Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2004, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 11.01.2004, Qupperneq 32
33SUNNUDAGUR 11. janúar 2004 FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchester United, er ekki ánægður með framkomu forráðamanna Ful- ham í hans garð en þeir hafa sak- að Ferguson um að æsa upp Lou- is Saha, sem hafi í kjölfarið beð- ið um að vera seldur frá félag- inu. Það segir Ferguson vera al- rangt en þrátt fyrir öll lætin ætl- ar hann ekki að bjóða aftur í Frakkann snjalla, en síðasta boð United í Saha hljóðaði upp á átta milljónir punda. „Við sendum þeim bréf sem var merkt sem einkamál en þeir hlupu með það í blöðin,“ sagði Ferguson. „Ég ræddi við Chris Coleman, stjóra Fulham, um strákinn í upphafi leiktíðar og lét þar við sitja. Síðan sendum við þeim tilboð sem David Gill skrif- aði undir, ekki Alex Ferguson,“ sagði stjórinn, en honum finnst ómaklega að sér vegið í málinu. Þrátt fyrir skýr skilaboð frá Saha þar sem hann grátbiður Ferguson um að hækka boðið og kaupa sig ætlar Ferguson að láta kyrrt liggja. „Við höfum gert allt rétt og heiðarlegt í málinu. Það er samt ljóst að við sendum ekki inn annað tilboð. Við viljum ekki standa í ein- hverjum leiðind- um. Fulham virð- ist vilja halda stráknum og við að sjálfsögðu leyfum þeim það,“ sagði Ferguson en það er ljóst að þessi niðurstaða er Saha sjálfum mikil vonbrigði enda búinn að standa í miklum slagsmálum til þess að komast frá Fulham. ■ FÓTBOLTI Íslensku strákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna í enska bolt- anum í gær. Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru í byrjunarliðinu hjá sínu félagi en aðr- ir voru á bekknum eða ekki með. Það var Íslendingaslagur í úr- valsdeildinni þar sem Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton tóku á móti Jóhannes Karli Guð- jónssyni og hinum Úlfunum. Charlton vann leikinn, 2-0, og Her- mann lék allar 90 mínúturnar en Jó- hannes mátti gera sér það að góðu að fylgjast með átökunum af tré- verkinu. Heiðar Helguson er að basla við meiðsl og gat því ekki leikið með fé- lögum sínum í Watford er þeir gerðu jafntefli gegn Coventry. Ívar Ingimarsson kom ekki held- ur við sögu en félagar hans í Read- ing gerðu 1-1 jafntefli við Ipswich. Brynjar Gunnarsson var aftur á móti í byrjunarliði Nottingham For- est sem tapaði gegn Sunderland á útivelli, 1-0. Brynjar var tekinn af velli á 78. mínútu. ■ FÓTBOLTI Það var mikið skorað í enska boltanum í gær en alls voru skoruð 28 mörk í aðeins 8 leikjum. Arsenal gefur ekkert eftir í topp- baráttunni og liðið fór illa með Middlesbrough á Highbury. Thierry Henry, Robert Pires og Freddie Ljungberg voru allir á skotskónum í liði Arsenal, sem átti frábæran dag og sigraði 4-1. „Þetta var virkilega góður leikur hjá okkur í dag og það skal enginn afskrifa okkur í baráttunni,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Arsenal er þar með jafnt Man. Utd. að stigum á toppi deildarinn- ar en United getur hrist Arsenal aðeins af sér í dag er liðið leikur gegn Newcastle. Það er aðeins farið að rofa til á Anfield Road en Liverpool vann annan 1-0 sigur sinn á skömmum tíma í gær er Aston Villa kom í heimsókn. Mark Delaney skoraði eina mark leiksins en því miður fyrir hann var það í vitlaust mark. Liverpool barðist vel í leiknum og Gerard Houllier, stjóri liðsins, var ánægður með strákana. „Við erum ekki að spila vel en við erum að berjast vel. Ég átti von á því að þetta yrði erfið- ur leikur þar sem við lögðum Chelsea síðast og það gerðist. Sem betur fer tókst okkur að hanga á markinu og taka stigin þrjú.“ Það er lítil hætta af Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni og ætla mætti að þeir væru tannlausir því þeir töpuðu enn einum leiknum í gær og að þessu sinni gegn Charlton. Jason Euell var sjóð- heitur í leiknum og gerði bæði mörkin. Fyrra markið var nokkuð umdeild og vildi Dave Jones, stjóri Wolves, meina að Euell hefði verið rangstæður. Allan Curbishley, stjóri Charlton, var ekki á sama máli. „Við teljum að Denis Irwin hafi spilað hann rétt- stæðan. Þegar lið spila rangstöðu- taktík vinna þau stundum og tapa stundum.“ Það voru þrátt fyrir allt leik- menn Bolton sem stálu senunni í gær. Þeir sneru við gjörtöpuðum leik á útivelli gegn Blackburn og sigruðu. Þeir lentu 3-1 undir í fyrri hálfleik en sýndu ótrúlega seiglu með því að rífa sig upp og vinna leikinn. Kevin Nolan gerði sigurmark leiksins tólf mínútum fyrir leikslok. Ísraelski miðjumaðurinn Eyal Berkovic náði fram hefndum gegn Kevin Keegan þegar nýja liðið hans, Portsmouth, fór illa með Man. City. Berkovic var að spila sinn fyrsta leik fyrir Portsmouth í leiknum og hann vandaði „félaga“ sínum Keegan ekki kveðjurnar í leikslok. „Ég skil ekki af hverju Kevin lét mig aldrei spila því ég var besti maðurinn á æfingum í sex mánuði og það vissu allir,“ sagði Berkovic. „Allir stuðningsmenn Man. City vissu að ég varð að spila leikinn en Kevin hagaði sér eins og stórt barn. Ég sagði hon- um það og ég tel að hann eigi skil- ið að vera rekinn.“ Keegan tók slíku ekki þegjandi. „Hann ætti að læra að þegja. Hann hefur rétt á sinni skoðun og ég veit að hann er svekktur. Ég tek ekkert mark á honum enda hafa fleiri sagt slíka hluti við mig.“ ■ SIR ALEX FERGUSON Ekki ánægður með forráðamenn Ful- ham en ætlar samt ekki að bjóða aftur í Louis Saha. Ferguson gefst upp: Hættur að bjóða í Saha Misjafnt gengi íslensku liðanna: Hermann sigraði Jóhannes Ótrúleg endurkoma Bolton Sneri við töpuðum leik gegn Blackburn. Arsenal komið upp að hlið Man. Utd. á toppnum eftir stórsigur á Middlesbrough. STAÐAN: Manchester Utd. 20 16 1 3 40:14 49 Arsenal 21 14 7 0 40:14 49 Chelsea 20 13 3 4 36:17 42 Charlton 21 9 7 5 30:23 34 Liverpool 20 9 5 6 30:21 32 Fulham 21 9 4 8 33:29 31 Newcastle 20 7 8 5 27:22 29 Birmingham 20 8 5 7 21:25 29 Southampton 21 7 6 8 19:17 27 Aston Villa 21 7 6 8 21:25 27 Bolton 21 6 8 7 25:33 26 Everton 21 6 6 9 25:28 24 Tottenham 21 7 3 11 24:30 24 Middlesbrough 20 6 6 8 17:23 24 Manchester City 21 5 7 9 30:32 22 Blackburn 21 6 4 11 31:35 22 Portsmouth 21 6 4 11 25:32 22 Leicester 20 4 7 9 28:31 19 Leeds 21 4 5 12 18:42 17 Wolves 20 3 6 11 18:43 15 ÚRSLIT: Arsenal-Middlesbrough 4-1 1-0 Thierry Henry, víti (38.), 2-0 Franck Quedrue, sjm (45.), 3-0 Robert Pires (57.), 4-0 Freddie Ljungberg (68.), 4-1 Massimo Maccarone, víti (86.). Birmingham-Southampton 2-1 0-1 Brett Ormerod (6.), 1-1 Stephen Clemence (16.), 2-1 Jeff Kenna (67.). Blackburn-Bolton 3-4 0-1 Kevin Nolan (1.), 1-1 Vratislav Gresko (3.), 2-1 Dwight Yorke (24.), 3-1 Andy Cole (34.), 3-2 Youri Djorkaeff (43.), 3-3 Stelios Giannakopoulos (74.), 3-4 Kevin Nolan (78.). Charlton-Wolves 2-0 1-0 Jason Euell (38.), 2-0 Jason Euell (79.). Fulham-Everton 2-1 1-0 Louis Saha, víti (45.), 2-0 Steed Mal- branque (46.), 2-1 Kevin Kilbane (81.). Leeds-Tottenham 0-1 0-1 Robbie Keane (56.). Liverpool-Aston Villa 1-0 1-0 Mark Delaney, sjm (36.). Portsmouth-Manchester City 4-2 1-0 Dejan Stefanovic (19.), 1-1 Nicolas An- elka (21.), 1-2 Antoine Sibierski (45.), 2-2 Aiyegbeni Yakubu (52.), 3-2 Teddy Sher- ingham (58.), 4-2 Aiyegbeni Yakubu (77.). LEIKIR DAGSINS: Leicester-Chelsea Man. Utd.-Newcastle MARKI FAGNAÐ Thierry Henry fagnar hér marki sínu úr vítaspyrnu gegn Middlesbrough. Harðjaxlinum Danny Mills er lítið skemmt. Arsenal vann leikinn, 4-1.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.