Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 6
6 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR RÚTUSLYS Á HRAÐBRAUT Í ÞÝSKALANDI Þrjár konur létu lífið og yfir 40 manns slösuðust þegar dönsk rúta rakst á tvo kyrrstæða vörubíla á hraðbraut skammt frá Eisenberg í Þýska- landi. Norskur ökumaður rút- unnar lést í slysinu. Meirihluti farþeganna var danskir náms- menn á leið til Austurríkis á skíði. Margir voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús. Hraðbraut- inni var lokað á meðan björgun- araðgerðir stóðu yfir. NÝ RÍKISSTJÓRN Á KÝPUR Ný ríkisstjórn hefur formlega tekið til starfa í tyrkneska hluta Kýp- ur eftir að hafa hlotið trausts- yfirlýsingu þingsins. Stjórnin hefur heitið því að vinna að sam- einingu eyjarinnar fyrir 1. maí en þá er áætlað að Kýpur gangi í Evrópusambandið. ÖKUMAÐUR RÚTU SOFNAÐI UNDIR STÝRI Tveir létust og þrettán slösuðust þegar rúta lenti ofan í áveituskurði við hraðbraut skammt frá Búdapest í Ungverjalandi. Um borð í rút- unni voru búlgarskir ferðamenn á leið til Varsjár í Póllandi. Talið er að ökumaður rútunnar hafi sofnað undir stýri. Veistusvarið? 1Hvað heitir norska krónprinsessan? 2Hvenær var Ted Bundy, alræmdastifjöldamorðingi síðustu aldar, tekinn af lífi? 3Hvaða körfuboltafélag fékk sekt fyrirað greiða leikmönnum sínum hærri laun en leyfilegt er? Svörin eru á bls. 46 Nýtt heimsmet: Fallhlífarstökk yfir Bangkok BANGKOK, AP Heimsmet var slegið þegar 672 fallhlífarstökkvarar frá 42 löndum stukku samtímis til jarðar úr sex herflutningavélum yfir Bangkok í Taílandi. Að minnsta kosti þrír stökkvaranna slösuðust, þó enginn þeirra alvar- lega. Ekki tókst öllum að lenda á áætluðum lendingarstað skammt frá konungshöllinni. Sumir lentu á trjám og einn endaði ferð sína á þaki háskólabyggingar í nágrenn- inu. Stökkið var til heiðurs Sirikit drottningu, sem verður 72 ára á þessu ári, en það eru mikilvæg tímamót í lífi búddista. Gamla heimsmetið var sett árið 2000 þegar 588 fallhlífar- stökkvarar stukku til jarðar yfir Rio de Janeiro í Brasilíu. ■ Engin gereyðing- arvopn í Írak Fyrrum yfirmaður bandarískrar sveitar sem leitar að gereyðingar- vopnum í Írak hefur enga trú á því að slík vopn sé þar að finna. Banda- rísk og bresk stjórnvöld enn sannfærð um tilvist ólöglegra vopna. WASHINGTON David Kay, sem lét af störfum sem yfirmaður banda- rískra vopnaeftirlitssveita í Írak á föstudag, telur að engin gereyð- ingarvopn sé að finna í Írak. Charles Duelfer, nýr yfirmaður vopnaeftirlitssveitanna, segir að hlutverk sitt sé að varpa ljósi á vopnaáætlun stjórnar Saddams Hussein og leita sannleikans. Í viðtali við Reuters sagðist Kay draga það stórlega í efa að Írakar hefðu stundað framleiðslu á efna- og sýklavopnum eftir lok Persaflóastríðsins árið 1991. „Ég held að við höfum þegar fundið um 85% af því sem við munum finna,“ sagði Kay, sem leitaði ár- angurslaust að gereyðingarvopn- um í Írak í átta mánuði. Áður en Bandaríkin gerðu innrás í Írak hafði Kay lýst því yfir að hann væri sannfærður um að heims- byggðinni stafaði veruleg ógn af gereyðingarvopnum Saddams. Þrátt fyrir yfirlýsingar Kays virðast bandarísk og bresk stjórn- völd ekki ætla að hvika frá sann- færingu sinni. Dick Cheney, vara- forseti Bandaríkjanna, sagði í við- tali að stjórnvöld tryðu því stað- fastlega að gereyðingarvopn ættu eftir að finnast í Írak. Að sama skapi sagði talsmaður bresku rík- isstjórnarinnar að Tony Blair for- sætisráðherra væri enn sannfærð- ur um að Saddam hefði haft undir höndum gereyðingarvopn og sann- anir fyrir því ættu eftir að finnast. Í kjölfar yfirlýsinga Kays lýsti Robin Cook, fyrrverandi utanrík- isráðherra Breta, þeirri skoðun sinni að tími væri kominn til að Blair viðurkenndi ósigur í vopna- málinu. Cook heldur því fram að Blair hafi farið í stríð gegn Írök- um til að sýna tryggð sína við George W. Bush Bandaríkjafor- seta. „Það er forsætisráðherran- um ekki sæmandi að halda því fram að hann hafi allan tímann haft rétt fyrir sér þegar allir geta nú séð að hann hafði rangt fyrir sér og jafnvel yfirmaður vopna- eftirlitssveitanna segir að hann hafi haft rangt fyrir sér,“ sagði Cook í viðtali við BBC. Duelfer, sem tekinn er við stöðu Kays, starfaði með vopna- eftirlitssveitum Sameinuðu þjóðanna í Írak á tíunda ára- tugnum. Líkt og Kay varaði hann við því fyrir innrásina í Írak að heimsbyggðinni stafaði mikil ógn af vopnaáætlun stjórnar Saddams. ■ FORMENN NORRÆNNA JAFNAÐAR- MANNAFLOKKA Ákváðu á fundi sínum í Svíþjóð að næsti sameiginlegi fundur skyldi haldinn á Ís- landi í sumar. Norrænir kratar: Funda á Ís- landi STJÓRNMÁL Formenn norrænna jafnaðarmannaflokka koma til Ís- lands í sumarbyrjun til að funda um sameiginleg hagsmunamál flokkanna. Meðal þeirra sem eru í þessum hópi er Göran Persson, formaður sænska Jafnaðar- mannaflokksins og forsætisráð- herra Svíþjóðar. „Það er mikil lyftistöng fyrir Samfylkinguna að fá formenn systurflokkanna á Norðurlöndun- um á fund hér á Íslandi. Það verð- ur væntanlega um margt að ræða. Göran Persson studdi þá tillögu að næsti fundur formannanna skyldi haldinn á Íslandi og sýndi því mik- inn áhuga,“ segir Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar- innar. ■ HEIMSMET Fallhlífarstökkvararnir stukku út úr sex herflutningavélum í 2.135 metra hæð. Fimm börn létust: Smákökurn- ar banvænar MEXÍKÓ, AP Fimm mexíkósk börn létust eftir að hafa borðað eitraðar smákökur. Þrjú börn til viðbótar voru flutt illa haldin á sjúkrahús. Börnin átta, sem búa í fátækra- hverfi í borginni Tlacoapa í Guerrero-fylki, veiktust skyndi- lega eftir að hafa borðað smákök- ur. Fimm þeirra létust skömmu síðar en þrjú börn á aldrinum fjögurra til átta ára voru flutt al- varlega veik á sjúkrahús. Læknar segja að smákökurnar hafi inni- haldið rottu- eða skordýraeitur. Lögreglan rannsakar nú hvort þau hafi fengið kökurnar í búð í Tlacoapa eða frá manni á götunni. ■ ■ Evrópa ÓK NIÐUR UMFERÐARSKILTI Lög- reglan í Keflavík leitar öku- manns sem ók niður nokkur um- ferðarmerki sem staðsett voru á hliðarafrein við Hvassahraun á Reykjanesbraut. Ökumaðurinn var á leið til Keflavíkur og virð- ist hafa ekið af vettvangi. Hluti af grilli bílsins fannst á hliðar- afreininni. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar eru beðn- ir að hafa samband við lögreglu. SKALLAÐUR Í ANDLIT Maður var skallaður í andlitið fyrir utan skemmtistaðinn Kaffi Duus í Keflavík rúmlega fjögur í fyrri- nótt. Maðurinn hlaut áverka á nefi en óljóst er hvort hann hafi nefbrotnað. Málið er í skoðun hjá lögreglu. ■ Lögreglufréttir ■ Lögreglufréttir VOPNALEIT Bandarískir hermenn grafa upp sprengjur á akri skammt frá Fallujah í Írak.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.