Fréttablaðið - 20.01.2004, Qupperneq 8
8 20. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Hræringar í sjávarútvegi
„Óttinn við að missa fyrirtækin
er svo ríkur að menn taka fyrir-
tæki af markaði til að breyta
þeim aftur í fjölskyldufyrirtæki.“
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, Frétta-
blaðið 19. janúar.
Og hana nú
„Mér finnst ég hvergi óhult, ekki
einu sinni heima hjá mér. En
þetta eru aumingjar með hor og
það á að taka á þeim.“
Þórhildur Ásgeirsdóttir, eigandi Vídeospólunnar,
um sjoppuræningja, DV 19. janúar.
Á kafi í keytunni
„Og nú svamlar fræðimaðurinn
ákaflega í safnþró sinni. En á
bakka hlandforarinnar standa
björgunarsveinar Aðalritara, Jón
háyfirdómari og Jakob sagnfræð-
ingur og hæla hundasundinu.“
Sverrir Hermannsson um orðaskak vegna ævi-
sögu Laxness, Morgunblaðið 19. janúar.
Orðrétt
Kæru Samherja vegna Félagsdóms vísað frá í Hæstarétti:
Kærði degi of seint
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur vísað
frá dómi Félagsdóms í máli Sam-
herja gegn Vélstjórafélagi Ís-
lands. Í Félagsdómi var Samherji
dæmdur til greiðslu rúmlega 340
þúsund króna sektar í félagssjóð
Vélstjórafélagsins fyrir brot á
ákvæðum kjarasamninga. Sam-
herji tryggði ekki vélstjórum á
frystitogaranum Baldvini Þor-
steinssyni EA-10 frí við löndun í
júní síðastliðnum, líkt og samn-
ingar kveða á um.
Samherji mótmælti því að
ákvæði kjarasamninga hefðu ver-
ið brotin, enda hafi áhöfnin tekið
að sér löndun gegn greiðslu sam-
kvæmt eigin ákvörðun, án fyrir-
mæla útgerðar þar um, en það
hafi skipverjum verið fyllilega
heimilt. Þá hafi enginn vélstjór-
anna unnið við umrædda löndun.
Félagsdómur taldi að ákvæði
samninga hefðu verið brotin og
dæmdi útgerðina til greiðslu
sektar. Samherji kærði dóm
Félagsdóms en Hæstiréttur vís-
aði málinu frá þar sem kæran
barst degi eftir að viku kæru-
frestur rann út. ■
Spennan
að aukast
Samskipti ólíkra hópa hafa á síðustu árum í
vaxandi mæli einkennst af spennu, segir lektor
í sögu Mið-Austurlanda.
FÉLAGSMÁL Víða í Evrópu telja
menn sig hafa orðið vara við
aukna spennu milli þeirra sem eru
ólíkrar trúar. Nefnt er að íkveikj-
um í moskum múslima, bænahús-
um gyðinga og kirkjum kristinna
manna fari fjölgandi og eins hafa
hugmyndir um
að banna nem-
endum að bera
trúarleg tákn í
skólum valdið
deilum í Frakk-
landi.
„Þetta er
hluti af þessari
neikvæðu þróun
sem hefur átt
sér stað síðustu
fimm árin,“ seg-
ir Magnús Þor-
kell Bernharðs-
son, lektor í
sögu Mið-Aust-
urlanda við Williams College í
Bandaríkjunum, sem heldur á
næstunni námskeið hjá Endur-
menntunarstofnun Háskóla Ís-
lands um viðhorf múslima til
Vesturlanda. „Spennan er sífellt
að aukast, bæði hjá múslimum og
þeim sem eru ekki múslimar. Þeir
eru að skipta heiminum upp í tvö
lið og gera því árásir, hvort sem
er líkamlega eða í orðum eða riti.
Yfirleitt er þetta byggt á fáfræði
eða misskilningi. Stundum eru
þetta pólitísk sjónarmið, stundum
rasísk og stundum trúarleg.“ Því
segir hann mikilvægt að fólk
fræðist um það sem að baki býr.
Margt veldur því að spennan
eykst núna, að sögn Magnúsar;
átök Ísraela og Palestínumanna
og hugmyndir um nýja Evrópu,
stærra Evrópusamband, svo
dæmi séu tekin.
Magnús segir viðhorf múslima
til Vesturlanda afar misjöfn.
„Sumir líta á vestræna menningu
sem einhvers konar sjúkdóm sem
kemur til með að veikja líkama
múslima. Eina ráðið við því er að
fá sér meðal. Það meðal er íslam.
Aðrir líta ekki á þetta sem sjúk-
dóm heldur eðlilegan hlut, eitt-
hvað sem hægt er að velja úr og
hafna, rétt eins og við Íslendingar
veljum úr því sem okkur býðst frá
útlöndum.“ Þannig búi fjöldi mús-
lima í mörgum löndum í góðu
samkomulagi við fólk af öðrum
trúarbrögðum meðan aðrir telji
sína túlkun á Kóraninum hina
einu réttu.
Þrátt fyrir þetta hafa hópar
bókstafstrúarmanna sótt í sig
veðrið. „Slíkir hópar ná kannski
frekar að dafna á tímum ófriðar
og bágs efnahagslífs,“ segir
Magnús og telur að hófsamari trú-
menn kunni þá að eiga erfiðara
uppdráttar.
brynjolfur@frettabladid.is
Kona fæddi sexbura:
Tíu dagar á
milli barna
MICHIGAN Bandarísk kona á þrí-
tugsaldri var tæpa tíu sólar-
hringa að fæða sexbura. Börnin,
fjórir drengir og tvær stúlkur,
fæddust þremur mánuðum fyrir
tímann á sjúkrahúsi í Michigan.
Fyrsta barnið kom í heiminn
7. janúar en hin fimm létu ekki
sjá sig fyrr en 16. og 17. janúar.
Börnin eru öll talin í lífshættu
en læknar segjast þó bjartsýnir
á að þau muni lifa af. Móðirin,
Amy Van Houten, er við ágæta
heilsu.
Van Houten hafði tekið inn
frjósemislyf til að auka líkurnar
á því að hún yrði þunguð. ■
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist
skilning á undirstöðuatriðum myndbandsgerðar
allt frá því að breyta hugmynd í handrit og
fínpússa myndbönd með ýmsum effektum.
- Kvöld og helgarnámskeið hefst 26. janúar.
- Lengd: 36 stundir - Stgr.verð: 30.400
Ert þú einn af þeim
sem átt stafræna
upptökuvél og langar
til að læra að vinna
efnið sem þú tekur
upp í þínu eigin
„stúdíói“?
NÁMSGREINAR:
- klipping
- hljóðsetning
- Textavinnsla
- Tökutækni
- Effectar
- Verkefnavinna
NTV býður nú spennandi tveggja anna námsbrautir.
Skemmtilegt og krefjandi nám fyrir alla sem vilja styrkja
stöðu sína á vinnumarkaði.
gHeiti brautar Stundir St r. verð
Skrifstofu- og rekstrarnám 462 357.200
Skrifstofunám og hönnun 414 304.950
Sölunám og hönnun 420 304.950
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám 396 282.150
NORÐUR-KÓRESKUR BÓNDI
Landbúnaður er mjög frumstæður í
Norður-Kóreu.
Matvælaáætlun SÞ:
Milljónir
án matar
PEKING, AP Matvælaáætlun Samein-
uðu þjóðanna hefur neyðst til að
hætta við aðstoð við 2,7 milljónir
Norður-Kóreumanna vegna skorts
á erlendum framlögum. Flestir
skjólstæðinga Matvælaáætlunar-
innar eru börn, konur og gamal-
menni.
Í desember vöruðu forsvars-
menn Matvælaáætlunarinnar við
því að hungursneyð væri yfirvof-
andi í Norður-Kóreu. Bandaríkin,
Evrópusambandið og Ástralía hétu
því að auka framlög sín en að sögn
talsmanna Matvælaáætlunarinnar
geta liðið allt að þrír mánuðir þar
til matarbirgðirnar berast til
landsins.
Norður-Kóreumenn hafa verið
háðir erlendri matvælaaðstoð síð-
an landbúnaðarkerfi þeirra hrundi
um miðjan tíunda áratuginn. ■
MAGNÚS ÞORKELL BERNHARÐSSON
„Á tímum hnattvæðingar er ekki óeðlilegt að endurskoða hvað sé átt við með þjóð og
þjóðerni,“ segir lektor í sögu Mið-Austurlanda.
„Sumir líta
á vestræna
menningu
sem einhvers
konar sjúk-
dóm sem
komi til með
að veikja lík-
ama músl-
ima.
BALDVIN ÞORSTEINSSON EA-10
Vélstjórafélagið taldi að Samherji hefði
brotið ákvæði kjarasamninga með því að
tryggja ekki vélstjórum frí við löndun. Fé-
lagsdómur var sammála Vélstjórafélaginu.
Fjögur togskip í flota Húsvíkinga:
Aldey til heimahafnar
SJÁVARÚTVEGUR Fyrsta togskipið af
fjórum sem flytjast til Húsavíkur
í kjölfar stofnunar rækjurisans
Íshafs hf. kom til heimahafnar í
gær. Það var Aldey, sem áður hét
Votaberg SU.
Stofnendur Íshafs eru Vísir hf.
í Grindavík, Eskja hf. á Eskifirði
og Húsavíkurbær. Íshaf á tæp 18
prósent af úthafsrækjukvótanum
við landið og auk þess 30 prósenta
hlut í innfjarðarækju á Skjálfanda
og 4 prósent af rækjukvóta á
Flæmingjagrunni.
Hin skipin þrjú sem flytjast
norður fara þangað á næstu vik-
um.
Flatey, sem áður hét Gissur
ÁR, lætur úr höfn í Reykjavík í
dag og er væntanleg til Húsavíkur
á morgun. Þriðja skipið, Seley,
sem áður hét Guðrún Þorkelsdótt-
ir SU, er væntanleg norður til
Húsavíkur í lok mánaðarins.
Fjórða togskipið, Húsey, sem áður
hét Hólmanes SU, fer svo norður í
febrúar.
Hin nýju nöfn skipanna eru öll
þekkt örnefni fyrir norðan. Raun-
ar stóð til að láta Guðrúnu Þor-
kelsdóttur heita Eskey en nafnið
var bundið einkaleyfi og því varð
Seley fyrir valinu.
Búið er að ráða mannskap á öll
skipin fjögur og heldur Aldey til
veiða í dag. ■
FLATEY ÞH Á LEIÐ NORÐUR
Votaberg, sem nú heitir Aldey, kom til nýrrar heimahafnar á Húsavík í gær. Aldey er fyrsta skip-
ið af fjórum sem flytjast norður eftir stofnun rækjurisans Íshafs hf. Flatey, sem áður hét Gissur
ÁR, leggur úr höfn í Reykjavík í dag en Seley og Húsey eru væntanlegar á næstu vikum.