Fréttablaðið - 11.01.2004, Page 31
32 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Á BÓLAKAFI
Belginn Gregoire de Mevius og Alain
Guehennec steypast hér á kaf í sandinn í
Eyðimerkurrallinu. Skipuleggjendur keppn-
innar slógu af aksturinn í Malí um helgina
af öryggisástæðum og verður keyrt af stað
á ný á þriðjudag.
Kappakstur
KNATTSPYRNA Íslandsmeistarar
KR í kvennaboltanum fengu
góðan liðsstyrk í gær þegar
Stjörnustúlkan Elfa Björk
Erlingsdóttir skrifaði undir
tveggja ára samning við félagið.
Elfa Björk hefur leikið með
Stjörnunni allan sinn feril og
verið einn helsti burðarás liðs-
ins undanfarin ár. Hún lék níu
leiki með félaginu í fyrra og
skoraði í þeim eitt mark.
Alls hefur hún leikið 93 leiki í
efstu deild og skorað 33 mörk.
Elfa, sem er 21 árs, er mjög
reynd þrátt fyrir ungan aldur en
hún á tvo A-landsleiki að baki og
23 leiki með
U-21 árs liði
Íslands.
Einnig hef-
ur hún leikið 11
leiki með bæði
U-19 og U-17
ára liði Íslands.
Elfa Björk
er klárlega
hvalreki á fjör-
ur Íslands-
meistaranna,
sem augljós-
lega ætla sér
ekkert annað en að halda titlinum
í Vesturbænum næsta sumar. ■
Frábær skemmtun
Stjörnuleikur KKÍ var frábær skemmtun frá upphafi til enda. Fullt hús og mikil stemning í húsinu.
KÖRFUBOLTI Það var mikið um dýrð-
ir í Seljaskóla í gær þegar hinn ár-
legi Stjörnuleikur KKÍ fór fram.
Fyrir utan hinn hefðbundna leik
var boðið upp á troðslukeppni,
þriggja stiga skotkeppni og para-
skotkeppni. Mikið fjölmenni var í
Seljaskóla – 600 manns og fullt út
úr dyrum.
Suðurliðið undir stjórn Frið-
riks Inga Rúnarssonar fór með
sigur af hólmi í leiknum, 136-133.
Lokatölur gefa ekki alveg rétta
mynd af gangi leiksins því Suður-
liðið hafði mikla yfirburði nánast
allan tímann en hleypti Norðurlið-
inu, sem var undir stjórn Bárðar
Eyþórssonar, inn í leikinn undir
lokin. Maður leiksins var Njarð-
víkingurinn Friðrik Stefánsson,
sem skoraði 18 stig, tók 19 fráköst
og gaf 5 stoðsendingar. Blikinn
Pálmi Freyr Sigurgeirsson var
aftur á móti stigahæstur í Suður-
liðinu með 32 stig. Mike Manciel
frá Haukum kom næstur með 23
stig og 14 fráköst. Grindvíkingur-
inn Darrell Lewis sýndi einnig lip-
ur tilþrif en hann skoraði 16 stig
og gaf 8 stoðsendingar. Njarðvík-
ingurinn Páll Kristinsson setti svo
niður 14 stig og tók 11 fráköst.
Í Norðurliðinu var Nick Boyd
stigahæstur með 31 stig en hann tók
einnig 10 fráköst. Magni Hafsteins-
son úr KR skoraði 30 stig og tók 9
fráköst. Ísfirðingurinn Jeb Ivey
kom næstur með 16 stig og 8
stoðsendingar. Annars hafði
Norðurliðið það fram yfir Suðurlið-
ið að þar skoruðu allir en tveir leik-
manna Suðurliðsins komust ekki á
blað í stigaskoruninni.
Troðslukeppnin var stór-
skemmtileg en þar sigraði heima-
maðurinn í ÍR, Kevin Grandberg.
Sigurtroðslan var af dýrari gerðinni
en Grandberg klæddi sig úr treyj-
unni í loftinu áður en hann tróð.
Ótrúleg tilþrif. Clifton Cook frá
Tindastóli varð annar.
Í þriggja stiga keppninni var Jeb
Ivey heitastur en hann vann Njarð-
víkinginn Brenton Birmingham í
úrslitum. Hjá konunum var Stella
Rún Kristjánsdóttir hlutskörpust en
Sigrún Skarphéðinsdóttir úr KR
varð önnur.
Einnig fór fram paraskotkeppni
og þar sigruðu Njarðvíkingarnir
Brandon Woudstra og Auður Jóns-
dóttir eftir æsilega keppni við KR-
ingana Ólaf Má Ægisson og Hildi
Sigurðardóttur. ■
Núpalind 1 Kópavogi • Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði
899
999
VERÐSPRENGJA
Núna næstu daga getur þú sótt til okkar
ljúffengar Pizzur á frábæru verði
Stór Pizza með 2 áleggstegundum á kr.
Stór Pizza með 4 áleggstegundum á kr.
59 12345Opið frá kl. 16-22Alla daga vikunnar
LI
TL
A
PR
EN
T
eh
f.
TAE KWON DO –DEILD ÁRMANNS TILKYNNIR
Vetrarstarf Tae kwon do-deildar Ármanns er að hefjast að nýju eftir
jólafrí.
Æfingatímar eru:
Börn, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:30 og laugardögum kl. 10:00
Byrjendur, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:00, og laugardögum kl. 11:00
Framhaldshópur, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og laugardögum kl. 11:00
Erum til húsa að Einholti 6
105 Reykjavík
Nánari upplýsingar í síma:
865-0900, 895-1741, 869-4163
Tae kwon do er sjálfsvarnaríþrótt fyrir alla
Er þetta ekki eitthvað sem þig hefur alltaf langað til að prófa?
...
ELFA BJÖRK ER-
LINGSDÓTTIR
Spilar með Íslands-
meisturum KR næstu
tvö árin.
Íslandsmeistarar KR fá góðan liðsstyrk:
Elfa í Vesturbæinn
Forseti UEFA á batavegi:
Þurfti að fjarlægja æxli
FÓTBOLTI Svíinn Lennart Johans-
son, forseti Evrópska knatt-
spyrnusambandsins, er á góðum
batavegi eftir aðgerð á spítala í
Svíþjóð þar sem æxli var fjar-
lægt úr líkama hans.
„Þetta hefði getað orðið
hættulegt ef við hefðum ekki
brugðist strax við,“ sagði Jo-
hansson við sænska blaðið
Aftonbladet. „Sem betur fer er
ég í reglulegum skoðunum og
því tókst okkur að bregðast við
vandanum áður en hann varð of
alvarlegur. Annars gekk aðgerð-
in mjög vel og ég er fjallhress
og tilbúinn í slaginn á nýjan leik.
Ég er búinn að endurheimta
fyrra þrek og get því farið að
vinna af fullum krafti. Þetta
kemur ekki til með að há mér
neitt í mínu daglegu lífi. Ég læt
þetta ekkert buga mig.“
Þessi 74 ára gamli maður átti
að flytja ræðu áður en dregið
var í riðla fyrir Evrópukeppnina
í sumar en læknirinn hans bað
hann um að sleppa því og hvíla
sig frekar í staðinn.
Aðgerðinni var haldið leyndri
þar til ljóst var að allt væri í
góðu. Ekki var gefið upp ná-
kvæmlega hvenær Lennart Jo-
hansson lagðist undir hnífinn en
talið er að það hafi verið fyrir
viku síðan. ■
Patrik Andersson:
Farinn til
Malmö
FÓTBOLTI Fyrrum fyrirliði sænska
landsliðsins, Patrik Andersson,
skrifaði í gær undir tíu mánaða
samning við sænska úrvalsdeild-
arliðið Malmö. Samningur And-
erssons við félagið er frá 1. febrú-
ar til 30. nóvember.
„Ef allt gengur vel er ég vel
tilbúinn til þess að bæta ári við
samninginn,“ sagði Andersson í
samtali við sænska blaðið Ex-
pressen. Andersson, sem er 32
ára, hefur lagt landsliðsskóna á
hilluna eftir glæsilegan feril.
Hann hefur einnig gert góða
hluti með þeim félagsliðum sem
hann hefur verið hjá og til að
mynda var hann í liði Bayern
München sem vann Meistara-
deildina 2001. Hann gekk í kjöl-
farið í raðir spænska stórliðsins
Barcelona en náði aldrei al-
mennilega að festa rætur í Kata-
lóníuliðinu þar sem hann var
meira og minna meiddur þann
tíma sem hann var í röðum fé-
lagsins. ■
HANDBOLTI Tveir leikir fóru fram
í RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta í gær. Valur og Víkingur
mættust í Laugardalshöll og hit-
uðu upp fyrir landsleik Íslands
og Sviss. Valsstúlkur fóru þar
með góðan sigur af hólmi, 27-23.
Hlíðarendastúlkur voru mun
betri nær allan tímann og höfðu
frumkvæðið í leiknum frá fyrstu
mínútu. Víkingsstúlkur náðu aft-
ur á móti fínum spretti í síðari
hálfleik þar sem þær unnu upp
sex marka forskot Vals. Þá settu
Valsstúlkur aftur í gírinn og
kláruðu leikinn. Díana Guðjóns-
dóttir og Hafrún Kristjánsdóttir
voru markahæstar hjá Val með
sex mörk en Natasa Damlajonov
var allt í öllu hjá Víkingi og skor-
aði tólf mörk. Valsstúlkur eru
sem fyrr í öðru sæti deildarinnar
eftir sigurinn en Víkingsstúlkur
eru í áttunda sæti.
Í seinni leik dagsins tóku síð-
an stúlkurnar í KA/Þór á móti
FH og þar komu heimastúlkur
nokkuð á óvart með því að
leggja Fimleikafélagið, 27-25.
Leikurinn var mjög jafn og
spennandi allan tímann en
heimavöllurinn vann með
KA/Þór á endasprettinum er
þær kláruðu leikinn. KA/Þór
skaust með sigrinum upp fyrir
Víking og í sjöunda sætið en FH
er enn í fimmta sæti deildar-
innar. ■
Tveir leikir í RE/MAX-deild kvenna:
Valssigur í Höllinni
HAFRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR
Var sterk í Höllinni í gær og skoraði
sex mörk.
ÖFLUGUR
Haukamaðurinn Mike Manci-
el var sterkur í Stjörnuleikn-
um í gær og skoraði 23 stig
og tók 14 fráköst.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M