Fréttablaðið - 11.01.2004, Qupperneq 20
21SUNNUDAGUR 11. janúar 2004
Úr smákrimmum í hrossin
Kvikmyndagerðarmaðurinn Þor-
finnur Guðnason vakti síðast at-
hygli með heimildarmynd sinni
um smá-
krimmann
Lalla Johns.
Áður en
hann fór að
elta Lalla
með töku-
vélina um
undirheima
Reykjavík-
ur fylgdi
hann
hagamúsin-
ni Óskari
eftir í bráð-
skemmti-
legri mynd um ævintýri þessarar
krúttlegu músar. Þorfinnur hefur
aftur beint linsunni að dýraríkinu
en Háskólabíó frumsýnir á næst-
unni náttúrulífsmyndina Skjóni
fer á fjall. Þar fylgir hann
hringrásinni í lífi folalds en vinna
við myndina hefur staðið í tvö og
hálft ár.
Skákkennsla um helgar
Skákskóli Hróksins tekur til
starfa á fimm stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina. Boðið
verður upp á ókeypis skák-
kennslu fyrir krakka í 1.-6. bekk
og fer kennsla fram einu sinni í
viku það
sem eftir
lifir vetrar.
Farið verð-
ur yfir und-
irstöðuat-
riðin í skák
og slegið
upp skák-
mótum.
Nokkrir af bestu skákmönnum
landsins kíkja í heimsókn og tefla
fjöltefli. Róbert Harðarson, fyrir-
liði Hróksins og einn af betri
skákmönnum landsins, er skóla-
stjóri en Máni Hrafnsson er hon-
um til aðstoðar. Á laugardögum
verður teflt í Rimaskóla frá
klukkan 11 til 13, í Seljaskóla frá
14 til 16 og Salaskóla frá kl. 14 til
16. Á sunnudögum er kennsla í
Vesturbæjarskóla frá 11-13 og í
Félagsmiðstöðinni Selinu á Sel-
tjarnarnesi frá 14-16.
Nokkrir metrar af Hannesi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
ævisöguritari fór mikinn í
málsvörn sinni í Kastljósinu á
fimmtudaginn og eftir harkalegt
karp hans og Kristjáns Kristjáns-
sonar um frágang tilvitnana á
blaðsíðu 19 í bók Hannesar um
Halldór hefur að öllum líkindum
gert þessa til-
teknu síðu að
þeirri merk-
ingarþrungn-
ustu í sögu ís-
lenskra bók-
mennta. Það
sem stóð þó
upp úr þætt-
inum var
glaðhlakkaleg
yfirlýsing
Hannesar um að hann hefði nú
eignast tíu þúsund lesendur. Sölu-
tölur í jólabókauppgjörinu benda
hins vegar til þess að Hannes hafi
selt á bilinu 3-4.000 eintök af Hall-
dóri þannig að hann er væntan-
lega sannfærður um að það lesi í
það minnsta tveir Íslendingar
hvert selt eintak.
Jón Ásgeir í Silfrið
Egill Helgason fær Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóra Baugs, í
heimsókn í
Silfur Egils
á Stöð 2
klukkan 18
í kvöld. Jón
Ásgeir hef-
ur verið í
eldlínunni
á mörgum
vígstöðv-
um undan-
farið og
Egill ætlar að spyrja hann út í
ýmis umdeild mál sem honum
tengjast.
Slúðrað ásunnudegi
Það hefur sjaldan verið eins mikilaðsókn í fluguveiðiskólann og á
þriðja tug nemenda búnir að bóka
sig á námskeiðin 11.-13. og 13.-15.
júní,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson í
samtali við Fréttablaðið. Flugu-
veiðiskólinn við Langá á Mýrum
hefur gengið vel þau ár sem hann
hefur verið starfræktur.
„Hér er um að ræða byrjendur í
fluguveiði jafnt sem þá sem hafa
reynt að veiða í nokkur ár, en aldrei
fengið raunverulega tilsögn. Það er
sérstakt ánægjuefni að þetta skipt-
ist jafnt milli karla og kvenna og nú
eru t.d. 2 kvennaholl, 10-12 veiði-
konur í hvoru, búin að bóka veiði
næsta sumar, enda Langá fem-
ínistaá. Verðið fyrir tvo daga er
49.000 þúsund og er allt innifalið,“
sagði Ingvi Hrafn enn fremur.
Langá á Mýrum var feng-
sælasta laxveiðiáin síðasta sumar
og aldrei að vita hvað hún gerir
næsta sumar. Fyrsti flugulax sum-
arsins gæti jafnvel veiðst í Flugu-
veiðiskólanum, um miðjan júní,
það hefur gerst áður.
Lax-á komið með Flóðið á
leigu í samvinnu við Ármenn
„Við erum komnir með Flóðið í
Grenilæk á leigu í samvinnu við
Ármenn,“ sagði Stefán Sigurðsson
hjá Lax-á, en Lax-á hefur aukið
samstarf sitt við Ármenn upp á
síðkastið og býður upp á nokkur
veiðisvæði sem félagið hefur ver-
ið með.
„Flóðið er eitt frægasta sjóbirt-
ingssvæði á landinu og hefur veiðin
verið þar góð í gegnum árin. Veiðin
byrjar í maí og endar ekki fyrr en í
október. Sjóbirtingsveiðin er mest á
vorin og á haustin og yfir miðsum-
arið, júní og júlí, er frekar góð
bleikjuveiði. Verð á stöng er frá
7.500 upp í 15.000 krónur,“ sagði
Stefán í lokin.
FLUGUKASTNÁMSKEIÐ Flugukast-
námskeiðið hjá Kastklúbbi
Reykjavíkur hefst á morgun og er
fimm sunnudagskvöld í röð. Kennt
er frá kl. 20.00 til 21.40 og staður-
inn er Íþróttahús TBR, Gnoðavogi.
Mæting er klukkan 19.30 til skrán-
ingar og greiðslu þátttökugjalds,
sem er 6.500 krónur. Fólk er vin-
samlegast beðið um að mæta með
inniskó og góða skapið. Næsta
námskeið hefst svo strax að þessu
námskeiði loknu, sunnudagskvöld-
ið 15. febrúar. Það er ekki seinna
vænna fyrir veiðimenn að koma
sér á staðinn og fara að æfa köstin
fyrir sumarið, biðin styttist eftir
veiðitímanum.
VERÐSKRÁ Strengir voru að gefa
út verðskrá sína fyrir sumarið og
kennir þar margra grasa, en Þröst-
ur Elliðason og Strengir bjóða með-
al annars upp á veiðileyfi í Hvolsá
og Staðarhólsá, Breiðdalsá, Hrúta-
fjarðará og Síká, Minnivallarlæk
og Laxá á Nesjum.
UMDEILT VEIÐIBANN Sem kunn-
ugt er hefur verið gríðarleg óá-
nægja meðal íslenskra skotveiði-
manna vegna rjúpnaveiðibanns er
umhverfisráðherra setti á nú í
haust. Skotveiðifélag Íslands telur
veiðibannið illa ígrundað og byggt
á veikum forsendum. Veiðibannið
er umdeilt á meðal fuglafræðinga
og annarra líffræðinga, svo ekki sé
meira sagt. Þá virðist meirihluti
stjórnarþingmanna vera andvígur
banninu og líklegast stór hluti
stjórnarandstöðuþingmanna. Þá
sýnir skoðanakönnun sem IMG
Gallup gerði fyrir SKOTVÍS að
64,1% íslensku þjóðarinnar er
fylgjandi rjúpnaveiðum.
Þegar veiðibannið var sett á
benti Skotveiðifélag Íslands á að
líkur væru á að veiðar á gæs
myndu aukast og að veiðikorta-
kerfið yrði að öllum líkindum fyrir
verulegum skakkaföllum. Á það
skal bent að um 60% íslenskra
skotveiðimanna stunda eingöngu
rjúpnaveiðar. Ólíklegt má telja að
þessir veiðimenn muni endurnýja
veiðikort sín árið 2004 og ljóst er
að tekjur veiðikortasjóðs munu
dragast verulega saman. Gremja
margra veiðimanna hefur einmitt
beinst gegn veiðikortakerfinu og
vilja þessir veiðimenn mótmæla
gerræðislegu veiðibanni umhverf-
isráðherra með því að skila röng-
um upplýsingum, eða með öðrum
orðum núlli, á veiðiskýrslum sínum
fyrir árið 2003.
Stjórn Skotveiðifélags Íslands
hefur fullan skilning á gremju
veiðimanna. Félagið vill þó hvetja
félagsmenn Skotveiðifélags Ís-
lands, svo og aðra íslenska skot-
veiðimenn, til að skila réttum upp-
lýsingum á veiðiskýrslum fyrir
árið 2003. Sá gagnagrunnur sem
byggst hefur upp í veiðikortakerf-
inu frá árinu 1995 er merkustu og
áreiðanlegustu upplýsingar um
veiðar á villtum dýrum á Íslandi.
Með því að veikja þann merka
gagnagrunn sem veiðikortakerfið
er þá er verið að fórna meiri hags-
munum fyrir minni.
VIÐ STANGARHYL
Ingvi Hrafn Jónsson við Stangarhyl í Langá
á Mýrum, sem var fengsælasta laxveiðiáin
síðasta sumar með 2.290 laxa á land.
LANGÁ Á MÝRUM
Hópur af áhugasömum veiðimönnum við Langá á Mýrum, með nokkrum kennurum.
■ Stuttar fréttir
Á veiðum
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiðiskap.
M
YN
D
IR
/G
U
N
N
AR
B
EN
D
ER
Fluguveiðiskólinn við Langá á Mýrum:
Sjaldan hafa eins margir bókað sig