Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 13
SPRENGJULEIT „Ég er bæði ánægður og stoltur af mínum mönnum,“ segir Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, um framgöngu þeirra Adrians King og Jónasar Þorvaldssonar sem áttu stærstan hlut í því að finna sprengikúlur, hlaðnar sinnepsgasi í grennd við borgina Basra í Írak um seinustu helgi. Jónas og Adrian eru starfsmenn sprengjudeilar Landhelgisgæsl- unnar en voru lánaðir til Íraks um þriggja mánaða skeið. Búist er við að þeir snúi aftur heim í lok næsta mánaðar. Hafsteinn segir að Adrian hafi numið sín sprengjufræði í Bret- landi en Jónas sé aðstoðarmaður hans. Hann segir starf íslensku sprengjusveitarinnar vera það helst að gera óvirk tundurdufl en einnig sé Landhelgisgæslan með samning við Varnarliðið um að eyða sprengjum. „Ég tel að þetta sé eina borgara- lega sprengjusveitin sem starfar fyrir Bandaríkjaher. Sprengju- sveitin okkar er mönnuð einvala- liði og hefur unnið gott starf en oft áhættusamt,“ segir Hafsteinn. ■ 13MIÐVIKUDAGUR 14. janúar 2004 ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON Mælt er með því að hann verði skipaður sóknarprestur. Neskirkja: Örn Bárður er útvalinn ÞJÓÐKIRKJAN Valnefnd Nespresta- kalls í Reykjavík ákvað á fundi sínum í vikunni að leggja til að séra Örn Bárður Jónsson verði skipaður sóknarprestur frá 1. mars næstkomandi. Þrír umsækjendur voru um embætti sóknarprests í Nes- prestakalli. Kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára. Í valnefnd sitja fimm fulltrúar úr prestakallinu, auk vígslubiskups. Séra Örn Bárður hefur gegnt embætti prests í Nesprestakalli síðustu misseri en áður starfaði hann á biskupsstofu. Hann er meðal annars þekktur af smásögu sem hann reit. Sagan fjallaði um sölu Esjunnar og olli uppnámi í samfélaginu. ■ Súðavík: Hreppur í rækjuvinnslu SJÁVARÚTVEGUR Hugmyndir eru sagðar uppi um að Hraðfrysti- húsið-Gunnvör hf. hætti rekstri rækjuverksmiðju í Súðavík og stofnað verði nýtt félag um vinnsluna þar sem Súðavíkur- hreppur verði aðaleigandi. Frá þessu segir á fréttavefnum bb.is og jafnframt að Súðavíkur- hreppur skoði leiðir til þess að tryggja áfram rekstur verk- smiðjunnar. Hugmyndin er sögð sú að verðmæti hlutar Súðavíkur- hrepps í HG verði notaður til þess að stofna nýtt fyrirtæki sem reki rækjuverkmiðjuna og hafi yfir að ráða skipum og kvóta til rækjuvinnslu. Ómar Jónsson, sveitarstjóri Súðavík- urhrepps, staðfesti við bb.is að rætt sé um að mynda nýtt fyrir- tæki. ■ VG mótmælir: Uppsögnin afturför NEYÐARMÓTTAKA Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir harðlega upp- sögn yfirlæknis neyðarmóttöku fyr- ir fórnarlömb nauðgana og áform- um um breytt skipulag og þjónustu í þessum málaflokki. Flokkurinn telur að flutningur neyðarmóttökunnar af slysa- og bráðasviði Landspítalans á kvenna- deildina við Hringbraut sé algjör- lega vanhugsuð aðgerð. Þetta sé skref aftur á bak vegna þeirrar miklu sérstöðu sem þjónustan hafi innan heilbrigðiskerfisins. Vinstri grænir segja að það yrði stórslys ef neyðarmóttakan yrði liðuð í sundur og reynslunni kastað á glæ. ■ Kaupfélag Árnesinga: Styttist í niðurstöðu NAUÐASAMNINGAR Framtíð Kaupfé- lags Árnesinga ræðst væntanlega í byrjun mars næstkomandi þegar nauðasamningur verður borinn upp á fundi með helstu kröfuhöfum til samþykktar eða synjunar. Héraðs- dómur Suðurlands veitti félaginu heimild til að leita nauðasamninga. Einar Gautur Steingrímsson, lögfræðingur og tilsjónarmaður KÁ, segir að búið sé að senda Lög- birtingablaðinu innköllun og að lánardrottnar hafi nú einn mánuð til að lýsa kröfum sínum. Kaupfé- lagið hefur verið í greiðslustöðvun frá 14. júlí, en heildarskuldir nema um einum milljarði króna. ■ Forstjóri Landhelgisgæslunnar stoltur: Eina borgaralega sprengjusveitin SPRENGJULEITARMENN GÆSLUNNAR Adrian King og Jónas Þorvaldsson, sem áttu stærstan hlut í því að finna sprengikúlur hlaðnar sinnepsgasi í Írak, eru hér á vettvangi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.