Fréttablaðið - 20.01.2004, Side 24
24 20. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
SKÍÐAFIMI
Ástralinn Lydia Ierodiaconou í keppni í
skíðafimi í Lake Placid á sunnudag.
Skíði
FÓTBOLTI „Já, það er rétt að við
erum að velta fyrir okkur öllum
hliðum og þeim möguleika að
einhvern tímann verði lóðin nýtt
með öðrum hætti,“ sagði Trevor
Birch, stjórnarformaður Leeds
United. „Við þurfum nýjan leik-
vang, hvort sem það verður á El-
land Road eða annars staðar, til
þess að fá þær tekjur sem við
þurfum til að geta keppt meðal
þeirra bestu. Þetta er einföld stað-
reynd lífsins í úrvalsdeildinni.“
„Bygging leikvangs verður
markmiðið en það er langt þangað
til. Ég held að það verði að veru-
leika,“ sagði Birch. „Elland Road
er á atvinnusvæði og væri hentug
lóð fyrir verslunarmiðstöð. Hún
er mjög mikils virði.“ ■
Ungverjar án
lykilmanna
Ungverjar keppa á EM án Carlos Perez, markahæsta leikmanns
HM í fyrra.
HANDBOLTI Íslendingar mæta Ung-
verjum á föstudag í lokakeppni
EM í handbolta. Ungverjarnir
taka þátt í lokakeppni EM í fyrsta
sinn síðan 1998. Þeir léku við
Makedóníumenn í undankeppn-
inni og unnu 33-29 á heimavelli en
töpuðu 33-31 á útivelli. Ungverjar
komu mjög á óvart á HM í Portú-
gal í fyrra þegar þeir náðu sjötta
sæti og tryggðu sér sæti á
Ólympuleikunum í Aþenu í sumar.
Ungverski hópurinn er að
mestu skipaður leikmönnum sem
spila með ungverskum félögum.
Fimm þeirra leika með meistara-
liðinu Fotex Veszprem. Þrír leika
með erlendum félögum, risinn
Lászlo Nagy, sem leikur með
Barcelona, Tamas Mocsai, sem
leikur með Suhr í Sviss, og Arpad
Mohacsi, sem leikur með gríska
félaginu Athinaikos. Auk þeirra
má telja Istvan Pasztor til lykil-
manna liðsins en hann hefur leik-
ið með landsliðinu frá 1992 og er
leikreyndasti maður hópsins.
Ungverjar hafa orðið fyrir
skakkaföllum að undanförnu. Car-
los Perez, markahæsti maður HM
í Portúgal í fyrra, handarbrotnaði
í leik Fotex Veszprem og FC
Barcelona í Meistaradeildinni í
desember og í síðustu viku hand-
arbrotnaði Peter Lendvay, leik-
maður spánska félagsins Octavio
Vigo. Gabor Csaszar hjá Dunaferr
tók sæti hans í hópnum.
Ungverjar hafa tekið þátt í
tveimur undirbúningsmótum eftir
áramót, einu á Spáni og einu á
heimavelli. Ungverjar urðu í öðru
sæti á mótinu á Spáni á eftir
heimamönnum en léku þó án Car-
los Perez og Laszlo Nagy. Þeir
unnu Úkraínumenn 29-28 í fyrsta
leiknum og var Tamas Mocsai
markahæstur Ungverja með sex
mörk. Arpad Mohacsi skoraði átta
mörk þegar Ungverjar unnu Pól-
verja 31-26 í öðrum leiknum en í
þriðja leiknum gerðu Ungverjar
28-28 jafntefli við heimamenn og
unnu upp fjögurra marka forskot
Spánverja á lokakaflanum. Ivo
Diaz skoraði sex mörk.
Ungverjar sigruðu í öllum
leikjum sínum á mótinu í Ung-
verjalandi með nokkrum mun,
Úkraínumenn 32-25, Túnisbúa 37-
26 eftir jafna stöðu í leikhléi og
Sádi-Araba 29-24. Ungverjarnir
keyrðu yfir Sádana með sínu
sterkasta liði en létu síðan vara-
mennina um að klára leikinn. ■
LEIKIR
19.30 ÍS og Grindavík keppa í
Íþróttahúsi Kennaraháskólans í 1. deild
kvenna í körfubolta.
SJÓNVARP
17.20 Motorworld á Sýn. Kraftmik-
ill þáttur um allt það nýjasta í heimi
akstursíþrótta.
17.50 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.20 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.50 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
19.40 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá fyrri leik Arsenal og Midd-
lesbrough í undanúrslitum deildabikar-
keppninnar.
22.00 Olíssport Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.
22.30 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu skíða-
manna á heimsbikarmótum.
23.00 Supercross (Bank One Ball-
park) á Sýn. Nýjustu fréttir frá heims-
meistaramótinu í Supercrossi.
FÓTBOLTI Dómaranefnd FIFA hef-
ur staðfest nöfn íslenskra milli-
ríkjadómara í knattspyrnu fyrir
árið 2004. Tvær breytingar voru
gerðar á listanum frá því í fyrra.
Akureyringurinn Jóhannes Val-
geirsson kemur í stað sveitunga
síns Braga Bergmann, sem náði
hámarksaldri FIFA-dómara á síð-
astliðnu ári. Ingvar Guðfinnsson
tekur sæti Einars Guðmundsson-
ar en hann náði einnig hámarks-
aldri FIFA-aðstoðardómara á síð-
astliðnu ári.
FIFA-dómarar Íslands verða
fjórir sem fyrr; Egill Már Mark-
ússon, Gylfi Þór Orrason, Jóhann-
es Valgeirsson og Kristinn Jak-
obsson. FIFA-aðstoðardómararnir
verða sjö; Einar Sigurðsson,
Eyjólfur Finnsson, Guðmundur H.
Jónsson, Gunnar Gylfason, Ingv-
ar Guðfinnsson, Pjetur Sigurðs-
son og Sigurður Þór Þórsson. ■
Íslenskir FIFA-dómarar:
Tveir nýir
Núpalind 1 Kópavogi • Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði
899
999
VERÐSPRENGJA
Núna næstu daga getur þú sótt til okkar
ljúffengar Pizzur á frábæru verði
Stór Pizza með 2 áleggstegundum á kr.
Stór Pizza með 4 áleggstegundum á kr.
59 12345Opið frá kl. 16-22Alla daga vikunnar
LI
TL
A
PR
EN
T
eh
f.
LEEDS UNITED
Forráðamenn félagsins hugleiða hvort
tímabært sé að byggja nýjan leikvang.
Leeds United:
Á leið frá
Elland Road?
LÁSZLO NAGY
Einn lykilmanna Ungverja, sem leikur með
Barcelona.
GYLFI ÞÓR ORRASON
Hefur verið FIFA-dómari frá 1992.
UNGVERSKI HÓPURINN Á EM
Markverðir
Janos Szathmari (Tatabanya)
Nandor Fazekas (Fotex)
Aðrir leikmenn
Balazs Kertesz (Dunaferr)
Laszlo Nagy (Barcelona)
Tamas Mocsai (Suhr)
Daniel Buday (Fotex)
Gabor Csaszar (Dunaferr)
Balazs Laluska (Pick)
Ivo Diaz (Fotex)
Arpad Mohacsi (Athinaikos)
Ferenc Ilyes (Pick)
Istvan Pasztor (Fotex)
Gergo Ivancsik (Fotex)
Richard Mezei (Pick)
Miklos Rosta (Dunaferr)
Gyula Gal (Veszprem)
hvað?hvar?hvenær?
17 18 19 20 21 22 23
JANÚAR
Þriðjudagur
Intersport-deildin í
körfubolta:
Fimm nýir
leikmenn í
sigri Stól-
anna
KÖRFUBOLTI Tindastóll vann 16
stiga sigur á KFÍ, 111-95, í Inter-
sport-deildinni í körfubolta í gær
en leiknum hafði verið frestað í
tvígang. Bæði lið mættu með mik-
ið breytt lið og fimm leikmenn
stigu sín fyrstu spor í þessum lið-
um í vetur. Tindastóll hafði frum-
kvæðið allan tímann og leiddi 58-
44 í hálfleik. Nick Boyd skoraði 32
stig og tók 9 fráköst fyrir Stól-
anna og nýju mennirnir, Svavar
Birgisson og David Sanders,
gerðu báðir ágæta hluti, Svavar
var með 19 stig og 7 fráköst á 22
mínútum og Sanders bætti við 18
stigum. KFÍ tefldi fram þremur
nýjum Bandaríkjamönnum í
leiknum en stigahæstur hjá liðinu
var þó Pétur Már Sigurðsson með
26 stig. Troy Wiley var með 22
stig og 13 fráköst í sínum fyrsta
leik, Bethuel Fletcher var áber-
andi með 24 stig, 8 stoðsendingar,
7 fráköst og 5 stolna og sá þriðji
sem lék í fyrsta sinn í KFÍ-bún-
ingnum, JaJa Bey, var með 14 stig
og 11 fráköst. ■