Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 14
15SUNNUDAGUR 11. janúar 2004
þessu verkefni. Það var trausts-
yfirlýsing sem hjálpaði til við
áframhaldandi fjármögnun verk-
efnisins.“ Í framhaldinu tók
Landsbankinn svo að sér yfirum-
sjón með fjármögnun verkefnis-
ins. Þar með var hægt að hefjast
handa. Björn leggur allt undir.
„Ég varð að líftryggja mig fyrir
200 milljónir. Það var ein af kröf-
um bankans. Þetta var langt og
strangt ferli.“ Björn segir Lands-
bankann koma mjög myndarlega
að aðstöðu fyrir börn í stöðinni.
„Þetta er náttúrlega mjög já-
kvætt verkefni og bankinn sér í
þessu ýmsa möguleika fyrir sig.“
Heilsurækt hefur vaxið fiskur
um hrygg síðustu áratugi. Þegar
Björn stofnaði fyrstu líkamsrækt-
arstöðina var ekki um auðugan
garð að gresja. „Ég byrjaði sjálfur
að æfa og fannst vanta fjör í
þetta. Það var nú ástæðan fyrir
því að ég fór út í þetta á sínum
tíma.“ Fyrsta stöðin var í Skeif-
unni 3 og áður en Björn vissi af
var hann búinn að sprengja af sér
húsnæðið. Þá var flutt í Skeifuna
19. Ekki leið á löngu þar til það
húsnæði var sprungið og ný stöð
opnuð í Fellsmúlanum. „Menn
höfðu ekki mikla trú á þessu hjá
mér í byrjun. Í hvert skipti sem
ég hef fært út kvíarnar hafa
margir verið á því að nú sé ég
endanlega genginn af göflunum.“
Út úr svip hans má lesa að það
komi honum ekkert á óvart að
svipað sé uppi á teningnum nú.
Fjölskyldan öll með
Björn viðurkennir að hann sé
þrjóskur og að hann hafi þurft á
því að halda við uppbyggingu
fyrirtækisins. Hann hefur ekki
staðið einn, því með honum er
konan hans, Hafdís Jónsdóttir,
sem er hægri hönd hans og sér
um leikfimi- og danstímana í stöð-
inni. „Það má segja að öll fjöl-
skyldan vinni með mér í þessu,
bæði foreldrar og systkini.“ Hann
segir hluta af því trausti sem
byggst hafi upp kringum fyrir-
tækið sprottinn af því að hann
hafi gengið lengra í þjónustu en
aðrir. „Ég var með opið allan sól-
arhringinn um tíma og rak stöð-
ina á Akureyri í langan tíma og
tapaði á henni peningum allan
tímann.“ Fyrir utan það að hafa
verið vakandi fyrir nýjungum í
líkamsrækt sé stuðningur fjöl-
skyldunnar mikilvægur: „Það er
stór partur af velgengninni að
það eru allir í fjölskyldunni að
fylgjast með því að hlutirnir séu í
lagi. Svo hef ég verið mjög hepp-
inn með starfsfólk.“
Björn segir að vel hafi spilast
úr þessu. Húsnæðið í Fellsmúlan-
um seldist á réttum tíma. „Gústi
vinur minn í Adidas segir að það
sé lukka yfir mér. Við veiðum
stundum saman og hann segir að
það sé sama hvar ég hendi út, það
sé fiskur. Ég held það verði að
fylgja í viðskiptum. Sumir eru
heppnari en aðrir og hitta á réttan
stað og stund.“
Vill þjóna öllum
Menn reyna að hagnast í við-
skiptum, en margt virðist benda
til þess að lykilatriði þess að ná
árangri sé að hafa trú og gaman af
því sem menn eru að gera. „Mað-
ur verður að hafa trú á því sem
maður er að gera. Ég er kannski
svo klikkaður, en peningarnir
hafa ekki verið sýnin. Peningar
veita manni ekki hamingju. Þeir
veita manni frelsi til athafna. Mín
sýn er að ég hef gaman af þessu
og þetta er þjóðþrifaverk; að
koma Íslendingum og þeim sem
heimsækja okkur í þetta um-
hverfi. Það er frábært að fá að
vinna við það.“
Frelsið hefur verið vel notað.
Byggingin og aðstaðan er glæsi-
leg. „Mitt markmið hefur alltaf
verið að þjóna öllum og með teng-
ingunni við sundlaugarnar tel ég
mig vera að ná til fleiri, sérstak-
lega eldra fólks og barna. Ég vil
ekki bara þjóna þeim sem líta vel
út. Ég vil þjóna þeim sem þurfa á
því að halda.“ Björn segist þegar
sjá árangurinn af þessari stefnu
en konum hefur fjölgað í við-
skiptamannahópnum við opnun
Lauga. Kynjahlutfallið er nokkuð
jafnt, en karlar hafa verið um
70% af viðskiptavinunum. Mark-
miðið er skýrt. Hver sem er á að
geta notið sín í Laugum. „Hér er
stefnt að því að allt verði til alls.
Erlendur gestur sem kemur hing-
að getur auðveldlega notið lífsins
og gleymt sér hérna heilan dag.“
Átta dagar í umhugsun
Í kjallaranum er helgidómur
hússins. Baðstofan. Hún er byggð
af miklum metnaði, og verk arki-
tektsins og Sigurðar Guðmunds-
sonar færa Laugar í annað veldi. Í
senn bað og slökunarparadís og
listræn upplifun. Verk Sigurðar
eru samofin aðstöðunni og hús-
næðinu. Í baðstofunni er meðal
annars foss sem er sköpunarverk
Sigurðar. „Ari Már kom til mín til
þess að ræða við mig hvernig
fossinn ætti að vera. Það vantaði
að ákveða hvernig grjót ætti að
vera í botninum svo hægt væri að
setjast niður. Ég mundi eftir verk-
um Sigurðar þar sem hann notar
slípað granít. Mér datt í hug að
hann ætti kannski afgangssteina.“
Björn hafði samband við Ara Erg-
is Magnússon, sem gert hafði
heimildarmynd um Sigurð. Sig-
urður vildi sjá hvað verið væri að
gera. Björn sýndi Sigurði í snjó og
krapa hvar fossinn ætti að vera og
reyndi að lýsa þessu fyrir honum.
„Ég fann að Sigurður hafði áhuga
á verkefninu. Ég held að það sé
vegna þess að honum fannst ég
nógu bilaður. Ég sagði honum að
það væri ekki búið að hanna foss-
inn og ef hann hefði áhuga þá
mætti hann koma að því. Ég sagði
honum líka að ég hefði ekki pen-
inga til að borga fyrir þetta. Sig-
urður sagði: „Ég ætla að hugsa um
þetta aðeins; í átta daga.“ Eftir
átta daga hringdi hann,“ segir
Björn og hlær.
Sigurður var búinn að leysa
málið. Hann útvegaði granít frá
Kína í baðstofuna og bauð Birni að
hann gerði listaverkin og fengi
umboðslaunin fyrir granítið fyrir
vikið. Það varð úr og tryggir gest-
um baðstofunar einstæða upplifun.
Björn og samstarfsmenn hans
náðu takmarkinu að opna Laugar
um áramót. Þar mátti ekkert fara
úrskeiðis. „Ég þakka það öllu því
frábæra fólki sem vann með okkur
að þessu.“ Hann lygnir aftur aug-
unum í hægindastólnum í arinstof-
unni. Meðvitundin um eigin líkam-
lega vanrækslu kveikir lokaspurn-
inguna. Hefðir þú haft þrek í þetta
ef þú hefðir sjálfur ekki stundað
líkamsrækt í öll þessi ár? Það er
svolítil þögn. „Ég held ekki,“ segir
Björn Leifsson glettinn.
haflidi@frettabladid.is
STUND MILLI STRÍÐA
Annirnar undanfarið hafa ekki gefið Birni Leifssyni mörg tækifæri til að njóta slökunar í arinstofu Lauga. Þar er lögð áhersla á að gestir
njóti hvíldar. Samtöl eru bönnuð ef fleiri en tveir eru í gufuböðum og arinstofu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA