Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 22
23SUNNUDAGUR 11. janúar 2004
Útvarpsþátturinn Tvíhöfði varmörgum harmdauði þegar slitn-
aði upp úr samstarfi þeirra félaga
Sigurjóns Kjartanssonar og Jóns
Gnarr fyrir nokkrum misserum.
Þeir höfðu þótt ná nýjum hæðum í
útvarpsgríni og í því sambandi
nægir að nefna að Hallgrímur
Helgason rithöfundur kallaði þá
Dostojevskía grínsins þegar þeir
voru upp á sitt allra besta.
Sögulegar sættir
Sigurjón og Jón töluðust vart við
eftir að Tvíhöfði klofnaði en nú hafa
náðst sögulegar sættir og Tvíhöfði
mun snúa aftur innan skamms.
„Við förum af stað upp úr næstu
mánaðamótum og þættinum verður
útvarpað á samtengdum rásum X-
ins og Skonrokks,“ segir Sigurjón.
„Ég spái því þó ekki að þetta verði
til þess að stöðvarnar verði samein-
aðar í Skonrokk X. Það er enginn
hætta á því,“ bætir Sigurjón við og
vísar til sameiningar útvarpsstöðv-
arinnar Radíó sem þeir félagar
settu á laggirnar hjá Norðurljósum
og X-ins sem þeir höfðu áður yfir-
gefið með látum.
„Þetta er bara hið besta mál og
sá Tvíhöfði sem snýr aftur verður
miklu betri. Við höfum svo sannar-
lega tekið út mikinn þroska í sitt
hvoru lagi og mætum nú báðir til
leiks miklu sterkari.“
Zombie kveður
Endurkoma Tvíhöfða felur vita-
skuld í sér að uppvakningaþáttur
Sigurjóns og Dr. Gunna, Zombie,
verður jarðaður en ástæðan fyrir
upprisu Tvíhöfða er einmitt sú að
Dr. Gunni vildi snúa sér að öðrum
verkefnum, ekki síst barnauppeldi.
„Gunni kom til mín í nóvember
og sagðist þurfa að fara að hætta
þessu og hann sæi þetta ekki fyrir
sér sem framtíðarstarf,“ segir Sig-
urjón og útilokar ekki að sú stað-
reynd að Dr. Gunni hafi orðið pabbi
nýlega, á gamals aldri, hafi haft eitt-
hvað með þessa ákvörðun að gera.
„Ég þurfti því strax að fara að huga
að því að fá einhvern með mér í
staðinn fyrir Gunna og þá bankaði
Jón bara allt í einu upp á og var til-
búinn til að koma aftur. Ætli við
Gunni höldum ekki eitthvað áfram
með Zombie en ég geri svo ráð fyr-
ir að það komi svona vikueyða, rétt
til að hafa smá skil á milli Zombie
og Tvíhöfða.“
Besta lausnin handan við
hornið
Dr. Gunni gerir grein fyrir brott-
hvarfi sínu á bloggsíðu sinni,
http://www.this.is/drgunni/ger-
ast.html, og segist ætla að snúa sér
að Dagbjarti, syni sínum, og Popp-
punkti en sá þáttur hefur heldur
betur slegið í gegn á Skjá Einum.
„Þegar ég sagði Sigurjóni frá því ég
vildi hætta í nóvember var útlitið
svart, hvern átti hann að fá í stað-
inn? Þetta varð hálfgerð klemma,
en sólin reis og besta lausnin var
handan við hornið: Jón Gnarr vildi
ólmur komast aftur í útvarpið, enda
að eigin sögn búinn að týna lífi sínu
sl. 2 ár en hefur fundið það í dag.
Niðurstaðan er því pottþétt: Tví-
höfði fer aftur í loftið í kringum 1.
feb og er það tilhlökkunarefni því á
hátindi ferilsins sló sá þáttur út öll-
um öðrum í æðislegheitum. Ég sé
því fram á hugljúfa morgna við
tölvuna í stuttbuxum með eðal kaffi
hlustandi á Tvíhöfðann minn. Vel-
kominn aftur!“
Jón og Jesú
Jón Gnarr hefur ekki setið
auðum höndum eftir að Tvíhöfði
klofnaði en hann hefur meðal
annars leikið Kalla Bjarna, besta
vin Erlings, í leikriti sem byggir á
hinum vinsælu bókum um norska
geðsjúklinginn Elling. Þá opnaði
Jón sína fyrstu myndlistarsýn-
ingu í Fríkirkjunni í gær.
„Ég hef aldrei gert svona áður,“
sagði Jón í samtali við Fréttablaðið
fyrr í vikunni. „Ég er búinn að vinna
að þessari sýningu í eitthvað á
þriðja ár, en hef annars ekki unnið
að myndlist sem slíkri áður – þótt
myndlist sé reyndar teygjanlegt
hugtak,“ segir Jón en myndirnar á
sýningunni eru ljósmyndaverk, upp-
stillingar með brúðum á frægum
minnum úr ævi Jesú Krists. „Þetta
er trúarleg sýning,“ segir Jón, og að-
spurður segist hann vera mjög trú-
aður og hafa verið það lengi.
Meiri Svínasúpu?
Sigurjón hefur, eins og Dr.
Gunni, verið með puttana í sjón-
varpi samhliða vinnunni við Zombie
en hann setti saman hópinn sem
stendur að Svínasúpunni sem Stöð 2
hóf sýningar á fyrir hálfum mánuði.
„Þátturinn hefur fengið mjög góð
viðbrögð og virðist falla mjög vel í
kramið, ekki síst hjá fólki í yngri
kantinum, þannig að ég er mjög
ánægður.“
Félagarnir Auddi og Sveppi af
PoppTíví hafa sýnt tilþrif í Svína-
súpunni og Sigurjón segist strax
hafa séð ákveðið efni í þessum
rugludöllum þegar þeir komu fram
á sjónarsviðið. „Þeir eru skemmti-
legur dúett og eru mjög hæfileika-
ríkir leikarar og það hefur svo kom-
ið á daginn að þeir eru uppfullir af
góðum hugmyndum. Þetta er búinn
að vera frábær tími og í tökunum
kannaðist ég við ýmislegt í fari
þeirra sem við Jón höfum áður
gengið í gegnum. Þeir eru hressir
og það hefur verið gaman að fá að
koma þessu á koppinn og ég vona að
það verði framhald á,“ segir Sigur-
jón og gefur því aðdáendum Tví-
höfða einhverja von um að Jón
Gnarr eigi eftir að blandast saman
við Svínasúpuna.
thorarinn@frettabladid.is
• Sjálfsstyrking
• Framkoma og líkamsburður
• Innsýn í fyrirsætustörf
• Förðun
• Umhirða húðar og hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Myndataka (16 sv/hv myndir)
• Tískusýningaganga
• Fíkniefnafræðsla frá Götusmiðjunni
• Myndbandsupptökur
• Leikræn tjáning
Sex vikna námskeið hefjast 26. og 28. janúar.
Kennt verður einu sinni í viku, einn og hálfan tíma í senn.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Kolbrún Pálína Helgadóttir,
Ungfrú Ísland.is 2001, auk frábærra gestakennara.
Námskeiðinu lýkur með stórri tískusýningu í Kringlunni. Stúlkurnar
verða farðaðar af nemendum förðunarskóla NO NAME.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, viðurkenningarskjal, 16 sv/hv
myndir og lyklakippu.
Verð 17.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og
á vefsíðunni www.eskimo.is.
Einning er hafin skráning á framhalds-
Framkomu og fyrirsætunámskeiðin
Það varð fjölmörgum aðdáendum þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Jóns Gnarr mikið áfall þegar þeir leystu upp áralangt samstarf sitt
og hættu með útvarpsþáttinn Tvíhöfða. Félagarnir hafa náð saman á ný og Tvíhöfði fer í loftið í næsta mánuði eftir að Sigurjón og Dr.
Gunni hafa jarðað Zombie en doktorinn ætlar að snúa sér að öðrum málum.
Dostojevskíar grínsins snúa aftur
SIGURJÓN KJARTANSSON
Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr klufu Tvíhöfða og fóru hvor í sína áttina. Þeir höfðu lít-
ið samband eftir að áralöngu og farsælu samstarfi þeirra lauk. Sættir hafa nú náðst og
Tvíhöfðinn okkar snýr aftur á öldur ljósvakans í febrúar og Sigurjón fullyrðir að þeir hafi
aldrei verið betri.
JÓN GNARR
Jón Gnarr hefur ekki setið auðum höndum
eftir að Tvíhöfði klofnaði en hann hefur
meðal annars leikið Kalla Bjarna, besta vin
Erlings, í leikriti sem byggir á hinum vin-
sælu bókum um norska geðsjúklinginn Ell-
ing. Þá opnaði Jón sína fyrstu myndlistar-
sýningu í Fríkirkjunni í gær.