Fréttablaðið - 14.01.2004, Page 8
8 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
Bubbi og boðflenna?
„Ætli það geti verið að Davíð telji
sjálfan sig handhafa frelsisins, að
það sé hans að deila því út til
þóknanlegra? Og að frelsið hafi
barasta aldrei verið ætlað Jóni Ás-
geiri? Að hann sé boðflenna í veis-
lu Bubba kóngs? Ég veit það ekki.“
Eiríkur Bergmann Einarsson á kreml.is um
áhuga Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á
forráðamönnum Baugs.
Nýtt upphaf
„Kannski er tími svona tímarita
liðinn.“
Silja Aðalsteinsdóttir, nýráðinn ritstjóri Tímarits
Máls og menningar, í viðtali við Morgunblaðið
13. janúar.
Spítali í gíslingu
„Það er skelfilegt til þess að huga
að stjórnmálamenn ætli að halda
Landspítalanum öllum í gíslingu.“
Guðrún Agnarsdóttir, yfirlæknir neyðarmóttöku
vegna nauðgunar á Landspítalanum, í DV 13.
janúar. Guðrún er ein þeirra fjölmörgu sem hafa
fengið uppsagnarbréf vegna niðurskurðar og
uppsagna.
Orðrétt
BARNAKLÁM Netvæðingunni í heim-
inum er kennt um þá hrikalegu
aukningu sem orðið hefur á glæp-
um í Bretlandi í tengslum við bar-
naklám, en þeir hafa aukist um
1.500% frá árinu 1988. Þetta kem-
ur fram í nýrri skýrslu sem hags-
munasamtök barna í landinu hafa
látið vinna. Samkvæmt henni
voru 549 barnaníðingar ákærðir í
Bretlandi árið 2001, en þeir voru
35 árið 1988. Óttast er að ástandið
eigi eftir að versna enn frekar og
glæpum þar af leiðandi fjölga,
meðal annars með tilkomu nýrra
netsíma. Yfirvöld víða um heim
hafa þungar áhyggjur af þessari
þróun.
„Netið hefur gjörbreytt
mynstrinu í þessum efnum og
gerir barnaníðingum kleift að
fremja glæpi þannig að erfitt
reynist að rekja slóð þeirra. Það
hefur orðið gríðarleg aukning á
glæpum sem tengjast spjallrásum
á Netinu og við því verða yfirvöld
að bregðast,“ segir John Carr, höf-
undur bresku skýrslunnar. ■
Kárahnjúkar:
Viðbrögð við
bruna æfð
KÁRAHNJÚKAR Starfsfólki Impreg-
ilo og undirverktaka við Fremri
Kárahnjúk verða kennd viðbrögð
við eldsvoða og meðferð hand-
slökkvitækja.
Þá hefur Impregilo óskað eftir
að slökkviliðið á Héraði haldi æf-
ingar í reykköfun með slökkvilið-
inu við Kárahnjúka svo betur
megi bregðast við þurfi þess með.
Það er ekki allt, þar sem ókeyp-
is ítölskukennsla hefst í Kára-
hnjúkaskóla í dag. Kennd verða
undirstöðuatriði í ítölsku máli og
málfræði, markmið kennslunnar
er að nemendurnir geti bjargað
sér á ítölsku. ■
ÁRÁSARMANNA LEITAÐ
Þrjár herþyrlur hafa verið skotnar niður í
súnní-þríhyrningnum að undanförnu.
Þyrla skotin niður:
Sú þriðja á
stuttum tíma
ÍRAK Enn ein herþyrlan var skotin
niður í Írak í gær, að þessu sinni í
nágrenni bæjarins Habbaniya um
80 kílómetra vestur af höfuðborg-
inni Bagdad á svæði þar sem
skæruárásir hafa verið tíðar á
undanförnum vikum.
Að sögn talsmanns hersins
voru tveir flugmenn í þyrlunni,
sem var af gerðinni Apache, og
munu báðir hafa sloppið ómeiddir.
Þetta er þriðja bandaríska
þyrlan sem skotin er niður á
svæðinu, sem er innan súnní-
þríhyrningsins, á síðustu tveimur
vikum en í síðustu viku fórust níu
bandarískir hermenn þegar
sjúkraþyrla var skotin niður í
nágrenni Fallujah. ■
Við þurfum
fleiri sjálfboðaliða!
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til þess að
sinna margvíslegum mannúðarverkefnum deildarinnar.
Kynningarfundur fyrir nýja sjálfboðaliða verður haldinn í sjálfboða-
miðstöðinni Hamraborg 11 fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.
Um er að ræða verkefni sem henta körlum jafnt
sem konum, fólki á öllum aldri:
• Heimsóknavinir
• Aðstoð við geðfatlaða
• Föt sem framlag
• Starf með ungum innflytjendum
• Neyðarvarnir
• Ökuvinir
• Fataflokkun og afgreiðsla í L-12
• Fjölsmiðjan
Nánari upplýsingar:
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11,
opin virka daga kl. 12-14
Sími 554 6626
kopavogur@redcross.is
www.redcross.is/kopavogur
Kynningarfundur
HEILBRIGÐISMÁL Sjúklingar sem hafa
hlotið höfuðáverka eru líklegir til
að þjást af þunglyndi og öðrum
kvillum síðar, samkvæmt nýrri
rannsókn sem gerð var af læknum í
Iowa í Bandaríkjunum. Um hund-
rað sjúklingar, sem allir höfðu
meiðst á höfði, voru rannsakaðir og
voru þeir bornir saman við einstak-
linga sem einnig höfðu slasast en þó
ekki á höfði. Hóparnir voru undir
eftirliti í ákveðinn tíma og var sér-
staklega skoðað hvort sjúklingarnir
ættu við andleg vandamál að stríða.
Í ljós kom að rúmlega þriðjung-
ur þeirra sem höfðu slasast á höfði
þjáðist af alvarlegu þunglyndi og
öðrum geðröskunum fyrsta árið
eftir að þeir slösuðust. Margir
sýndu ennfremur einkenni kvíða og
ríflega helmingur áverkasjúkling-
anna reyndist vera árásargjarn.
Rannsóknin sýndi að líklegra væri
að þunglyndi hrjáði þá sem hlotið
höfðu höfuðmeiðsli en þá sjúklinga
sem orðið höfðu fyrir annars konar
líkamlegu hnjaski.
Þegar læknaskýrslur um 900
heilaskaddaðra sjúklinga voru skoð-
aðar reyndist helmingur þeirra eiga
við einhvers konar geðræn vanda-
mál að etja. Til samanburðar voru
rannsakaðar skýrslur hundruð ann-
arra sem hlotið höfðu aðra áverka,
en aðeins einn af hverjum fimm
greindist með slík vandamál. ■
ÞUNGLYNDI
Bandarísk rannsókn leiðir í ljós að þeir sem meiðst hafa á höfði einhvern tímann á
ævinni geta síðar átt á hættu að þjást af þunglyndi og öðrum geðrænum kvillum.
Rannsóknir á höfuðáverkum:
Geta leitt til alvar-
legs þunglyndis
BARNAKLÁM Á NETINU
Óttast er að barnaníðingum eigi eftir að
fjölga enn frekar á næstu árum vegna
tilkomu Netsins.
Barnaklám á Netinu:
Glæpir hafa aukist
um 1.500%
Mæst á miðri leið
Heilbrigðisráðherra fagnar samkomulagi sem samninganefndir heilbrigðisráðuneytisins og
Læknafélags Reykjavíkur náðu í gær. Læknar fjölluðu um málið langt fram á kvöld.
HEILBRIGÐISMÁL Samninganefndir
Læknafélags Reykjavíkur og heil-
brigðisráðuneytisins komust í gær
að samkomulagi um samning sem
lagður var fyrir lækna í gærkvöldi.
Hinn nýi samningur, sem
samninganefnd Læknafélags
Reykjavíkur fyrir hönd sérfræði-
lækna og samninganefnd heil-
brigðisráðuneytis gerðu með sér,
gildir út þetta ár. Helstu breyting-
ar frá fyrri samningi eru þær, að
sérfræðilæknar geta nú sagt sig
frá samningi með eins mánaðar
fyrirvara. Úrsögnin er þó skilyrt
að því leyti, að samstarfsnefnd
verður að samþykkja afsögnina.
Sé ekki völ á samsvarandi þjón-
ustu innan almannatrygginga-
kerfisins og viðkomandi læknir
veitir, getur nefndin hafnað úr-
sögn hans. Læknar sem segja sig
frá samningi geta, samkvæmt
samkomulaginu verið utan samn-
ings tvo mánuði á ári.
Læknar fjölluðu um málið á
fundi í gærkvöldi en niðurstaða
þeirra lá ekki fyrir þegar blaðið fór
í prentun.
„Þetta tryggir að það sé eitt kerfi
í gangi í landinu og það er meginat-
riðið,“ sagði Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra eftir undirritun
samningsins í gær. „Þarna hafa
menn mæst á miðri leið,“ sagði Jón.
Önnur atriði sem náðst hafði
samkomulag um áður en upp úr
samningaviðræðum slitnaði eru
óbreytt. Einingaverð er 206 krónur
Afsláttarkerfið verður áfram í
gildi, en einhverjar breytingar
verða á því innbyrðis. Nýi samn-
ingurinn kostar tvo milljarða
króna, sem er innan ramma fjár-
laga. Um er að ræða þriggja pró-
senta hækkun frá fyrra samningi.
Fyrri samningur, sem sérfræði-
læknar höfðu sagt upp rann út um
áramót. Þá slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum og deilan var í hörð-
um hnút þar til nú að aðilar mætt-
ust á miðri leið, sem leiddi til sam-
komulags.
Spurður um hvernig farið yrði
með mál sjúklinga, sem greiddu
fullt verð fyrir læknisþjónustu
meðan samningurinn var ekki í
gildi sagði ráðherra, að athugað yrði
hvort hægt yrði að koma til móts við
þá. Hann kvaðst þó ekki geta fullyrt
um endurgreiðslur Tryggingastofn-
unar til þeirra á þessu stigi. Hann
kvaðst myndu þurfa að ræða það
mál í ríkisstjórn. Sjálfur hefði hann
vilja til að koma til móts við þennan
hóp.
jss@frettabladid.is
UNDIRRITUN
Formenn samninganefnda, Garðar Garðarsson fyrir hönd heilbrigðisráðuneytis og Óskar Einarsson fyrir hönd Læknafélags Reykjavíkur,
skrifuðu undir nýjan samning síðdegis í dag.