
ÁREKSTUR Engin slys urðu á fólki
þegar tveir bílar lentu í hörðum
árekstri á gatnamótum Suður-
landsvegar og Vesturlandsvegar
síðdegis í gær, en bílarnir voru
fjarlægðir með kranabíl.
Bíll sem ók norður eftir Suður-
landsvegi ók í veg fyrir bíl sem ók
austur eftir Vesturlandsvegi. Gult
blikkandi ljós var á umferðarljós-
um þegar slysið átti sér stað. ■
Skilnaðarpappírar verð-
andi drottningar:
Í traustar
hirslur
MADRID, AP Dómstóll í Madrid á
Spáni hefur fengið afhentan 600
kílógramma þungan peningaskáp
sérstaklega til þess að geyma þar
í alla skilnaðarpappíra verðandi
drottningar landsins. Ekki þykir
þorandi að geyma þá í ótraustari
geymslu en þessum rammgerða
skáp.
Letizia Ortiz er heitkona krón-
prinsins á Spáni, Felipe, en hún
skildi fyrir nokkrum árum við
fyrrverandi eiginmann sinn,
Alonso Guerrero. Skilnaðar-
pappírarnir eru geymdir hjá dóm-
stólnum í Arganda del Rey. ■
BUSH GEFUR SKATTATÓN George
W. Bush, forseti Bandaríkjanna,
gaf tóninn fyrir kosningabaráttu
ársins í vikulegu útvarpsávarpi
sínu þegar hann beindi spjótum
sínum að frambjóðendum
demókrata, sem vilja taka til
baka skattalækkanir þær sem
forsetinn hefur komið í gegnum
þingið. Hann segir skattalækkan-
irnar hafa komið hjólum efna-
hagslífsins af stað á nýjan leik.
RAÐGIFTINGAR TIL FJÁR Fertug
kona í Bandaríkjunum, Dezerrie
Cortes að nafni, á yfir höfði fang-
elsi fyrir að hafa 27 sinnum
gengið í hjónaband með útlend-
ingum sem vildu tryggja sér
dvalarleyfi í Bandaríkjunum.
Hún mun hafa haft lífsviðurværi
sitt af þessu, því jafnan fékk hún
vænar fúlgur fyrir.
SÓLEY RAGNARSDÓTTIR
„Ég kaupi ekki alltaf Lottómiða, bara þegar
potturinn er fimm-
faldur eða sexfaldur.
Ég nota ekki ein-
hverja eina sérstaka
aðferð, set bara af-
mælistölur eða ein-
hverjar happatölur.
Ætli líkurnar á að ég
vinni séu ekki ansi
litlar.“
GUÐMUNDUR
ÞORVALDSSON
„Ég kaupi oft miða,
ekki bara þegar pott-
urinn er margfaldur.
Ég nota alltaf sömu
aðferð, er með tvær
raðir ákveðnar og
svo bara sjálfval.“
UNNUR BRYNJA GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég kaupi sjaldan
Lottómiða og frekar
ef hann er margfald-
ur. Ég nota bara sjálf-
val og kaupi bara
einn miða. Ég held
að líkurnar á að ég
fái stóra vinninginn
séu mjög litlar.“
Góð byrjun á skíðavertíð:
Nýttu gott
skíðafæri
SKÍÐI Forsvarsmenn skíðasvæða
voru ánægðir með aðsóknina í
gær. „Á Akureyri hefur verið
hláka en á sama tíma snjóaði hér í
fjöllin og gerði gott færi enn
betra,“ segir Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðumaður í Hlíðar-
fjalli. „Ég held að þetta sé besta
byrjun á skíðavertíð í þó nokkurn
tíma.“
„Þetta fer ágætlega af stað og
mun betri staða með snjó en ég
hef séð í mörg ár,“ segir Ómar
Skarphéðinsson, forstöðumaður á
Hengilsvæðinu.
Einn drengur fór á slysadeild
eftir að hafa meiðst í Bláfjöllum. ■
■ Bandaríkin
SADDAM HUSSEIN
Rauði krossinn vill fá að kanna aðbúnað
hans eins og annarra stríðsfanga.
HARALDUR JOHANNESSEN
Leiðir baráttu gegn glæpasamtökum sem reyna að fóta sig á Íslandi.
ÆVISAGNARITUN Þrír þekktir ævi-
sagnaritarar eru sammála um að
mikla umræðu um vinnubrögð
Hannesar Hólmsteins Gissurar-
sonar við gerð ævisögu Halldórs
Laxness megi að hluta til rekja til
þess að Hannes sé bæði þekktur
og umdeildur í þjóðfélaginu.
Á fundi Reykjavíkurakadem-
íunnar greindu Þórunn Valdimars-
dóttir, Viðar Hreinsson og Guðjón
Friðriksson frá vinnubrögðum sín-
um við ritun ævisagna, en þau eru
öll kunn af slíkum verkum. Þau
kváðust öll ánægð með þá umræðu
sem átt hefur sér stað um meðferð
heimilda og vinnubrögð við gerð
fræðilegra bókmenntaverka á
undanförnum vikum.
Fundarmenn vildu ekki fella
dóm yfir bók Hannesar. Guðjón
Friðriksson sagði þó að sér sýnd-
ist „í fljótu bragði“ að Hannes
væri „alveg á mörkunum“.
Þórunn sagðist telja að ekki
væri til það listaverk sem ekki
væri hægt að rífa niður og að það
„versta sem maður [lendi] í [sé]
að skrifa bók sem skarast inn á
akur einhvers annars.“
Hannes var viðstaddur og lagði
til við fundarmenn að haldin yrði
ráðstefna um ævisagnaritun.
Hann kvaðst hafa sent forseta
heimspekideildar Háskóla Íslands
bréf þess efnis og óskað eftir að-
komu Reykjavíkurakademíunnar
að slíkri ráðstefnu. ■
Ævisagnaritarar fagna umræðu um vinnubrögð ævisöguritara:
Vilja ekki dæma bók Hannesar
ÆVISÖGURITARAR Á RÖKSTÓLUM
Þórunn Valdimarsdóttir, Guðjón Friðriksson og Viðar Hreinsson ræddu um vinnubrögð við
ritun ævisagna á fundi Reykjavíkurakademíunnar í gær.
„Starfið
verður eflt á
næstunni.
10,5%Helgina
Meintir ræningjar:
Í varðhaldi
BANKARÁN Tveir menn sem voru
handteknir seint í fyrrakvöld, grun-
aðir um vopnað rán í SPRON í Há-
túni á föstudag, hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald.
Mennirnir, sem eru fæddir árin
1986 og 1978, hafa áður komið við
sögu lögreglu.
Mennirnir voru mjög ógnandi og
brutu meðal annars gler í einni
gjaldkerastúkunni. Þeir fengu pen-
inga afhenta eftir að hafa verið með
ógnanir og læti. ■