Tíminn - 05.08.1971, Qupperneq 7
S1MMTUDAGUR 5. ágúst 1971
TIMINN
7
í heimsókn -
Framhald af bls. 8.
að blómum. Koma þau þá
gjarnan með „buketta“, sem
þa# hafa búið til handa okkur
stúlkunum.
Það er ólýsanlega mikill
munur að vera með . börn í
þessu umhverfi en í miðri borg
inni. Þau njóta þess áreiðan-
lega betur og eðlilegar að vera
til. Ég veit þetta líka af minni
eigin reynslu, því að ég hef
flest sumur dvalizt með mín
börn í sumarbústað meðan þau
voru á æsbuskeiði.
Mér er fremur illa við tíðar
heimsóknir foreldra. Þær virð-
ast líka ástæðulausar að mestu,
þvi að ef eitthvað alvarlegt
hendir, veikindi eða því um
líkt, þá eru þeir látnir vita um
það.
Barnaheimili verður að
njóta þess trúnaðar, að þar sé
vel annazt um börnin og ihlut
un foreldranna því óþörf. Þeir
sem ekki geta sætt þeim kosti
ættu að hafa börn sín heima
og fórna einhverju frá sjálfum
sér í þeirra þágu.
Mestu máli skiptir það I
þessu sambandi, að sum börn
veröa óróleg eftir slíkar heim-
sóknir. Það er skilið við þau
skælandi og okkur svo ætlað
að sætta þau við umhverfi sitt
aftur.
Frá þessu eru þó margar
undantekningar. Sum börn
eru það vel öguð, að heimsókn
er þeim aðeins gleðiefni en
raskar ekki að öðru þeirra dag
lega viðhorfi. Þessi börn
mundu heldur ekkert Iíða við
það að vera án heimsóknar.
Kristín Guðmundsdóttir er
ráðskonan á bamaheimilinu.
Hun er hýr og brosmild ung
kona og hjá henni setjumst við
að kaffiborði.
Já, ég er húsmóðir úr
Reybjavík. Maðurinn minn er
trésmiður og við eigum tvær
dætur. Ég tók mér þetta fyrir
hendur til þess að geta kom-
ið telpunum í sveit og verið
þar hjá þeim. Og auðvitað er
ég ánægð þegar börnunum
mínum líður vel. Ég held líka
að mér sé óhætt að segja
að allir dvalargestirnir okkar
hafi það gotf og eru ánægðir
með tilveruna.
Hér er vítt athafnasvið og
leiksvæði, svo börnin geta haft
nóg fyrir stafni, enda eru þau
vel matlystug. Þau fara árla á
kreik á morgnana og snemma
í rúmið á kvöldin.
Já, ég endurtek það, að ég
er ánægö hér, fyrst og fremst
vegna þess að mér finnst ég
vera að vinna fyrir velferð
barnanna minna og þá annarra
barna samhliða
Úti á leikvellinum er allt á
ferð og flugi. Stóru leiksysturn
ar eru þar með börnin. Sum
eru í boltaleik, önnur að róla
sér, einhver í byggingarvinnu
o.s.frv.
Hildur Sigurðardóttir er 14
ára. Hún hefur ánægju af að
vera með börnurn og er vön
að passa þau.
Guðrún Haraldsdóttir er 15
ára. Hún hefur oftast verið
barnfóstra í sumrin og er sam-
mála Hiidi um það. að börn
séu skemmtilegt fólk. Báðar
eru þær stöilur í skóla á vetr-
um.
„Skólinn, já, það er gaman
að læra“.
„Ég trúi, herra“, sagði
TÍGRIS
Þetta er KUBA Carmen. Carmen er stílhreinn,
skemmtilegur og vandaður stereo radiofónn.
Hann er ekki stór (utanmál B 100 x H 75 x D 35
cm), en hann leynir á sér. Hingað til hefur
að minnsta kosti enginn kvartað yfir því, að
hann skilaði ekki sínu (jafnve! ekki hinir gal-
vöskustu gleðskaparmennl). Carmen hefur 4
lofttæmda hátalara (2 hátóns og 2 djúptóns)
og sjálfvirkan „stereo Decoder“. Piötuspilar-
inn er líka sjálfvirkur (fyrir 10 plötur). Viðtækið
í Carmen er langdrægt og hefur 4 bylgjur;
LB, MB, SB og FM. Carmen er sem s§ Biin.
eigulegasti gripur í alla staði. Á Carmen, svó
sem öllum öðrum KUBA og IMPERIAL. stereo-
og sjónvarpstækjum, er- auðvitað líke 3JA
ÁRA skrifleg ábyrgð, sem nær íil allra Wuta
tækisins. Verðið á 'Carmen er 28.600,00 og er
þá miðað við 8.000,00 kr. lágmarks útborgun
og, að eftirstöðvar greiöist á 10 mánuðtim.
Auk þess bjóðum við 8% STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTT (verðið iækkar þá niður f fav,
26.312,00!). Er eftir nokkru að bíða?I
RubaCarmenveitirallri
fjölskyldunni
fjölmargar ánægjustundir
rKZmAHTh iMPERinL
Sjónvarps & stereotæki
NESCOHF
Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192
þetta tæki á erindi
inn á yðarheimili
Tómas, þegar hann hafði séð
og þreifað á. Og ég trúi því
nú að litlu börnin séu þarna
í góðum höndum.
Undrist það hver seoi vill,
þótt eldra fólk láti sig nokkru
skipta hvemig að æskunni er
búið. Og þá væri ég óminnug-
ur þeirrar umhyggju, sem mér
var sýnd ungum, ef ég gengi
rangsælis umhverfis lítil börn.
„Hér er enginn lærð fóstra“,
sagði forstöðukonan. Sízt skal
ég draga úr því að menntun
og starfsþekking sé mikils
virði — En þær konur, sem
annazt hafa uppeldi þeirra kyn
slóða, sem lifaö hefur, á ís-
landi gegnum aldirnar, hafa
fæstar haft aðra menntun en
þá, sem þeim var frá náttúr-
unnar hendi 1 brjóst lögð.
Og lítils virði er þekkingin
i samskiptum við lítil börn, ef
sá sem henni á að miðla er
kalinn á hjarta.
Það er erfitt að draga full-
gildar ályktanir af skyndiheim
sókn, en ég held að hjarta-
kuldi þjaki ekki þær konur,
sem annast litlu börnin
á Hrauni.
Þ.M.
Sveítavinna
17 ára stúlka óskar eftir
að komast á gott sveita-
heimili.
Upplýsingar í síma 21979.
FERÐAFÓLK
Sumar. vetur. vor og haust, heppilegur áningar-
staður. — Verið velkomin. —
STAÐARSKÁLI, HRÚTAFIRÐI
Sími 95-1150.
Skiptafundur verður haldinn í þrotabúi Jóhannesar Pálssonar, Borg-
arnesi, föstud. 9. ág. n.k. kl. lð í sýsluskrifstofunni Borgarnesi. Gerð
verður m.a. grein fyrir rekstri og lokum á fyrirtæki búsins og sölu
helztu eigna þess.
Skiptaráðandinn i Mýra- og Borgarfjar'öarsýslu,
Þorvaldur Einarsson, e. u.