Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 12
12 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR ■ Andlát Hinrik VIII, Bretakonungur,gekk að eiga Önnu Boleyn á laun á þessum degi árið 1533. Anna var önnur eiginkona kon- ungsins en þær urðu sex þegar upp var staðið. Katrín frá Aragon var fyrsta drottning Hinriks en hún var ekkja Arthúrs bróður hans. Hin- rik og Katrín giftu sig 1509 og skildu árið 1533 en eignuðust eina dóttur í millitíðinni. Anna var ófrísk þegar hún varð drottning og fæddi Hinrik dótturina Elísa- betu. Hjónabandið varð þó ekki langlíft, frekar en drottningin, en í maí árið 1536 lét Hinrik háls- höggva hana fyrir framhjáhald, en slíkt jafnaðist á við landráð í augum konungs. Hinrik gekk að eiga Jane Seymour í lok þessa sama mánað- ar en hún lést af barnsförum í október þegar hún fæddi konungi eina soninn sem hann eignaðist, erfingjann Játvarð. Snemma árs 1540 hugðist konungur giftast Önnu af Cleves eftir að hafa séð af henni málverk. Hún stóðst ekki væntingar hans og hjónabandið varð hvorki fugl né fiskur. Í júlí 1540 gekk Hinrik að eiga hina lauslátu Catherine Howard en hún var gerð höfðinu styttri fyrir framhjáhald tveimur árum síðar. Árið 1540 giftu Hinrik og Catherine Parr sig og þessi sjötta drottning Hinrik lifði bæði hjóna- bandið af og konunginn en hann lést 1547. ■ Friðrik Ingvarsson, frá Vestmannaeyj- um, búsettur í Everett í Bandaríkjunum, lést á heimili sínu laugardaginn 17. janú- ar. Jóhanna Bárðardóttir, frá Ísafirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudag- inn 22. janúar. Sigrún Jóhannesdóttir, Vesturgötu 10, Keflavík, lést á Landspítalanum þriðju- daginn 20. janúar. Ólafur Gíslason, frá Hjarðarbrekku, Grenigrund 14, Selfossi, andaðist á Heil- brigðistofnun Suðurlands, Selfossi, fimmtudaginn 22. janúar. Þorsteinn Sveinsson, Jakaseli 26, Reykjavík, lést miðvikudaginn 14. janúar. EDUARD SHEVARDNADZE Fyrrverandi forseti Georgíu á afmæli í dag. Hann er fæddur 1928 og er því 76 ára. 25. janúar ■ Þetta gerðist 1858 Brúðarmars Mendelssohns er leikinn opinberlega í fyrsta skipti þegar dóttir Viktoríu Bretadrottn- ingar giftist prússneska krón- prinsinum. 1890 Fréttamaðurinn Nellie Bly frá New York kemur heim eftir að hafa ferðast umhverfis jörðina á 72 dögum, 6 klukkustundum og 11 mínútum. 1947 Glæpaforinginn Al Capone deyr Í Miami, 48 ára gamall. 1981 Bandarísku gíslarnir 52 sem var haldið í Íran í 444 daga koma aftur heim til Bandaríkjanna. 1990 Leikkonan Ava Gardner deyr í London, 67 ára gömul. 1995 Verjendur O.J. Simpson hefja málsvörn í morðmáli þessa al- ræmda leikara og íþróttahetju. HINRIK VIII Þessi ábúðarmikli konungur er alræmdur fyrir að hafa eignast sex konur og gera tvær þeirra höfðinu styttri. Banvænt hjónaband FEIGA DROTTNINGIN ■ Hinrik VIII gengur að eiga Önnu Bo- leyn. Hann lét svo hálshöggva hana síðar. 25. janúar 1533 Myndskreytingar GuðjónsKetilssonar við bókina Eyjadís eftir Unni Þóru Jökuls- dóttur eru þær bestu að mati barna sem skoðuðu sýninguna Þetta vilja börnin sjá í Gerðu- bergi. Sýningin hófst í nóvember en lauk í byrjun janúar. Þar voru til sýnis myndskreytingar úr flestum íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2003, eða 32 bókum eftir 24 myndskreyta. Sigrún Eldjárn, Brian Pilk- ington, Ólafur Gunnar Guð- laugsson, Halla Sólveig Þor- geirsdóttir og Áslaug Jónsdóttir áttu verk á sýningunni, ásamt Guðjóni. Skipuð dómnefnd valdi Brian Pilkington besta myndskreytinn og hann hlaut Dimmalimm- verðlaunin 2003 fyrir bókina Mánasteinar í vasanum. Á meðan á sýningunni stóð var börnum einnig gefinn kost- ur á að velja þá myndskreyt- ingu sem þeim þótti best og urðu myndir Guðjóns fyrir val- inu en hann er best þekktur fyr- ir myndskreytingar sínar í bók- unum um Blíðfinn. ■ Ragnheiður Eiríksdóttir byrj-aði þrítugasta og þriðja af- mælisdaginn sinn með því að til- kynna þjóðinni að hún ætti af- mæli, en hún er næturvörðurinn á Rás 2 á laugardagskvöldum og þáttur hennar hófst strax eftir miðnætti. „Ég stefni á að gera eitthvað skemmtilegt í dag,“ segir Heiða. „Ég á ekki stórt af- mæli núna en ég man ekki hvað ég gerði á afmælisdaginn í fyrra. Annað hvort eru árin byrjuð að hægja á hugsun eða bara að ég gerði ekkert á afmæl- isdaginn í fyrra. Þannig að í kvöld ætla ég að fara út að borða.“ Hún er að hugsa um Sjávarréttarkjallarann, með tveggja ára son sinn í huga. „Það er svo stórt fiskabúr þar, þannig að ég ætla að planta honum fyr- ir framan fiskabúrið og vona að það verði mikil hamingja.“ Eftirminnilegasta afmæli Heiðu er þegar hún varð þrítug, nýlega orðin ófrísk, komin rúm- an mánuð á leið. „Ég var ekkert ofboðslega góð til heilsunnar og ekki búin að segja neinum frá óléttunni en samt búin að plana að halda upp á afmælið. Ég bauð 20-30 manns í partí og var með alveg svakalega bollu. Þar sem ég vildi ekki hafa bolluna áfenga, samanstóð hún næstum því bara af gosi og svo einhverri einni freyðivínsflösku. Hún var rosalega góð á bragðið en næst- um því alveg óáfeng.“ Heiða segist hafa verið syngjandi næstum því hverja einustu viku síðan í lok október með hljómsveitinni sinni Heiðu og heiðingjunum. „Síðan platan okkar, Tíu fingur upp til guðs, kom út höfum við verið að spila kannski tvisvar eða þrisvar í viku. Svo spila ég á gítar í pönk- hljómsveitinni Dys og í kassagítardúettinum Helvar.“ Heiða er svo heppin að hún spil- ar með kærastanum sínum Elv- ari í öllum þessum hljómsveit- um en hann spilar líka á gítar. „Það hentar okkur mjög vel að vinna svona saman, við erum bæði svo skapandi tónlistar- menn og náum einhvern vegin að stilla rafmagnið okkar sam- an. Allt sem ég hef gert með Elvari er stórkostlegt.“ ■ Steinar Adolfs- son knatt- spyrnumaður er 34 ára í dag. Afmæli RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR ■ er 33 ára. Hún byrjaði afmælið á mið- nætti í beinni útsendingu á Rás 2. Bauð upp á nær óáfenga bollu GUÐJÓN KETILSSON Hlaut viðurkenningu fyrir bestu mynd- skreytinguna í barnabók að mati ungra gesta sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá í Gerðubergi. Börnin völdu Eyjadís ■ Afmæli RAGNHEIÐUR EIRÍKS- DÓTTIR Betur þekkt sem Heiða í Unun , Heiða í heiðingj- unum eða Heiða nætur- vörður. Klink og banki Landsbanki Íslands hefur ákveð-ið að styrkja Kling og Bang Gallerí til þess að stofna til lista- s m i ð j u n n a r Klink og Bank. Listasmiðjan verður í þrjú þúsund fer- metra rými í gamla Hamp- iðjuhúsinu í Þverholti í Reykjavík. Að sögn Er- lings Klingen- berg hjá Kling og Bang verður fljótlega auglýst eftir umsóknum þar sem listamönnum gefst tæki- færi til þess að óska eftir samstarfi við Klink og Bank. Listamennirnir munu hafa gamla Hampiðjuhúsið til umráða til 1. nóvember 2004. ■ BJÖRGÓLFUR GUÐ- MUNDSSON Átti hugmyndina að listasmiðjunni Klink og Bank í Hampiðju- húsinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.