Tíminn - 05.08.1971, Side 5
’pSMMTUDAGUR 5. ágúst 1971
TIMINN
5
MEÐ MORGUN
KAFFINU
Geðlæknar sálgreina oft
sjálía sig í ritverkum sínum.
Sýna þá sinn innri mann og
leyna ekki vísindalegri eftirtekt
og nákvæmni og hvernig gera
má fullt fyllra. Þórður Möller,
yfirlæknir, skrifar svo í bók-
inni, Man ég þann mann, útg.
1968:
„Var hann þar með stóra
bollann sinn, sem hann notaði
jöfnum höndum fyrir kaffi og
te, og að þessu sinni fullan af
te. Braut hann svo egg og hellti
því hrán ofan í bollann! Þetta
voða-brugg — að því er mér
fannst — drakk hann svo með
velþðknun. — Ég sagði ekki
neitt, en prisaði mig sælan að
vera ekki boðið upp á svona
góðgerðir!
Ég talaði varlega utan að
þessu furðu fyrirbrigði við séra
Friðrik mörgum árum seinna,
og setti að honum slíkan hlátur,
að hann mátti vart mæla.
Þetta var alls ekki te! — held
ur heitt kjötseyði, sem var ekki
ósvipað á lit og sterkt te, —- og
með hráu eggi er það mesta
kjörmeti og undirstöðugóður
árbftnr í bezta lagi.“
Jón, þú verðu rað taka þig á.
Þú hefur bara selt tvö far-
þegaskip í þessar viku.
— ff.vr
Því miður cigum við ckki fleiri
eftir af hinum.
Tollgæzlustjóri hafði fengið
að gjöf frá skipstjóra á milli-
landaskipi 14 kassa af víni, rétt
áður en tollleit átti að fara
fram í skipinu. Við tollleitina
fundu starfsmenn tollgæslu-
stjóra miklar vínbirgðir hjá
hásetunum en ekkert hjá stýri-
manni og skipstjóra.
Undir málaferlunum, sem út
af þessu urðu, varð stýrimanni
það að orði við skipstjóra: „Unn-
steinn er egta“.
Skipstjóri brosti og mælti:
„Þó hann sé ekki 14 karata, þá
er Unnsteinn vissulega 14
kassa. þá er omáy
I einum árgangi Menntaskól-
ans í Reykjavík brautskráðust
3 embættismannasynir, sem all-
ir hétu Þórður. Faðir eins þeirra
fékkst mikið utan embættis við
sagnfræðigrúsk og ritaði 2 sagn
fræðibækur. í stúdentafagnaði
sem þá var haldinn, leitaði fað-
irinn með sagnfræðiáhugann
álits og spásagnargáfu Boga
Ólafssonar, yfirkennara, hver
Þórðanna myndi eiga lengstu og
glæsilegustu söguna. Boga, sem
lítið var um hina nýútskrifuðu
Þórða, var skjótur til svars að
vanda: „Þórður Malakoff".
u □ O
00 0
D F" l\l N I Ilún er ágætis kokkur, en
hún er alltaf mcð þessar gul-
DÆMALALJ SIrætur j öllu
Þrjár ungar og fallegar stúlk
ur voru fyrir nokkrum dögum
dæmdar sekar um að vera með-
limir í skæruliðasamtökum
Palestínu Araba og hafa áform-
að að sprengja í loft upp sex
hótel í Tel Aviv og þrjú í hafn-
— —
, , \'aó .h,öfum þegar birt mynd
af sigurvegurunum í „ungfrú
Alheimskeppninni, svo við
sleppum henni núna. Hins veg-
ar hefur ekki komið fram enn,
að sigurvegarinn, ungfrú
Líbanon, er 18 ára, þó sumum
hafi fundist hún geta verið 10
árum eldri. Hún segist vera
mjög ánægð með lífið yfirleitt
og ekki minnkaði ánægjan, þeg-
ar hún var kjörin fegursta
stúlka heimsins og fékk meira
en hálfa milljón króna í pen-
ingum fyrir, auk fjölda gullinna
tækifæra.
- * - * -
Brezkur maður og brezk kona
eru nú kornin til Danmerkur í
þeim tilgangi að gifta sig, og
ástæðan fyrir því, að giftingin
fer ekki fram í heimalandi
unga fólksins er, að lög í Bret-
landi meina því að giftast
Hér er um að ræða 24 ára gaml-
an mann, sem ætlar að kvæn-
ast dóttur hálfsystur sinnar, en
hún er 20 ára. Brezk lög leyfa
ekki, að þetta skylt fólk gangi í
hjónaband. Það er hins vegar
heimilt í Danmörku. 1 Dan-
mörku mega systkini eða hálf-
systkini ekki giftast, en öðrum
er það hemilt.
I þorpinu Ban-Ban í héraðinu
Pamír í Mið-Asíu héldu sam-
yrkjubændurnir nýlega með mik
illi viðhöfn hátíðlegt hundrað
ára afmæli landa síns Númons
Gafarofs. Hinum aldna garð-
yrkjumanni, sem bændurnir
heiðruðu svo mjög, tókst að
rækta í hinum hrjóstrugu hlíð-
um við þorp sitt frábæra peru-
tegund, sem nefnd er „Kajon“
Sá gamli er enn vel ern og
heldur áfram að vinna á sam-
yrkiubúinu.
Númon Gafarov á meira en
tvö hundruð og fimmtíu af-
komcndur, dætur, syni, barna-
börn og barnabarnabörn.
arborginni Haifa. Tár blóma-
rósanna höfðu ekki minnstu á-
hrif á herréttinn í Lydda í
Israel, sem kvað upp dóminn.
Sökudólgarnir eru frá vinstri
Nadia Bardaly, 26 ára, fædd í
Marokkó, systir hennar Marilyn,
og Evelyn Barge, 26 ára, sem er
þýzk. Stúlkurnar viðurkenndu
að þær styddu frelsishreyfingu
Palestínu Araba og að þær
hefðu reynt að smygla sprengi-
efnum inn í Israel.
★ - ★ -
Enskar konur krefjast nú
frjálsra fóstureyðinga fyrir all-
ar þær konur, sem þess óska.
Einnig vilja þær, að getnaðar-
varnarlyf verði veitt ókeypis
öllum. Ein af konunum, sem
fremst stendur í baráttunni fyr-
ir þessum málum reið á vaðið
með því að sýna eins konar línu
dans, og hún var svo sannar-
lega ekki í þvi ásgkomulagi, að
reikna mætti með, að línudans
væri það sem auðveldast væri
fyrir hana þessa dagana. Konan,
sem var komin langt á leið klifr
aði upp að glugga á hæð þeirri,
sem kvensjúkdómsdeildin hefur
til yfirráða í háskólanum í Lond
on og kastaði inn um gluggann
mótmælabréfi frá baráttusam-
tökunum. Þetta ættu svo sann-
arlega að vera mótmæli, sem
hafa citthvað að segja.