Fréttablaðið - 14.01.2004, Page 24

Fréttablaðið - 14.01.2004, Page 24
14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR Árni Gautur Arason: Gæti samið fyrir vikulok FÓTBOLTI „Við gætum samið við Árna fyrir vikulok en ég held ekki að það sé raunhæft að reikna með honum í leiknum gegn Blackburn,“ sagði Kevin Keegan, framkvæmda- stjóri Manchester City, í viðtali við heimasíðu félagsins. Á síðunni kem- ur fram að Keegan vilji gera skammtímasamning við Árna. „Hann hefur ekki spilað í sex eða sjö vikur. Ef við fáum engan annan fyrir laugardaginn notum við Kevin Ellegaard eða hinn unga Kasper Schmeichel. Ég vona samt að það komi ekki til þess því við erum að reyna að fá annan markmann.“ „Við vitum að hann er hæfur markmaður og vitum að hann er landsliðsmaður,“ sagði Keegan. „Við ætlum bara að vera vissir um að hann sé í góðri æfingu og ef hann er það getum við boðið honum skammtímasamning.“ ■ KÖRFUBOLTI Í kvöld verður háður í Seljaskóla stjörnuleikur kvenna í körfubolta. Öll félög 1. deildar og Haukar úr 2. deild standa fyrir leiknum sem hefst klukkan 20. Stjörnuleikur kvenna hefur ekki áður verið haldinn en hann verð- ur með sama sniði og leikur karl- anna sem fram fór í Seljaskóla um síðustu helgi. Þeir sem standa að leiknum eru fullvissir um að úrvalslið kvenna geti ekki síður boðið upp á spennandi og skemmtilegan leik en karlarnir. Í stjönuleiknum mætast lið Reykjavíkur, sem er skipað leik- mönnum úr ÍS, KR og ÍR, og lið Suðursins, sem er skipað leik- mönnum úr Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Haukum. Valið var í liðin með opinni kosningu á Net- inu. Kosið var í fimm manna byrj- unarlið en liðin skipuð þeim tíu leikmönnum sem fengu flest at- kvæði. Þjálfarar liðanna bættu síðan við tveimur leikmönnum. Þátttakan í atkvæðagreiðsl- unni var mjög góð, því alls greiddu 825 atkvæði. Alda Leif Jónsdóttir (ÍS) fékk flest atkvæði í kjörinu en Erla Þorsteinsdóttir (Keflavík) fékk langflest atkvæði í kjöri á Suðurliðinu. Byrjunarlið Reykjavíkur er skipað Öldu Leif Jónsdóttur (ÍS), Eplunus Brooks (ÍR), Hildi Sig- urðardóttur (KR), Lovísu Guð- mundsdóttur (ÍS) og Katie Wolfe (KR). Aðrir leikmenn eru Kristrún Sigurjónsdóttir (ÍR), Stella Rún Kristjánsdóttir (ÍS), Guðríður Svana Bjarnadóttir (ÍS), Rakel Margrét Viggósdóttir (ÍR) og Svandís A Sigurðardóttir (ÍS). Þjálfarinn Ívar Ásgrímsson valdi ennfremur Jófríði Halldórsdóttur (ÍS) og Hafdísi Helgadóttur (ÍS). Byrjunarlið Suðursins er skip- að Erlu Þorsteinsdóttur (Kefla- vík), Helenu Sverrisdóttur (Haukum), Erlu Reynisdóttur (Keflavík), Pálínu Gunnlaugs- dóttur (Haukum) og Birnu Val- garðsdóttur (Keflavík). Aðrir leikmenn eru Auður R. Jónsdóttir (Njarðvík), Sólveig Gunnlaugs- dóttir (Grindavík), Marín R. Karlsdóttir (Keflavík), Anna María Sveinsdóttir (Keflavík) og Petrúnella Skúladóttir (Grinda- vík). Þjálfarinn Pétur Guðmunds- son valdi auk þeirra Maríu B. Er- lingsdóttur (Keflavík) og Kesha Tardy (Grindavík). ■ Alda Leif og Erla fengu flest atkvæði Fyrsti stjörnuleikur kvenna í körfubolta fer fram í Seljaskóla í kvöld TENNISNÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST Í SPORTHÚSINU! Byrjendanámskeið fyrir fullorðna. Verð frá 7500 kr. Tennisnámskeið fyrir börn 7-10 ára á sunnudögum. Litli Tennisskólinn fyrir 4-6 ára kl. 12:00 á sunnudögum. Eigum einnig nokkra lausa áskriftartíma í tennis í vetur. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030. ÁRNI GAUTUR ARASON Kevin Keegan vill semja við Árni Gaut Arason. ALDA LEIF JÓNSDÓTTIR Fékk flest atkvæði í netkosningu vegna stjörnuleiksins í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.