Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 25
25SUNNUDAGUR 25. janúar 2004 Hlýnandi loftslag getur haft al-varlegar afleiðingar á jörð- inni samkvæmt tveimur nýjum rannsóknum sem birtar voru fyrir skömmu. Í tímaritinu Nature birtist rannsókn sem hópur vísinda- manna víðs vegar að úr heiminum gerði. Samkvæmt niðurstöðu hennar getur allt að fjórðungur allra dýra- og plöntutegunda á jörðinni dáið út á næstu fimmtíu árum vegna hlýrra loftslags. Vís- indamennirnir segja að draga þurfi úr losun gróðurhúsalofteg- unda til að koma í veg fyrir þessa þróun. Svipaða niðurstöðu er að finna í rannsókn sem Margot Wall- ström, sem starfar hjá umhverfis- nefnd Evrópu, prófessor Paul Crutzen, sem fékk Nóbelsverð- launin í efnafræði árið 1995, pró- fessor Bert Bolin og dr. Will Steffen gerðu og birtist í The International Herald Tribune í vikunni. Fjórmenningarnir segja ýmis- legt benda til þess að fyrir árið 2050 verði örar svæðisbundnar breytingar á loftslagi jarðar. Þess- ar breytingar munu meðal annars hafa þau áhrif að Grænlandsjök- ull mun bráðna, sem hefur áhrif á sjávarstreymi í Norður-Atlants- hafi og veldur hækkun á sjávar- máli. Samkvæmt báðum rannsókn- unum hafa breytingar á loftslagi að mestu leyti orðið af manna- völdum – maðurinn hefur veruleg og jafnvel ráðandi áhrif á um- hverfisöfl. Vísindamennirnir vilja meina að ef ekki verði brugðist við nógu fljótt geti loftslagsbreytingar haft skelfilegar afleiðingar í för með sér – ekki bara efnahagslegar og félagslegar heldur geti þær leitt til útrýmingar hinna ýmsu dýra- tegunda. Ef ekki verði brugðist við nógu snemma gæti það haft óafturkallanlegar breytingar í för með sér. ■ Meiri líkur á hlýjum árum og árstíðum: Hlýnun hér svipuð og á heimsvísu Vísindamenn hafa spáð hlýnandi loftslagi á jörðinni á næstu áratugum, sem getur haft undarlegar og jafnvel alvarlegar afleiðingar í för með sér. Slíkra áhrifa myndi líklega einna fyrst gæta á norðurhveli jarðar. Ákveðin óvissa ríkir þó um hvaða áhrif breytingarnar geti haft. Fréttablaðið leitaði til nokkurra vísindamanna um hvaða áhrif hlýnandi loftslag myndi hafa á Ísland og nánasta umhverfi. Meðalhiti í Reykjavík: Hækkar um hálfa aðra gráðu á 50 árum Meðalhiti í Reykjavík verðurtalsvert hærri eftir tíu til 20 ár en hann var síðustu tíu árin, samkvæmt spá sem birtist í skýrslu Kristjáns Jónassonar fyr- ir Orkuveitu Reykjavíkur. Sam- kvæmt spá hans verður meðalhiti 5,42 gráður á árunum 2013 til 2032, nær einni og hálfri gráðu hærri en meðalhitinn í Reykjavík á árunum 1973 til 1983. Hlýnunin er heldur meiri á vetrum en sumr- um. Kristján segir í skýrslu sinni að hlýnun síðustu aldar hafi verið um 0,77 gráður, svipað og gerist í heiminum öllum. Þar segir jafn- framt að hitastig hækki hraðar en áður. Á árunum 1850 til 1950 nam meðalhlýnun jarðar á áratug 0,015 gráðum en 0,19 gráðum á árunum 1980 til 2000. Fram til 2020 er spáð 0,23 gráðu hlýnun á áratug en 0,28 gráðum á hverjum áratug eftir það fram til næstu aldamóta. Kristján telur að á næstu árum séu meiri líkur á að fá fleiri heit eða köld ár í röð en undanfarið. ■ MEÐALHITI Í REYKJAVÍK Tímabil Meðalhiti 1973-1983 4,00° 1983-1993 4,31° 1993-2003 4,71° *2003-2013 5,17° *2013-2023 5,42° Meðalhiti árs er reiknaður frá júlí til júní. *Spá Það er hlýrra núna en almenntvar fyrir hundrað árum. Það er um það bil sama hækkun á hita hér og annars staðar í heiminum,“ seg- ir Trausti Jónsson veðurfræðingur um það hvernig Íslendingar verða varir við hlýnandi loftslag af völd- um gróðurhúsaáhrifa. „Hins vegar er erfitt að tengja einstök ár eða sumur við hlýnun- ina. Það eru svo tilviljanakenndar sveiflur frá ári til árs. En það má segja að líkurnar á mjög hlýjum árum og árstíðum séu meiri en áður. Það þýðir ekki að líkurnar á köldum árum séu engar, heldur einfaldlega að þær eru minni.“ Síðasta sumar var eitt það heitasta síðan mælingar hófust hérlendis en það er ekki hægt að setja samasemmerki milli þess og hlýnandi loftslags. „Hlýindin á síð- astliðnu ári eru meiri en að það sé skýranlegt með þessu einu.“ Hlýnun loftslags nær yfir allt árið en er þó meiri á veturna en sumrin. „Samt eru sumrin hlýrri að meðaltali en var. Það kom slatti af góðum sumrum á 19. öld en fleiri á 20. öldinni. Það má líka benda á að ef við tökum köldustu árin á 19. öld og köldustu árin síð- ustu áratugina eru köldustu árin undanfarið ekki alveg jafn köld og köldustu árin voru á 19. öld. Þau eru um það bil því vægari sem nemur hlýnun í heiminum í heild,“ segir Trausti, en meðalhlýnun er 0,7 gráður. „Munurinn á hlýjasta og kaldasta ári sem við þekkjum er hátt í fimm stig.“ Síðustu árin hafa verið Íslend- ingum góð. „Það má segja að við höfum ekki fengið neitt kalt ár frá 1995. Árin 1996 til 2000 voru í með- allagi. Síðasta ár er svo fyrsta árið sem er jafn hlýtt og hlýjustu árin sem við höfum fengið áður. ■ FLEIRI GÓÐ SUMUR Líkurnar á mjög hlýjum árum og árstíðum eru meiri. Áhrif hlýnandi loftslags á Ísland BRÁÐNUN JÖKLA Ef spár ganga eftir má telja vísindamenn að jöklar, þar á meðal Grænlandsjökull, muni bráðna. Í kjölfarið má búast við að sjávarmál hækki. M YN D /L AN D H EL G IS G Æ SL AN M YN D /L AN D H EL G IS G Æ SL AN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.