Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 30

Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 30
31SUNNUDAGUR 11. janúar 2004 Megrunarmintur Megrun hefur aldrei verið svalari. Prófaðu megrunarmintur sem minnka matarlyst og auka brennslu. Þú færð Slim Mints í næsta apóteki. Nýtt á Íslandi! SKÍÐI Austurríska skíðastúlkan Renate Götschl vann sinn sext- ánda brunsigur á ferlinum í gær er keppt var í heimsbikarnum í Sviss. Hún brunaði ákaflega ör- uggt og vel og kom í mark 0,49 sekúndum á undan þýsku stúlkun- um Michaelu Dorfmeister og Hilde Gerg, sem urðu jafnar í öðru sæti. Þetta var jafnframt annar sigur hennar í röð því hún vann í St. Moritz rétt fyrir jól. „Þetta er frábær dagur fyrir mig. Ég er virkilega ánægð,“ sagði Götschl eftir keppnina. „Brautin var aðeins auðveldari í æfingunni, ekki eins hröð. Ég skíðaði ekki mjög fast og það var lykillinn að sigrinum í dag. Nú nálgast ég toppinn óðfluga og hver veit nema ég nái þrennunni í næstu keppni.“ Bandaríkjamenn tóku síðan fjórða og fimmta sætið. Kirsten Clark varð fjórða, 0,59 sekúndum á eftir Götschl, og Caroline Lalive var svo rétt á eftir Clark. Þýska stúlkan Hilde Gerg er aftur á móti efst í heildarstiga- keppninni í bruni. Hún hefur reyndar ekki unnið keppni síðan í desember 2002 en er ávallt við toppinn og með því aflar hún sér þeirra stiga sem á þarf að halda til þess að vera á toppnum. „Annað sæti er fínt en ég held að það sé kominn tími á sigur hjá mér,“ sagði Gerg og brosti. Sænska stúlkan Anja Pärson er sem fyrr efst á heildarstigalistan- um í heimsbikarkeppni kvenna. Hún tók þátt í bruninu að þessu sinni en það var aðeins í annað sinn sem hún keppir í bruni. Hún var tæpum þrem sekúndum á eft- ir Götschl og fékk engin stig að þessu sinni. ■ Glasgow Rangers: 23 bikar- sigrar í röð FÓTBOLTI Glasgow Rangers vann sinn 23. leik í röð í skosku bikar- keppninni í gær þegar liðið lagði Hibernian að velli, 2-0. Shota Ar- veladze og Peter Lovenkrands skoruðu mörk Rangers í leiknum. Rangers hefur hvorki tapað í skoska bikarnum né deildarbik- arnum síðan Alex McLeish tók við liðinu í desember 2001. Því geng- ur aftur á móti ekki eins vel í deildinni þar sem það er 11 stig- um á eftir toppliði Glasgow Celtic og má með sanni segja að sá bikar sé runninn Rangers úr greipum nú þegar í janúar. ■ Hart barist í bruni kvenna: Sextándi sigur Götschl HANDBOLTI Það var allt annað að sjá til íslenska landsliðsins í hand- knattleik í Laugardalshöllinni í gær en í Mosfellsbæ á föstudag. Þá var landsliðið ekki svipur hjá sjón og tapaði mjög sanngjarnt. Í gær voru strákarnir líkari sjálf- um sér og sigur þeirra var örugg- ur og fyllilega verðskuldaður. Íslenska liðið tók frumkvæðið strax í byrjun leiks og hélt því út allan leikinn. Örlítið kæruleysi var undir lok leiksins en það hafði ekki áhrif á heildarniður- stöðuna. Vörnin small betur sam- an nú en á föstudag og virtist það litlu skipta þótt Sigfús Sigurðs- son hefði ekki getað leikið vegna meiðsla. Sóknarleikurinn var líka mun líflegri, sem og karakterinn, og það andleysi sem virtist ríkj- andi í liðinu á föstudag hafði aug- ljóslega flogið út um gluggann yfir nóttina. Guðjón Valur Sigurðsson sýndi enn eina ferðina mátt sinn og megin og skoraði 9 mörk í öll- um regnbogans litum. Ungu strákarnir stálu þó senunni og var virkilega gaman að fylgjast með Snorra Steini Guðjónssyni og Björgvini Páli Gústavssyni í leiknum. Snorri skoraði 7 gull- falleg mörk, var með frábæra skotnýtingu og stýrði sóknar- leiknum af mikilli röggsemi. Frammistaða hans í leiknum færði honum án efa farmiða til Slóveníu. Björgvin leysti Guð- mund Hrafnkelsson af hólmi í síðari hálfleiknum og minnti hressilega á sig. Hann varði 9 skot, mörg þeirra úr opnum fær- um. Margir efast um að Björgvin sé tilbúinn til þess að fara á stór- mót en frammistaðan í gær, og gegn Pólverjum á dögunum, sýn- ir að það væri ekki vitlaus leikur hjá Guðmundi að taka „guttann“ með. Hann virðist vera klár í slaginn. Síðasti leikurinn gegn Sviss fer síðan fram í kvöld og þá verður einnig leikið í Laugardalshöllinni. Það er síðasta tækifæri leik- manna til þess að sanna sig fyrir landsliðsþjálfaranum því Guð- mundur landsliðsþjálfari velur EM-hópinn á mánudag. ■ ■ ■ LEIKIR  17.15 Grindavík og Njarðvík mætast í 1. deild kvenna í körfu- bolta í Grindavík.  19.15 Keflavík og ÍR mætast í 1. deild kvenna í körfubolta í Keflavík.  19.30 Ísland mætir Sviss í Laugar- dalshöll í æfingalandsleik í hand- bolta.  20.00 Haukar og Stjarnan mætast í RE/MAX-deild kvenna í hand- bolta að Ásvöllum. ■ ■ SJÓNVARP  12.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn um helgina.  13.45 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Leicester og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.  15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Man. Utd og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.  18.00 NBA-karfan á Sýn. Útsending frá leik Toronto og Portland í NBA- boltanum.  21.30 Ameríski fótboltinn á Sýn. Útsending frá leik Philadelphia Eagles og Green Bay Packers í úrslitakeppni NFL-boltans. SKÍÐI Hinn 34 ára gamli Austurrík- ismaður Stephan Eberharter fann sitt gamla form á ný í skíðabrekk- unum í Frakklandi þegar hann vann öruggan sigur í bruni í heimsbikarnum. Þetta var fyrsti sigur hans í bruni í vetur, sem vekur óneitanlega athygli enda hefur hann unnið heimsbikarinn í bruni síðustu tvö ár. Þetta var jafnframt fyrsti brunsigur hans síðan í mars á síðasta ári. Eberharter var fyrstur niður brekkuna og ferð hans var svo svakalega hröð að hún var ekki toppuð af keppinautum hans. „Ég var ánægður með að vera fyrstur niður. Brautin var mjúk og blaut á neðri hlutanum og því best að fara fyrstur niður,“ sagði Eberharter sem brosti allan hringinn – slík var hamingjan. Norðmaðurinn Lasse Kjus varð að sætta sig við silfur að þessu sinni og heimsmeistarinn í bruni, Michael Walchhofer varð þriðji. ■ Þetta var miklu betra Íslenska handknattleikslandsliðið reif sig upp eftir slæman leik á föstudag og vann sannfærandi sigur á Sviss í Höllinni í gær, 26-22. Stephan Eberharter vaknaður: Vann brunið í Frakklandi FÖGNUÐUR Sigurvegarinn Renate Götschl fagnar hér sigrinum í gær. TÖLFRÆÐI ÍSLANDS Í GÆR Mörk: Guðjón Valur Sigurðsson 9 Snorri Steinn Guðjónsson 7 Ólafur Stefánsson 3 Jaliesky Garcia 3 Róbert Sighvatsson 1 Gylfi Gylfason 1 Heiðmar Felixson 1 Ragnar Óskarsson 1 Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 6 Björgvin Páll Gústavsson 9 NÍU MARKA MAÐUR Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum í Höllinni í gær og hér skorar hann eitt af þeim níu mörkum sem hann gerði í gær. hvað?hvar?hvenær? 8 9 10 11 12 13 14 JANÚAR Sunnudagur GULL, SILFUR OG BRONS Austurríkismaðurinn Stefan Eberharter fagnar hér sigri sínum í bruninu ásamt landa sínum Michael Walchhofer, til hægri, sem varð þriðji og Norðmanninum Lasse Kjus sem tók silfrið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.