Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 4
VÖRUFLUTNINGAR Þrátt fyrir að Vegagerðinni sé kunnugt um að Vöruafgreiðslan á Patreksfirði stundi vöruflutninga án tilskil- inna leyfa hefur ekkert verið að- hafst í málefnum fyrirtækisins. Ný lög um vöruflutninga tóku gildi í september árið 2001 og bar öllum sem ekki höfðu gild leyfi samkvæmt eldri lögum og reglu- gerð að afla tilskilinna leyfa fyrir lok ársins 2001. Vöruafgreiðslan á Patreksfirði var meðal leyfis- lausra fyrirtækja en hélt starf- seminni áfram án þess að afla rekstrarleyfis. Vöruafgreiðslan flytur meðal annars vörur fyrir Íslandspóst og nokkrar ríkisstofn- anir. „Það er algengt að vöruflutn- ingafyrirtæki séu starfandi án rekstrarleyfis. Hins vegar lagði ég inn umsókn í maí í fyrra. Ég veit ekki betur en hún verði af- greidd fljótlega. Ég reikna með að vera kominn með leyfið strax í næsta mánuði,“ sagði Helgi Auð- unsson, framkvæmdastjóri Vöru- afgreiðslunnar. „Það kemur mér mjög á óvart að Helgi skuli segja algengt að vöruflutningafyrirtæki starfi án rekstrarleyfis, þar sem slíkur rekstur er algjörlega ólöglegur. Stöðva á þess konar rekstur. Það er mjög sjaldgæft að menn séu ekki með leyfi,’’ segir Sigurður Hauksson, yfirmaður leyfisveit- inga hjá Vegagerðinni. „Komi í ljós að ekki sé leyfi fyr- ir vöruflutningum er kæra send til viðkomandi sýslumannsembættis- ins og sýslumanni falið að stöðva reksturinn,’’ segir Sigurður. Hann staðfestir að Vöruafgreiðslan hafi sótt um rekstrarleyfi í maí, það sé í vinnslu en gögnin hafi ekki verið fullnægjandi. Því hafi ekkert leyfi verið veitt. Forsvarsmönnum Vöruafgreiðslunnar var bent á annmarkana en þeir hafa ekki brugðist við, samkvæmt upplýs- ingum frá Vegagerðinni, sem ann- ast útgáfu tilskilinna leyfa auk eft- irlits með flutningastarfsemi, í samvinnu við umferðardeild Ríkis- lögreglustjóra. Umferðareftirlit Vegagerðar- innar segir að upplýsingum um meint brot Vöruafgreiðslunnar á lögum um fólksflutninga, vöru- flutninga og efnisflutninga á landi hafi verið komið til umferðar- deildar Ríkislögreglustjóra. Lík- legt sé að sýslumanninum á Pat- reksfirði hafi borist beiðni um að stöðva rekstur Vöruafgreiðslunn- ar þar sem leyfi hafi skort í rúm tvö ár. Þórólfur Halldórsson, sýslu- maður á Patreksfirði, sagði slíka beiðni ekki hafa komið fyrir sín augu. eb@frettabladid.is 4 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR Hver kemur best út úr dómi Hæstaréttar í máli Leikfélags Akureyrar? Spurning dagsins í dag: Var einhvern tímann líf á Mars? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 12% 46% Árni Magnússon 31%Þorsteinn Bachmann 11%Hrafnhildur Hafberg Valgerður Bjarnadóttir Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is BRUNI Miklar skemmdir urðu af völdum elds sem kviknaði í fjölbýl- ishúsi við Skútagil á Akureyri um tvöleytið í gær. Óhemjumikill reyk- ur myndaðist af völdum eldsins í íbúðinni og barst hann í nærliggj- andi íbúðir. Íbúðin sem kviknaði í var mannlaus þegar eldurinn kviknaði. Rýma þurfti íbúð á efri hæð hússins og þurfti heimilisfólk aðstoð við að komast út vegna mik- ils reyks í stigaganginum. Íbúðin við hliðina var einnig rýmd. Allt tiltækt lið Slökkviliðs Akur- eyrar var sent á vettvang og tók um 20 mínútur að slökkva eldinn. Íbúðin er mikið skemmd af völdum elds og sóts. Þá eru skemmdir af völdum sóts í nokkrum nærliggjandi íbúðum. Eiganda íbúðarinnar sem kviknaði í var mjög brugðið og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar. ■ Leyfislaus í vöru- flutningum Ekkert hefur verið aðhafst þó að Vöruafgreiðslan á Patreksfirði hafi sinnt vöruflutningum án rekstrarleyfis í rúm tvö ár. Framkvæmdastjór- inn segir þetta algengt en Vegagerðin segir að stöðva eigi slíkan rekstur. JEPPI VALT Í HRÚTAFIRÐI Jeppi valt norðan við Borðeyri í Hrúta- firði um hádegisbilið í gær. Þrír voru í bílnum og sluppu án telj- andi meiðsla. Lögreglan á Hólma- vík segir fljúgandi hálku á þess- um slóðum. Jeppinn, sem fór heilan hring, er mikið skemmdur. Lögreglan telur fólkið hafa slopp- ið ótrúlega vel frá veltunni. ÖLVUNARLÆTI Í NESKAUPSTAÐ Erilsamt var hjá lögreglunni í Neskaupstað í fyrrinótt. Lögregl- an segir að vegna brælu á miðum hafi verið fjölmennt í bænum. Við slíkar aðstæður verði oft fjörugt í bænum. Slagsmál brut- ust út nokkrum sinnum um nótt- ina og voru nokkrir vistaðir í fangageymslum vegna óláta og ölvunar. GUÐBRANDUR Ætlar sér í feðraorlof í sumar og hugsar sér ekki til hreyfings fyrr en næsta haust. Guðbrandur Sigurðsson: Á leið í feðraorlof Guðbrandur Sigurðsson, frá-farandi forstjóri Brims, hefur ákveðið að fara í feðraorlof eftir að hann lýkur við að ganga frá þeim verkefnum sem bíða eftir sölu ÚA, HB og Skagstrendings. „Ég verð að vinna að verkefn- um sem lúta að sölunni á Brimsfé- lögunum fram á vorið,“ segir Guð- brandur. „Svo vorum við svo gæfurík hjónin að við eignuðumst barn í fyrra og ég ætla að taka mitt feðraorlof í sumar. Síðla sumars eða næsta haust ætla ég svo að fara að kíkja í kringum mig. Ég er ekkert að flýta mér.“ Aðspurður um hvort hann hafi augastað á forstjórastarfi SÍF svarar hann neitandi. „Það er ekk- ert til í því, þetta eru bara sögu- sagnir. Það eru margir búnir að spyrja mig að þessu síðustu daga.“ ■ Innleiðing gerða: EFTA-lönd- in gera betur EVRÓPUMÁL Aðildarríkjum EFTA gengur betur að innleiða sameig- inlega Evrópulöggjöf en Evrópu- sambandsríkjunum. Í samantekt Eftirlitsstofnunar EFTA segir að almennt gangi aðild- arríkjum Evrópska efnahagssvæð- isins betur en áður að innleiða Evr- ópulöggjöf og að EFTA-löndin þrjú, Noregur, Ísland og Liechtenstein, séu öll meðal þeirra fimm ríkja sem best gengur að innleiða Evrópulög- gjöf á tilsettum tíma. Í fréttatilkynningunn kemur fram að 0,9% Evrópulöggjafar séu ekki innleidd í EFTA-ríkjun- um á tilsettum tíma en sambæri- legt hlutfall hjá Evrópusambands- ríkjunum sé 2,3%. ■ Farseðill gildir í eitt ár! Verð á mann frá 19.500 kr. All taf ód‡rast á netinu ÓFÆRÐ Björgunarsveitir frá Varmalandi, Borgarnesi, Hvammstanga og Laugarbakka voru að störfum á Holtavörðu- heiði frá klukkan eitt aðfara- nótt laugardags og fram undir morgun í gær við að aðstoða fólksbíla og flutningabíla sem voru í vandræðum. Mikil ófærð var á Holta- vörðuheiði og var hún vart fær öðrum en fjórhjóladrifsbílum. Holtavörðuheiði var lokað klukkan tíu á föstudagskvöld. Björgunarsveitamenn hjálp- uðu fólki, sem var farið upp á heiðina áður en henni var lok- að, að komast til síns heima. Einhverjir urðu að skilja bíla sína eftir og gekk því seinlega að moka heiðina en hún var opnuð aftur klukkan tólf á há- degi laugardags. B j ö r g u n a r s v e i t a m e n n reyndu að losa flutningabíl með tengivagn sem lokaði Holta- vörðuheiði á tímabili en brems- ur bílsins höfðu frosið fastar. Eina leiðin til að losa bremsurn- ar var að hita þær með kósangasi, en eftir að tókst að losa bremsurnar vildi ekki bet- ur til en svo að drifbúnaður flutningabílsins bilaði og varð að skilja hann eftir á heiðinni seint í fyrrinótt. ■ TVEIR VÍGAMENN SKOTNIR Ísr- aelskar hersveitir skutu til bana tvo herskáa Palestínumenn sem fóru inn á lokað svæði hersins skammt frá öryggismúrnum sem aðskilur Ísrael og hernumin svæði Palestínu á Gaza-strönd- inni. Mennirnir, sem voru með- limir Al Aqsa-herdeildanna, voru óvopnaðir en með sjónauka og farsíma. TÍMINN AÐ RENNA ÚT Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, varar við því að tíminn sé að renna út varðandi stofnun tveggja ríkja fyrir botni Miðjarð- arhafs. Í viðtali við Guardian sagði Arafat að landnám Ísraela á Vesturbakkanum og bygging ör- yggismúrsins kæmi í veg fyrir að Palestínumenn gætu byggt upp lífvænlegt ríki. RÁÐIST Á HERMENN Palestínu- menn skutu eldflaugum á ísr- aelska hermenn við landamæri Gaza-strandarinnar og Egypta- lands, að sögn ísraelska hersins. Herinn svaraði árásinni með því að skjóta á Palestínumennina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi særst í átökunum. ÍBÚÐ BRENNUR VIÐ SKÚTAGIL Reykurinn af völdum brunans í íbúðinni við Skútagil var óhemjumikill og barst hann í nærliggjandi íbúðir. Björgunarsveitarmenn kallaðir út: Hjálpa þurfti fólki af Holtavörðuheiði ■ Ísrael Íbúð skemmdist mikið vegna bruna í fjölbýlishúsi á Akureyri: Rýma þurfti nálægar íbúðir ■ Lögreglufréttir Geimreiðin Spirit: Unnið að viðgerð KALIFORNÍA Vísindamenn hjá Bandarísku geimferðastofnun- inni, NASA, vinna nú að því að gera við geimreiðina Spirit. Sam- bandið við Spirit hefur verið slitr- ótt undanfarna daga en ekki ligg- ur fyrir hvað veldur trufl- uninni. Tals- menn NASA segja að það muni taka nokkra daga, eða jafnvel vikur, að finna bilun- ina og gera við hana. Áætlað var að senda aðra geim- reið niður til yfirborðs Mars seint í gærkvöldi. Geimreiðin Opportunity hefur verið um borð í bandarísku geimfari á sporbaug um reikistjörn- una síðan í desember. Hún átti að lenda allt annars staðar á Mars en geimreiðin Spirit. ■ LÍKAN AF SPIRIT Pete Theisinger, vísinda- maður hjá NASA, sýnir fréttamönnum líkan af geimreiðinni Spirit. KÍNAGANGA Í PARÍS Um sjö þúsund manns tóku þátt í Kínagöngu niður Champs Elysees í París í gær. Verið var að fagna ári apans sem hófst á fimmtudag, samkvæmt kínversku tímatali.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.