Fréttablaðið - 14.01.2004, Page 12
12 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Rjúpur
Í HJÓLBÖRUFERÐ
Breski leikarinn og dýraverndarsinninn,
Brian Capron, með nokkra órangútaunga í
hjólböruferð á Sepilok-stofnuninni á
Borneó en þar er unnið að því að styrkja
órangútastofninn sem er í útrýmingar-
hættu á Borneó og Súmötru.
Kjaraviðræður Starfsgreinasambandsins:
Vaxandi óþol gagnvart ríkinu
KJARAMÁL Vaxandi óþols gætir hjá
félagsmönnum Verkalýðsfélags
Húsavíkur vegna þess að sérmál
einstakra verkalýðsfélaga gagn-
vart ríkinu hafa ekki verið rædd.
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur, skýr-
ir á heimasíðu félagsins frá stöðu
samningaviðræðna. Aðalsteinn
segir að vaxandi óánægju gæti
meðal félagsmanna með gang
mála, það er að sérmál félaganna
gagnvart ríkinu skuli ekki fást
rædd fyrir alvöru. Hann segir
einn kynningarfund hafa verið
haldinn, það sé allt og sumt.
Samninganefnd ríkisins þing-
aði í gær með fulltrúum Starfs-
greinasambandsins um kjara-
samning ríkisins og aðildarfélaga
Starfsgreinasambandsins. Ákveð-
ið var að vinna áfram í málinu á
næstu dögum.
„Ljóst er að ef ekki fást við-
ræður um sérmál félagsins gagn-
vart ríkinu á næstu dögum mun
félagið boða til fundar með félags-
mönnum um næstu helgi og taka
ákvörðun um næstu skref,“ segir
Aðalsteinn Baldursson.
Stíft er þingað í húskynnum
ríkissáttasemjara þessa dagana
en framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambandsins hittist á föstu-
dag og þá ættu línur að hafa
skýrst til muna. ■
Æskilegt að sameina
Eyjafjörðinn allan
Best væri fyrir íbúa við Eyjafjörð að öll sveitarfélög á svæðinu sameinuðust undir einni sveitar-
stjórn segir bæjarstjóri Akureyrar. Sameining Akureyrar og Hríseyjar gæti orðið fyrsta skrefið
að því marki. Taka þarf reglur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til endurskoðunar.
Sameining Akureyrar og Hríseyj-ar gæti orðið fyrsta skrefið að
því að flest eða öll sveitarfélög við
Eyjafjörð sameinuðust í eitt sveit-
arfélag. Það er í það minnsta von
Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjar-
stjóra á Akureyri. Hann telur að
með því mætti hvort tveggja gera
sveitarfélagastigið betur í stakk
búið til að sinna þjónustu við íbúana
og eins samræma betur stefnumót-
un á svæðinu.
Eitt stórt sveitarfélag
Kristján Þór segir frumkvæðið
að viðræðunum um sameiningu Ak-
ureyrar og Hríseyjar frá hrepps-
nefnd Hríseyjar komið. „Hríseying-
ar hafa ýtt töluvert á eftir þessu.
Bæði sveitarfélögin, Akureyri og
Hrísey, samþykktu á sínum tíma
sameiningu sveitarfélaga í öllum
firðinum. Það sem bæjarfulltrúar á
Akureyri sjá í þessu máli, og vænt-
anlega hreppsnefndarmenn í Hrís-
ey líka, er að það er hagur íbúa alls
svæðisins að styrkja þetta svæði
sem einingu. Einn liður í því er að
færa þetta svæði, helst allt, undir
eina sveitarstjórn.“
„Vonandi,“ svarar Kristján Þór
stutt og laggott, aðspurður um hvort
þetta geti verið fyrsta skrefið að því
að Eyjafjörður allur sameinist í
einu sveitarfélagi. Á síðasta kjör-
tímabili voru uppi hugmyndir um
að sameina öll sveitarfélögin á
svæðinu en um það náðist ekki sam-
staða þó nokkur þeirra hafi haldið
áfram viðræðum; Akureyri, Dalvík,
Ólafsfjörður og Siglufjörður.
Kostirnir við sameiningu sveit-
arfélaga við Eyjafjörð eru fyrst og
fremst þeir að koma svæðinu undir
eina sameiginlega sveitarstjórn
segir Kristján Þór. „Við getum þá
sett svæðinu öllu sameiginleg
markmið fremur en að við séum að
otast hvert í sinni sveit og oft á tíð-
um jafnvel að vinna þvert á það sem
kemur svæðinu í heild best. Við
náum í rauninni að samræma betur
áherslur, samræma þjónustu og
verkefni sveitarstjórnarstigsins
fyrir þá sem á þessu svæði lifa, búa
og starfa.“
„Við sjáum, eins og staðan er í
dag, að það verða ekki flutt fleiri
verkefni til sveitarfélaga að óbreyt-
tri sveitarfélagaskipan. Ekki nema
við förum að skipta sveitarfélögum
í einhverja ákveðna flokka,“ segir
Kristján Þór og vísar þá til þess að
þjónustustig sveitarfélaga gæti ver-
ið misjafnt eftir stærð þeirra og
gerð. „Það getur verið að einhverjir
vilji það en um það hefur ekki verið
mikil umræða. Ég er ekki endilega
að tala fyrir því en hef í sjálfu sér
ekkert á móti því.“
Jöfnunarsjóður vandar málið
Sjálfur hefur Kristján Þór
reynslu af sameiningu sveitar-
félaga. Hann var bæjarstjóri á Ísa-
firði þegar sex sveitarfélög sam-
einuðust í eitt um mitt ár 1996.
Halldór Halldórsson, núverandi
bæjarstjóri Ísafjarðar, sagði í við-
tali við Fréttablaðið í gær að
reynslan af þeirri sameiningu væri
góð, að fjárhaglega hlutanum und-
anskildum. Því væri um að kenna
að reglur Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga hefðu neikvæð áhrif á tekj-
ur sveitarfélaga sem sameinuðust.
Undir þetta tekur Kristján Þór.
„Reglur Jöfnunarsjóðsins eru
þannig að öll viðbót við íbúafjölda
Akureyrarbæjar skerðir framlög
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til
Akureyrar,“ segir Kristján Þór og
er alls ekki sáttur við hvernig hag-
ræðingarkúrfa Jöfnunarsjóðsins
virkar. Hún gerir ráð fyrir að sveit-
arfélög verði betur í stakk búinn að
takast á við verkefni eftir því sem
þau verða fjölmennari og því
skerðast framlög Jöfnunarsjóðs til
þeirra með auknum íbúafjölda.
Minni sveitarfélög fá því hærri
framlög en stærri og þau framlög
geta skerst þegar sveitarfélög
sameinast. „Reglurnar hvetja ekki
til sameiningar.
Reglur um greiðslur úr Jöfnun-
arsjóði koma til með að skipta máli
í viðræðum bæjarstjórnar Akur-
eyrar og hreppsnefndar Hríseyjar
um sameiningu sveitarfélaganna.
Kristján Þór segir að óskað verði
eftir því að félagsmálaráðuneytið
leggi mat á hvaða áhrif reglur
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga – um
hvernig greiða megi fyrir samein-
ingu sveitarfélaga – hafi á fyrir-
hugaða sameiningu Hríseyjar og
Akureyrar.
Kristján Þór segir mikilvægt að
reglur um Jöfnunarsjóðinn komi
ekki í veg fyrir sameiningu sveit-
arfélaga. Því verði að endurskoða
reglurnar. Sú vinna er komin í
gang. Sett hefur verið á fót verk-
efnisstjórn á vegum félagsmála-
ráðuneytisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem fjallar
um sameiningu sveitarfélaga sem
er gert ráð fyrir að verði mikið um
á næsta ári. Önnur tveggja undir-
nefnda verkefnisstjórnarinnar
fjallar um tekjustofna sveitar-
félaga, þar á meðal hvaða áhrif
reglur um framlög úr Jöfnunar-
sjóði hafa á sameiningu sveitarfé-
laga. Ekki er langt síðan nefnd und-
ir forsæti Magnúsar Stefánssonar,
þingmanns Framsóknarflokks,
fjallaði um mál Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga og var þá ráðist í
nokkrar breytingar með hliðsjón af
sameiningu sveitarfélaga. ■
Keppa við Ræsi:
Vilja vera
ódýrastir
BÍLASALA „Undanfarin ár höfum við
aðallega verið að flytja inn notaða
bíla. Núna erum við hins vegar að
undirbúa innflutning á nýjum bíl-
um,“ segir Halldór Baldvinsson.
Hann rekur í félagi við Hjört Jóns-
son bílasölu sem sérhæfir sig í
Mercedes Benz bifreiðum.
Ræsir hefur flutt inn Mercedes
Benz um áratuga skeið en hefur
ekki lengur einkaleyfi á sölu bíla
þeirrar tegundar. „Okkar fókus er
að vera ódýrari en aðrir á mark-
aðnum,“ segir Halldór. „Við erum
komnir með heimasíðu, mer-
cedes.is, og erum með litla yfir-
byggingu.“ ■
SILVIO BERLUSCONI
Stjórnlagadómstóll úrskurðaði friðhelgislög
Berlusconis ógild.
Berlusconi:
Nýtur ekki
friðhelgi
ÍTALÍA Stjórnlagadómstóll á Ítalíu
hefur ógilt lög, sem veittu Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra Ítal-
íu, og fjórum öðrum háttsettum
embættismönnum friðhelgi frá
lögsókn. Stjórnlagadómstóllinn
segir lögin brjóta í bága við ítöl-
sku stjórnarskrána.
Ítalska þingið samþykkti lögin
í júní á síðasta ári eftir að mál
hafði verið höfðað gegn
Berlusconi fyrir meinta spillingu
og var þeim að áliti stjórnarand-
stæðinga aðeins ætlað að forða
Berlusconi tímabundið frá lög-
sókn meðan hann gegndi embætti
forsætisráðherra.
Dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að lögin brytu gegn
lagaákvæðum um jafnan rétt
þegnanna. ■
AKUREYRI
Bæjarstjórn Akureyrar hefur mikinn áhuga á sameiningu
sveitarfélaganna við Eyjafjörð. Formlegar viðræður við
Hríseyinga eru að hefjast og viðræður hafa átt sér stað við
Dalvíkinga, Ólafsfirðinga og Siglfirðinga.
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
Telur til mikils vinnandi að sameina sveit-
arfélögin við Eyjafjörð.
FYRIRHUGUÐ SAMEINING
Akureyri 16.048
Hríseyjarhreppur 180
Samanlagt 16.228
FJÖGUR SVEITARFÉLÖG SEM
HAFA RÆTT SAMAN
Akureyri 16.048
Dalvíkurbyggð 2.025
Ólafsfjarðarbær 994
Siglufjörður 1.438
Fréttaviðtal
BRYNJÓLFUR ÞÓR
GUÐMUNDSSON
■ ræðir við Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóra Akureyrar, um
sameiningu sveitarfélaga
KANNA ÁRANGUR FRIÐUNAR
Rjúpnanefnd, sem Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra skipaði
til að gera tillögur um styrkingu
rjúpnastofnsins, safnar upplýs-
ingum um hvernig verndun rjúp-
unnar hefur verið háttað hingað
til og hvaða árangur það hefur
borið, sérstaklega árangur af því
að bændur hafi bannað veiði í
löndum sínum, að því er Bænda-
blaðið greinir frá.
HÚSVÍKINGAR ÓÞOLINMÓÐIR
Aðalsteinn Baldursson, formaður Verka-
lýðsfélags Húsavíkur, hyggst boða til
félagsfundar um næstu helgi og ræða
aðgerðir ef ekki fást viðræður um sérmál
félagsins við samninganefnd ríkisins.