Fréttablaðið - 14.01.2004, Qupperneq 16
16 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Afmæli
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Öldungadeild Bandaríkjaþingstók kröfu saksóknara um að Bill
Clinton, þáverandi forseti, skyldi
sviptur embætti þar sem hann hefði
gerst sekur um meinsæri og að hin-
dra framgang réttvísinnar í rann-
sókn á kvennamálum hans og ásök-
unum Paulu Jones um kynferðis-
lega áreitni.
Talsmaður Clintons sagði á sín-
um tíma að málatilbúnaðurinn gegn
forsetanum minnti helst á ómerki-
legan reyfara þar sem sakargiftirn-
ar tækju stöðugum breytingum frá
degi til dags. Fréttir af upphafi rétt-
arhaldanna yfir forsetanum féllu þó
í skuggann af yfirlýsingum Larrys
Flint, útgefanda klámblaðsins
Hustler, en hann hélt því fram
nokkrum dögum áður að Bob Barr,
einn þingmanna repúblikana, hefði
einnig gerst sekur um framhjáhald
og meinsæri. Þá boðaði Flynt fleiri
frásagnir af einkalífi annarra þing-
manna.
Clinton slapp, sem kunnugt er,
með skrekkinn og hélt embætti sínu
en 15 dögum eftir að öldungadeildin
tók málið til umræðu hafnaði hún
tillögu um að ákærum á hendur for-
setanum yrði vísað frá og sam-
þykkti að stefna þremur vitnum,
þar á meðal Monicu Lewinsky, til að
bera vitni fyrir luktum dyrum.
Þetta var að vísu ekki draumaniður-
staða Clintons en atkvæði féllu eftir
flokkslínum og því þótti ljóst að
aldrei næðust nógu mörg atkvæði
til að fella forsetann. ■
Adolf Wendel, Kirkjubraut 12, Seltjarn-
arnesi, er látinn.
Arndís Björg Steingrímsdóttir, Nesi í
Aðaldal, lést sunnudaginn 11. janúar.
Geir Borg lést mánudaginn 29. desem-
ber. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Guðný G. Guðmundsdóttir, Smáratúni
48, Keflavík, lést laugardaginn 3. janúar.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Hjálmar Willy Juliussen, Sörlaskjóli 7,
lést laugardaginn 10. janúar.
Hulda Harðardóttir, Kambaseli 85, lést
fimmtudaginn 8. janúar.
Ingimundur Kristjánsson, Yrsufelli 5,
Reykjavík, lést föstudaginn 9. janúar.
Kristinn Breiðfjörð Gíslason, Stykkis-
hólmi, lést laugardaginn 10. janúar.
Ólöf Jónsdóttir, Heiðarvegi 3, Selfossi,
lést laugardaginn 10. janúar.
Pálína Helgadóttir, Lönguhlíð 3, lést
laugardaginn 27. desember. Útför henn-
ar hefur farið fram í kyrrþey.
DAVE GROHL
Söngvari og lagasmiður Foo Fighters og
fyrrum trommari í Nirvana fæddist þann
14. janúar 1969 og er því 35 ára í dag.
14. janúar
■ Þetta gerðist
1978 Breska pönksveitin The Sex
Pistols heldur sína síðustu tón-
leika í Winterland Theater í San
Francisco.
1970 Diana Ross and the Supremes
halda kveðjutónleika í Los Ang-
eles.
1964 Bítlarnir gefa I Wanna Hold Your
Hand út á smáskífu í Bandaríkj-
unum.
1960 Elvis Presley er hækkaður í tign
og gerður að liðþjálfa í banda-
ríska hernum.
1954 Leikkonan Marilyn Monroe og
hafnaboltahetjan Joe DiMaggio
úr NY Yankees ganga í hjóna-
band.
1742 Enski stjörnufræðingurinn
Edmond Halley, sem uppgötvaði
halastjörnuna sem ber nafn
hans, andast 85 ára að aldri.
BILL CLINTON
Kvennamál forsetans enduðu á borðum
öldungadeildar Bandaríkjaþings þegar
ákæruvaldið freistaði þess að fá Clinton
sviptan embætti vegna þess að hann
hafði reynt að ljúga sig út úr ásökunum
um framhjáhald og kynferðislega áreitni.
BILL CLINTON
■ Það blés hressilega um Bill Clinton,
þáverandi Bandaríkjaforseta, í upphafi
ársins 1999 en þann 14. janúar tók
öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir kröfu
saksóknara um að forsetinn yrði sviptur
embætti vegna meinsæris.
14. janúar
1999
Ég hef verið að vasast í þessufrá því í fyrra en er nú orð-
inn formlegur ræðismaður El
Salvador,“ segir Ómar R. Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Ís-
lenskra almannatengsla, sem af-
henti utanríkisráðuneytinu skip-
unarbréf frá Francisco Florez,
forseta El Salvador, í fyrradag.
„Ég sótti ráðstefnu ræðis-
manna El Salvador út um allan
heim í haust þannig að ég hef
komið til landsins en sendiherra
El Salvador í Svíþjóð er ágætis-
kunningi minn og það var óskað
eftir því að ég tæki þetta að mér
eftir ábendingu frá honum.“
El Salvador er sjálfsagt
þekktast fyrir fréttir af upp-
lausn, borgarastyrjöld og of-
beldisverkum en Ómar segir
mikinn uppgang í efnahag lands-
ins um þessar mundir. „Efna-
hagslífið í El Salvador er með
þeim framsæknustu í latnesku
Ameríku og það er nú bara í
Chile sem hagvöxturinn er
meiri.“
Ómar gerir ekki ráð fyrir að
verða kaffærður í verkefnum
tengdum ræðismannsstarfinu
enda lítil ferðamannastraumur
frá Íslandi til El Salvador og öf-
ugt. „Tengsl landanna eru aðal-
lega í gegnum samstarf tengdu
rannsóknum á jarðskjálftum og
vistvænni framleiðslu á raforku
en El Salvador stendur framar-
lega á báðum þessum sviðum.“ ■
Enginn gefur honum bækur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Eyrún Auðunsdóttir
frá Ysta Skála, Vestur-Eyjafjöllum,
andaðist að heimili sínu að kvöldi 7.janúar.
Auðbjörg Reynisdóttir
Viktor Þór Reynisson Anna Kristín Kristófersdóttir
Jóhann Reynisson Ingibjörg Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Nú er ég kominn upp á útsýnis-pallinn og get skyggnst um,“
segir Sigurður Svavarsson, út-
gáfustjóri bókaforlagsins Iðunnar
og formaður félags íslenskra
bókaútgefenda, sem er fimmtug-
ur í dag. Þrátt fyrir mikil veislu-
höld undanfarið er stefnt að því að
hóa í ættingja og helstu vini um
næstu helgi til að fagna áfangan-
um. „Föstudaginn þar á eftir mun
ég svo hella upp á vinnufélagana.“
Sigurður, sem hefur verið lengi
tengdur bókabransanum, segist fá
allt annað en bækur í afmælis-
gjafir. „Það er sjaldgæft að fólk
gefi mér bók. Ég á talsvert mikið
af þeim og alltof margar sem ég á
eftir að lesa. Skiptimyntin fyrir
bækurnar virðist vera silkisnifsið
og viskíflaskan.“
Eftirminnilegasta afmælið var
fyrir rúmum áratug þegar Sigurð-
ur var einn að væflast um
Helsingfors í 22 stiga frosti. „Ég
fann ekki fólkið sem ég átti að
hitta þarna á fundi, ráfaði einn um
og hlustaði á ísbrjótana. Síðan
reyndi ég að hringja heim, en þá
var konan úti með börnin að halda
upp á afmælið mitt. Þetta var
rosalega einsemdarlegt.“
Þrátt fyrir að jólatörn bóka-
útgefenda sé nú lokið er nóg að
gera hjá Sigurði. „Menn eru að
jafna sig, skipuleggja starfið
framundan og raða útgáfuáætlun-
um. Það er aldrei stopp, bara mis-
munandi mikill erill. Það er alltaf
skemmtilegt að geta hugað að
framtíðinni.“ Þessir dagar eru
mjög spennandi fyrir bókaútgef-
endur, því í næstu viku verða
bókaskil komin í hús og þá er ljóst
hvernig sala bóka gekk fyrir jólin;
hvaða bækur seldust betur en
áætlað var og hverjar voru undir
væntingum.
Spenna næstu viku ríður ekki
við einteyming, því á fimmtudag-
inn eftir viku mun félag íslenskra
bókaútgefenda tilkynna hvaða
bækur hljóti íslensku bókmennta-
verðlaunin. „Það er alltaf gaman
að sjá hvað bætist við landsliðs-
flokkinn í bókmenntum. Það er
áberandi ef litið er yfir söguna
hvað verðlaunin hafa alltaf ratað
til verðugra höfunda þó sannar-
lega séu margir aðrir góðir sem
banka á dyrnar.“ ■
Emanúel Morthens er 83 ára í dag.
Ræðismaður
ÓMAR R. VALDIMARSSON
■ almannatengill er orðinn helsti
tengiliður Íslands við El Salvador en gerir
ekki ráð fyrir miklum önnum
sem ræðismaður landsins.
Clinton kærður
ÓMAR R. VALDIMARSSON
Hefur bæst í flokk um 70 ræðismanna er-
lendra ríkja með aðsetur á Íslandi og er
því í góðum félagsskap til dæmis Eyþórs
Arnalds, ræðismanns Botsvana, og
Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur fréttamanns
sem er ræðismaður Sviss á Íslandi.
Ræðismaður og almannatengill
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2004
Pilot Super Grip kúlupenni
Verð 75 kr/stk
NOVUS B4 FC
heftar 50 blöð.
Verð 1.798 kr
NOVUS B 90
Rafmagnsheftari 25 blöð.
Verð 7.485 kr
Borðmotturnar frá Múlalundi
Geisladiskar
í miklu úrvali
13.30 Guðný Sigríður Sigurðardóttir verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju.
13.30 Hrafnhildur Tómasdóttir, Kríuhól-
um 4, verður jarðsungin frá Bú-
staðakirkju.
13.30 Karitas Bjargmundsdóttir, Baug-
húsum 10, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
13.30 Jónína Davíðsdóttir verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju.
13.30 Sigþrúður Sigrún Eyjólfsdóttir,
Hrafnistu í Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
13.30 Stefanía G. Guðmundsdóttir frá
Litla-Kambi, Breiðuvík, verður jarð-
sungin í Seljakirkju.
14.00 Magnús Jón Þorvaldsson, Dranga-
völlum 4, Keflavík, frá Sveinseyri við
Dýrafjörð, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
SIGURÐUR SVAVARSSON
Verður á Bessastöðum í næstu viku við afhendingu íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Afmæli
SIGURÐUR SVAVARSSON
■ er fimmtugur.
Ætlar að tvískipta afmælisfagnaðinum.