Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 6
6 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGURVeistusvarið?
1Hvað heitir stærsta farþegaskipheims?
2Hvar verður skrifborð HannesarHafstein geymt hér eftir?
3Í hvaða lið gengur Árni GauturArason landsliðsmarkvörður ef að
líkum lætur?
Svörin eru á bls. 31
Opinber rannsókn hafin á Paul O’Neill:
Sakaður um trúnaðarbrot
BANDARÍKIN Bandaríska fjármála-
ráðuneytið hefur hafið rannsókn
á því hvort Paul O’Neill, fyrrum
fjármálaráðherra, sem vikið var
úr embætti í desember 2002,
hafi lekið leynilegum skjölum
stjórnvalda í nýja bók eftir
blaðamanninn Ron Suskind.
Bókin, sem ber titilinn „The
Price of Loyalty“, fjallar um tvö
fyrstu stjórnarár Bush Banda-
ríkjaforseta og er O’Neill helsti
heimildarmaður höfundarins.
Um síðustu helgi var fjallað
um efni bókarinnar og rætt við
O’Neill í fréttaskýringaþættin-
um 60 mínútur og meðal annars
sýnt skjal merkt „leyndarmál“.
Talsmaður fjármálaráðuneyt-
isins sagði í gær að yfirmanni
rannsóknardeildar ráðuneytis-
ins hefði verið falið að kanna
hvort O’Neill hafi brotið trúnað
og lög um skjalaleynd og hvern-
ig umrætt skjal hefði ratað inn í
sjónvarpsþáttinn sem sagður er
hafa valdið miklum titringi bak
við tjöldin í Hvíta húsinu.
O’Neill skýtur föstum skot-
um á Bush Bandaríkjaforseta í
bókinni og sakar hann meðal
annars um óskipulögð vinnu-
brögð. „Á ríkisstjórnarfundum
var hann eins og blindur maður
meðal heyrnarlausra,“ segir
O’Neill. ■
HEILBRIGÐSMÁL „Ég hef ekki séð þær
aðstæður í þjóðfélaginu sem rétt-
læta niðurskurð á þessari þjónustu.
Það þarf í raun að auka hana og það
er óábyrgt að draga úr henni. Þetta
er ekki leið til að spara, heldur er
verið að varpa fyrir róða dýrmætri
uppsafnaðri reynslu og þekkingu
sem hefur verið byggð upp á síðustu
11 árum,“ segir Rúna Jónsdóttir,
talskona Stígamóta.
Um 200 manns verður sagt upp á
Landspítalanum um næstu mánaða-
mót, en þegar
hefur verið
ákveðið að segja
upp Guðrúnu
Agnarsdóttur yf-
irlækni. For-
svarsmenn Land-
spítalans segja
að neyðarmót-
tökunni verði
haldið áfram í
Fossvogi, en
skipulaginu verði
breytt. Ráðgjafar
verða ekki leng-
ur á sólarhrings-
vöktum, og
bakvöktum virka daga hefur verið
sagt upp. „Verið er að skoða sam-
starf við sérfræðinga á kvennasviði.
„Við hjá Stígamótum erum mjög
ósáttar við breytingarnar því
nauðgun er miklu meira en það að
líkamlegt inngrip eigi sér stað. Heil-
brigðiskerfinu ber að endurspegla
skilning á því. Við megum ekki fara
til baka í gamla bílaverkstæðishugs-
unarháttinn þar sem er bara lappað
upp á sár á líkamanum. Það er mikil
þröngsýni að einskorða þessa þjón-
ustu við læknishjálp,“ segir Rúna.
Á árinu 2003 leituðu rúmlega 100
konur til neyðarmóttökunnar vegna
nauðgana sem er nokkur fjölgun frá
árinu á undan. Til Stígamóta leituðu
konur á síðasta ári vegna 155 nauð-
gana, en árið 2002 varð 20% aukning
á konum sem leituðu til samtakanna
vegna kynferðisbrota. Rúna Jóns-
dóttir segir ekki hægt að líta fram
hjá þeirri staðreynd að nauðganir
séu orðnar grófari en áður og að
meira sé um hópnauðganir.
„Í fyrra leituðu konur til okkar
vegna 10 hópnauðgana og þær
voru sjö árið á undan. Það er ekki
sami hópur sem kemur til okkar og
leitar til neyðarmóttökunnar, en til
Stígamóta koma fyrst og fremst
konur sem leita sér hjálpar löngu
eftir að þær urðu fyrir kynferðis-
brotinu. Við hvetjum allar sem til
okkar leita til að nýta sér alla þá
þjónustu sem er í boði, þar á með-
al hjá neyðarmóttökunni,“ segir
Rúna.
bryndis@frettabladid.is
Í BANNI
Þingkonan Elaheh Koulaei en ein þeirra
sem bannað hefur verið að fara í framboð.
Framboðsdeilur í Íran:
Stjórnin
hótar afsögn
ÍRAN Ríkisstjórn umbótasinna í
Íran hefur hótað afsögn vegna
deilna við tólf manna æðstaráð
harðlínumanna, sem bannað hefur
meira en 3000 umbótasinnum, þar
á meðal 80 þingmönnum, að bjóða
sig fram í þingkosningum sem
fram fara í næsta mánuði.
Umræddir frambjóðendur eru
í hópi 8.200 frambjóðenda sem
buðu sig fram til íranska þingsins,
sem telur 290 sæti og byggir
æðstaráðið úrskurð sinn á því að
þeir hafi gerst brotlegir við lög
um trúnað við íslam.
Mohammad Sattarifar, vara-
forseti landsins, varaði við því í
gær að ríkisstjórnin segði af sér
gæti hún ekki tryggt frjálsar
kosningar í landinu. ■
Kauphöll Íslands:
Mikil
hækkun
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitala Kauphall-
ar Íslands hækkaði um 2,8% í
gær. Á mánudag hækkaði vísi-
talan um tæp 2%.
Sérfræðingar telja að gott gengi
Pharmaco hafi áhrif á hækkanir
annarra félaga. Miklar hækkanir
hafa orðið til þess að margir fjár-
festar innleysa hagnað með sölu
hluta bréfa sinna í Pharmaco. Þeir
peningar leita svo annarra tæki-
færa á hlutabréfamarkaðnum. KB-
banki hækkaði mest allra félaga í
gær eða um 5,5%. ■
HITABLÁSARAR
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
Lögreglan í Reykjavík:
Rán í 10-11
upplýst
UPPLÝST Vopnað rán sem framið var
í verslun 10-11 við Arnarbakka í
byrjun desember er upplýst.
Að sögn Harðar Jóhannessonar
hjá Lögreglunni í Reykjavík hefur
verið unnið markvisst að rannsókn
málsins frá því að ránið var framið.
Í síðustu viku var ræninginn, tæp-
lega tvítugur maður, handtekinn og
færður í yfirheyrslu og sleppt að
henni lokinni. Málið telst upplýst.
Ræninginn ruddist inn í verslun-
ina vopnaður hnífi og ógnaði starfs-
manni. Hann heimtaði peninga úr
búðarkassanum og fékk afhentar
um 100.000 krónur. Að svo komnu
hvarf hann út í myrkrið. ■
PAUL O’NEILL
Bandaríska fjármálaráðuneytið rannsakar
nú hvort O’Neill hafi brotið trúnað og lög
um skjalaleynd.
„Við meg-
um ekki fara
til baka í
gamla bíla-
verkstæðis-
hugsunar-
háttinn þar
sem er bara
lappað upp á
sár á líkam-
anum.
Mikil fjölgun
grófra hópnauðgana
Stígamót hafa þungar áhyggjur af breytingum á starfsemi neyðarmót-
töku fyrir fórnarlömb nauðgana og uppsögn yfirlæknis. Forsvarsmenn
Landspítalans segja ekki verið að loka neyðarmóttökunni.
RÚNA JÓNSDÓTTIR
Talskona Stígamóta segist ekki hafa séð þær aðstæður í þjóðfélaginu sem réttlæti
niðurskurð á þjónustu við fórnarlömb nauðgana. Hún segir verið að varpa fyrir róða
dýrmætri uppsafnaðri reynslu og þekkingu.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 69.11 -1.00%
Sterlingspund 128.11 0.08%
Dönsk króna 11.95 0.08%
Evra 88.99 0.09%
Gengisvísitala krónu 121,51 -0,06%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 594
Velta 3.924 milljónir
ICEX-15 2.255 2,80%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 671.621.135
Pharmaco hf. 249.877.080
Össur hf. 226.556.718
Mesta hækkun
KB banki hf. 5,51%
Össur hf 4,47%
Afl fjárfestingarfélag hf. 3,83%
Mesta lækkun
Medcare Flaga hf. -1,61%
Opin Kerfi hf. -0,52%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.410,2 -0,7%
Nasdaq* 2.088,4 -1,1%
FTSE 4.440,1 -0,2%
DAX 3.996,2 0,0%
NK50 1.382,5 -0,3%
S&P* 1.119,9 -0,7%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00