Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 19

Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 19
20 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR Fólkið á bak við stefin Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í vikunni. Oft er á það bent á hátíðarstundum sem slíkum að tónlistin er víða í kringum okkur. Erfitt er að ímynda sér lífið án hennar. Ein er sú tegund tónlistar sem oft heyrist en lítið er talað um: stef í útvarpi og sjónvarpi. Fréttablaðið kannaði málið. Hvað ertu, tónlist? var eitt sinnspurt. Því verður ekki svarað hér en víst er að tónlistin er víða. Og að sama skapi er víst að hún skiptir máli. Hún slær tóninn. Sjónvarps- og útvarpstónlist – stef sem marka upphaf og endi vinsælla þátta á öldum ljósvakans – er gríðarlega mikilvæg og oftar en ekki er lagt nokkuð upp úr því að hafa hana góða. Gott stef er til dæmis nauðsyn- legt í upphafi sjón- varpsfréttatíma enda gefur það fyr- irheit um það sem koma skal, alveg eins og myndefnið sem birtist um leið. Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í vikunni og á slíkum hátíðarstund- um leggja forsprakk- ar í tónlistariðnaði stundum áherslu á það að tónlist sé alls staðar í kringum okkur – jafnvel án þess að við ger- um okkur grein fyrir því. Stefin eru dæmi um þetta. Fréttablaðið ákvað því að kanna málið nánar. Spurt er: hverjir – hvaða snillingar – sömdu þessi stef sem við þekkj- um öll úr sjónvarpi og útvarpi? Ókrýndur konungur stefjanna Máni Svavarsson – fyrrum meðlimur hljómsveitanna Cosa Nostra og Pís of keik– er einn þeirra tónlistarmanna sem gert hafa það gott í stefjagerðinni, bæði hvað varðar magn og gæði. Máni má í raun heita ókrýndur konungur stefjanna. Hann hefur samið stef og tónlist við fjölda sjónvarpsþátta og nægir þar að nefna Kastljósið, Brenni- depil, Spaugstofuna, Dópstríðið, Ísland í dag og fréttir Stöðvar 2. „Þetta er frábær vinna og ágætlega laun- uð,“ segir Máni, sem á 10 ár að baki í faginu. Hann kveður stefin verða til með ýms- um hætti en oft tali menn sig saman inn á niðurstöðuna. „Einu sinni fékk ég í hendur lista með tuttugu stikkorðum frá h u g a r f l u g s h ó p i vegna ónefnds þáttar. Þetta var furðulegur listi því á honum voru orð á borð við ungt og ferskt og klassískt og full- orðins. Ég þurfti því að semja stef sem bæði var ungt og gamalt og ferskt og klassískt. En það tókst og allir voru ánægðir.“ Barði iðinn við stefjagerð Íslenskum tónlistarmönnum gefst ekki alltaf færi á að semja stef við innlenda sjónvarpsþætti, á stundum fylgja þau þáttum að utan og á það bæði við um Viltu vinna milljón og Idol stjörnuleit auk þess sem sumir kjósa að kaupa tónlistina úr erlendum stefjabönk- um líkt og í tilviki Eldsnöggt með Jóa Fel. Barði Jóhanns- son, oftast kenndur við Bang Gang, hefur einnig verið iðinn við stefjagerðina þó held- ur hafi dregið úr því með auknum vinsæld- um hljómsveitarinnar. Hann samdi til að mynda flest stefin fyrir Skjá einn fyrstu starfsár stöðvarinnar og státar meðal annars af upphafslögum Fólks með Sirrý og Innlits/útlits. Þá samdi hann lagið fyrir Silfur Eg- ils, sem upphaflega var á Skjá einum en er nú á dagskrá Stöðvar 2. „Þetta er skemmtileg vinna. Ég hef verið fimm ár að gera eina plötu þannig að það er gott að hafa líka verkefni sem maður sér fyrir endann á, hefur bæði upp- haf og endi,“ segir Barði, sem segist næstum aldrei horfa á sjónvarp og því ekki verða fyrir mikilli truflun af eigin stefjum. „Ánægðastur er ég með stefið við menningarþáttinn Konfekt sem ég stýrði sjálfur ásamt Baldvini Jónssyni en svo er alltaf hress- andi að heyra upphafið á Silfri Egils,“ segir Barði, en nýjasta stefið úr hans smiðju er við Svínasúpuna á Stöð 2. Ekki auðvelt verk „Þetta getur verið æði mikil leit,“ segir Jón Egill Bergþórsson, dagskrárgerðarmaður hjá Sjón- varpinu, og bætir við að stefið skipti miklu máli. Hann hefur framleitt þætti á borð við Mósaík og Af fingrum fram og segir að stefið í síðarnefnda þættinum sé afar gott þar sem hann hafi stöku sinnum verið spurður um höfund- inn. „Málið er að í Af fingrum fram er ekkert stef, þátturinn byrjar á spjalli og endar á lagi sem Jón Ólafsson umsjónarmaður og gest- ur hans flytja. Samt veltir fólk stefinu fyrir sér!“ Jón Egill segir líka að það liggi greinilega misvel fyrir mönnum að semja stef. „Ég hef leitað til manna sem hafa samið mörg góð dægurlög en eftir talsverðan höfuðverk og margar tilraunir skiluðu þeir auðu.“ Rísandi stjörnur Nokkrum viðmælendum blaðs- ins bar saman um að Guðmundur Kristinn Jónsson úr hljómsveit- inni Fálkum væri rísandi stjarna í sjónvarpsstefjagerð. Hann gerði stefin við Atið og Mósaík, það síð- arnefnda reyndar með félaga sín- um Sigurði Guðmundssyni, en hann er líka í hljómsveitinni Fálk- um frá Keflavík. Að auki er Guð- mundur Kristinn hljóðmaður hjá Sjónvarpinu þannig að heimatök- in eru hæg. Athyglisvert er að Guðmundur Kristinn er ekki eini hljóðmaðurinn hjá Sjónvarpinu sem fæst við stefjagerð í hjáverk- um því Einar Sigurðsson kollegi hans samdi stefið við Stundina okkar. Einar spilar reyndar stund- um á bassa með Sinfóníuhljóm- sveitinni en það er önnur saga. Tvö klassísk stef Víkjum að endingu að tveimur landskunnum stefjum úr útvarp- inu – Ríkisútvarpinu. Yngra fólk heyrði margt hvert Dánarfregnir og jarðarfarir í fyrsta sinn í út- færslu Sigur Rósar í Englum al- heimsins. Stefið er hins vegar leik- ið á undan samnefndum dagskrár- lið á Rás 1 og er Jón Múli Árnason höfundur þess. Atli Heimir Sveins- son samdi hinsvegar fréttastef fyrir kvöldfréttir Ríkisútvarpsins, sem orðið er ófrávíkjanlegur hluti af íslenskri þjóðmenningu. Atli sjálfur segist hins vegar ekki heyra það nema örsjaldan þar sem hann leggi sig ekki sérstaklega eft- ir fréttunum. Hann rifjaði þó upp fyrir blaðamanni að sjálf Sinfóníu- hljómsveit Íslands leikur stefið og það undir hans stjórn. bjorn@frettabladid.is BARÐI JÓHANNSSON Barði í Bang Gang hefur verið mjög afkasta- mikill í stefjunum. Hann samdi flest stefin fyrir Skjá 1 á upphafsárum stöðvarinnar. ATLI HEIMIR SVEINSSON Tónskáldið samdi stefið fyrir kvöldfréttir Ríkisútvarpsins. Það er leikið af Sinfóníu- hljómsveitinni undir stjórn Atla. HLJÓMSVEITIN FÁLKAR Innan þeirrar hljómsveitar eru rísandi stjörnur í stefjagerð. JÓN MÚLI ÁRNASON Þulurinn og djassistinn samdi hið fornfræga stef við dánarfregnir og jarðarfarir. MÁNI SVAVARSSON Óhætt er að segja að hann sé ókrýndur konungur stefjagerðar á Íslandi. Máni hefur verið í bransanum í 10 ár og segir þetta frábæra vinnu og – sem er ekki verra – ágætlega launaða. Vorönn Kvennakórs Reykjavíkur 2004 Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur Kórskólinn hefur starfsemi sína miðvikudaginn 21. janúar 2004. Kórskóli er fyrir þá sem hafa mikinn söngáhuga. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18.00 til 19.30 í Hátíðarsal Sjómannaskólans við Háteigsveg. Kennari er Sigrún Þorgeirsdóttir Innritun hefst mánudaginn 12 janúar 2004 Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur. Æfingar hefjast mánudaginn 12 janúar 2004 kl. 16.00 Í Hátíðarsal Sjómannaskólans við Háteigsveg. Kórstjóri er Sigrún Þorgeirsdóttir Kvennakór Reyjavíkur Æfingar hefjast miðvikudaginn 14 janúar 2004 kl. 20.00 Í Hátíðarsal Sjómannaskólans við Háteigsveg. Kórstjóri er Sigrún Þorgeirsdóttir Innritunarsími er 896 6468 eftir kl. 16.00 HVERJIR SÖMDU HVAÐA STEF? Sjónvarpið: Fréttir - Birgir Tryggvason Kastljósið - Máni Svavarsson Spaugstofan - Máni Svavarsson Laugardagskvöld með Gísla Marteini - Kjartan Valdemarsson Dópstríðið - Máni Svavarsson Í brennidepli - Máni Svavarsson At - Guðmundur Kristinn Jónsson Mósaík - Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson Nýjasta tækni og vísindi - T-world Gettu betur - Magnús Kjartansson Stundin okkar - Einar Sigurðsson Stöð 2: Fréttir - Máni Svavarsson Ísland í dag - Máni Svavarsson Svínasúpan - Barði Jóhannsson Sjálfstætt fólk - Hljómsveitin Ske Silfur Egils - Barði Jóhannsson Skjár einn: Innlit/útlit - Barði Jóhannsson Fólk með Sirrý - Barði Jóhannsson Maður á mann - Halldór Ágúst Björnsson Ríkisútvarpið: Dánarfregnir og jarðafarir - Jón Múli Kvöldfréttir - Atli Heimir Sveinsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.