Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 1
VIÐSKIPTI Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður, sem rekur útgerð- ina Tjald, bauð hæst í bæði Harald Böðvarsson og Útgerðarfélag Ak- ureyringa. Grandi ásamt afkom- endum Haraldar Böðvarssonar á Akranesi sitja hins vegar við samningaborðið um HB. Náist samningar má búast við að Grandi yfirtaki HB. Í framhaldinu má bú- ast við að þungi starfsemi Granda færist smátt og smátt upp á Akra- nes. Talið er að rætt verði við Guð- mund um kaup á Útgerðarfélagi Akureyringa. Aðrir sem buðu í ÚA voru Skinney-Þinganes og KEA. Lengi var rætt um að Þorsteinn Vilhelmsson og fjárfestingarfélag- ið Afl vildu kaupa. Fundur með Þorsteini var hins vegar stuttur þar sem mikið bar á milli í verð- hugmyndum. Eimskip setti, sam- kvæmt heimildum, upp níu millj- arða sem söluboð fyrir ÚA. Ísfé- lagið í Vestmannaeyjum sýndi HB einnig áhuga, en verðhugmyndir þeirra og seljenda fóru ekki sam- an. Guðmundur Kristjánsson var um tíma einn aðaleigandi útgerðar- félagsins Básarfells. Samkvæmt heimildum mun fyrst verða rætt við hann varðandi sölu ÚA. Nafn hans var ekki mikið í umræðunni í aðdraganda sölunnar. Skagstrendingar undir forystu oddvita hreppsins, Adolfs Bernd- sen, munu fyrstir setjast við borð- ið varðandi Skagstrending. Sam- kvæmt heimildum telja þeir sig hafa fjárhagslega bakhjarla til þess að geta keypt fyrirtækið. Fiskiðjan Skagfirðingur bauð ein- nig í Skagstrending. Talið er að útgerðarhlutinn fari á milli 15 til 20 milljarða króna. Kaup Landsbankans og tengdra að- ila voru á misjöfnu gengi. Verð- mæti Eimskipafélagsins miðað við lokagengi gærdagsins 7,35 er um 32 milljarðar. Þá stæðu eftir 12 til 17 milljarðar fyrir skipafélagið og Burðarás. Miðað við þetta stefnir í að fjárfestingar Landsbankans beri þokkalegan ávöxt. Magnús Gunnarsson, stjórnar- formaður Eimskipafélagsins, bjóst við að viðræður við Granda myndu standa fram á nótt. Hann sagði eng- ar ákvarðanir teknar um formlegar viðræður við aðra. Hins vegar heyrðu menn hljóðið hver í öðrum. haflidi@frettabladid.is MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 23 Sjónvarp 28 MIÐVIKUDAGUR STJÖRNULEIKUR Fyrsti stjörnu- leikurinn í körfubolta kvenna, sem leikinn verður í kvöld, fer fram í íþróttahúsi Seljaskóla. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG ÓVEÐRIÐ GENGUR NIÐUR Í KVÖLD Já þeir hafa fengið að finna fyrir veðrinu á Norður- og Vesturlandi. Áfram mun blása af norðri en það lægir í kvöld og dregur úr mestu snjókomunni fyrir norðan. Sjá síðu 6. 14. janúar 2004 – 13. tölublað – 4. árgangur ● tónleikar í iðnó Converge: ▲ SÍÐA 26 Harðkjarnaguðir stíga til jarðar ● 50 ára í dag Sigurður Svavarsson: ▲ SÍÐA 16 Útgáfustjórinn fær engar bækur ● gerir heimildarmynd um ólaf elíasson Eva María: ▲ SÍÐA 30 Með barnið í vinnuna ● frískandi að læra eitthvað nýtt Dreif sig í meistaranám nám o.fl. Gísli Sverrir Árnason: ▲ SÍÐA 18 og 19 UNDIRRITUÐU SAMNING Eftir harðvítugar deilur náðu samninganefndir lækna og heilbrigðisráðuneytis saman í gær. Samkomulagið beið þó staðfestingar félagsfundar lækna. Sjá síðu 8 BJÖRGÓLFUR BILLJÓNER Eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar athafna- manns virðast komnar yfir eins milljarðs dollara markið eftir hækkanir á markaði síðustu daga. Slíkar eignir duga mönnum til að komast á lista Forbes yfir 500 ríkustu einstaklingana. Sjá síðu 2 NIÐURSKURÐI MÓTMÆLT Stígamót telja það stórt skref aftur á bak að dregið verður úr þjónustu sem neyðarmótttaka fyrir fórnarlömb nauðgunar veitir. Yfirlækn- inum hefur verið sagt upp og þjónustan verður færð. Sjá síðu 6 RÉTTARHÖLDIN HEFJAST Réttar- höldin yfir meintum morðingja Önnu Lindh, fyrrum utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefjast í dag. Meintur morðingi segir verkn- aðinn hafa verið tilviljun en saksóknarar telja morðið á Önnu Lindh framið að yfir- lögðu ráði. Sjá síðu 10 VEÐUR Veðurstofan hefur sett upp snjóflóðavakt vegna veðursins sem hefur gengið yfir norðanvert landið. Viðbúnaðarástand er fyrir Norðurland og norðanverða Vest- firði vegna snjóflóðahættu. Fylgst er með Siglufirði og Ólafsfirði. Ástandið hefur ekki verið metið þannig að komið sé hættustig og því hefur ekki þótt ástæða til að rýma hús. Veginum um Óshlíð og Súða- víkurhlíð var lokað vegna snjó- flóðahættu í gærmorgun, snjó- spíur hafa runnið úr hlíðunum og því ekki talið ráðlegt að aka þar um. Ófært hefur verið á öllum Vestfjörðum og skólahaldi hefur verið aflýst víða. Almannvarnir eru í viðbragðsstöðu, á þeim stöð- um sem snjóflóðavaktin nær til, ef þarf að rýma hús. Að sögn Harðar Þórs Sigurðs- sonar, snjóflóðavaktmanns á Veð- urstofunni, er snjóflóðahætta víða, en ekki mikil í næsta ná- grenni við þorp og bæi. ■ Átti hæsta verð í bæði ÚA og HB Viðræður við Granda um kaup á Haraldi Böðvarssyni eru lengst komnar af viðræðum um sölu á Brimi. Rætt verður við Guðmund Kristjánsson útgerðarmann um kaup á ÚA. Skagstrendingar munu fyrstir setjast að samningum um Skagstrending. Viðbúnaður hjá Veðurstofu vegna veðursins: Vakt vegna snjóflóðahættu ÍSAFJÖRÐUR Ófært var um alla Vestfirði og skólahaldi víða aflýst Lögreglumaður: Gisti í fangaklefa ÓFÆRÐ Illviðrið sem hefur gengið yfir norðanvert landið hefur sett strik í reikninginn hjá þeim sem þurfa að vera á ferli. Lögreglumaður á Ísafirði, sem býr á Flateyri, komst ekki heim til sín vegna ófærðar eftir vaktina í gærkvöldi og brá því á það ráð að gista fangageymslur lögreglunn- ar. Hann svaf í klefa númer sex. Mjög vont veður hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum síð- ustu tvo daga og hefur víða verið ófært. Þá féll 50 til 60 metra breitt og um 40 sentímetra þykkt snjóflóð á Flateyrarveg, nánar til tekið á Selakirkjubólsburð. Leiðin verður ekki mokuð fyrr en veðr- inu hefur slotað. ■ Flugslys: 37 fórust ÚSBEKISTAN Að minnsta kosti 37 manns fórust þegar farþegaþota að gerðinni Yak-40 fórst í að- flugi við flugvöllinn í Tashkent, höfuðborg Úsbekistans, í gær- morgun. Að sögn yfirvalda varð sprenging í vélinni, þegar hún hrapaði niður á aðflugsbrautina og mun enginn hafa komist lífs af. Sjónarvottar segja að brak hafa dreifst um stórt svæði við flugvöllinn. Ekki er vitað um orsakir slyssins en létt þoka var yfir flugvellinum þegar þotan nálg- aðist. Þotan var í eigu ríkisrekna flugfélagsins, Uzbekistan Airwa- ys og var að koma frá Termez við landamæri Afganistans. ■ SAMNINGABORÐIÐ: Haraldur Böðvarsson Grandi og heimamenn á Akranesi Skagstrendingur Heimamenn á Skagaströnd Útgerðarfélag Akureyringa Guðmundur Kristjánsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.