Fréttablaðið - 11.01.2004, Page 39
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Líður best með
sjálfum sér
www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...
Bakhliðin
Á HRAFNI GUNNLAUGSSYNI
Hvernig ertu núna? Happy happy.
Hæð: Fer eftir hvað ég reigi mig
mikið.
Augnlitur: Margbreytilegur.
Starf: Sögumaður.
Stjörnumerki: Tvíburar.
Hjúskaparstaða: Ástfanginn.
Hvaðan ertu? Innan úr eilífðinni.
Helsta afrek: Opinberun Hannesar.
Helstu veikleikar: Opinberun Hann-
esar.
Ertu í bókinni Íslenskir samtíma-
menn? Aldrei opnað þá bók.
Helstu kostir: Happy happy.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Nýlegur
þáttur sem ég sá á BBC um Shirin
Ebadi, friðarverðlaunahafa Nóbels.
Mögnuð kona, uppáhaldsstjórnmála-
maðurinn minn. Ég hef hugsað mikið
um þáttinn síðan ég sá hann.
Uppáhalds útvarpsþátturinn: Veður-
fregnir.
Mestu vonbrigði lífsins: Að þurfa að
deyja.
Áhugamál: Skemmtanir.
Viltu vinna milljón? Nei, eitthvað
miklu meira.
Jeppi eða sportbíll: Ég á bíl sem heit-
ir Brandarabíllinn og er marglitur.
Handbolti eða fótbolti: Silungsveiði.
Bingó eða gömlu dansana: Merengue,
með ekta dóminíkanskri sveiflu.
Leonard Cohen eða Elton John?
Leonard Cohen.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Jón Sigurðsson í eirmynd
á Austurvelli.
Skelfilegasta lífsreynslan: Að upp-
götva að ég var ekki þessi eirmynd.
Hver er fyndnastur? Ólafur Ragnar
Grímsson.
Hver er kynþokkafyllst? Brjósta-
Bína.
Trúir þú á drauga? Já, þegar ég les
Fréttablaðið.
Hvaða dýr vildirðu helst vera: Hrafn
Óðins.
Hvort vildirðu heldur vera Quentin
Tarantino eða Sergio Leone? Sergio
Leone, ekki nokkur spurning.
Áttu gæludýr? Já, brúnklukku.
Hvar líður þér best? Með sjálfum
mér.
Þér býðst að kvikmynda þríleik um
Halldór Laxness byggðan á ævisögu
skáldsins eftir Hannes Hólmstein
Gissurarson. Hverju svarar þú? Ég
geri ekki ævisögur.
Besta bók í heimi: Iðnbylting hugar-
farsins eftir Ólaf Ásgeirsson.
Næst á dagskrá: Að læra kínversku.