Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 8
8 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR ■ Lögreglufréttir Dýr tímaritsgrein „Þetta voru hin miklu svik; að borga ekki 500 milljónir fyrir þessa blaðagrein sem var send í tímarit.“ Davíð Oddsson um deilur um öryrkjasamkomu- lagið og útreikninga á kostnaði þess sem Davíð sagði byggða á óskum framkvæmdastjóra Ör- yrkjabandalagsins í tímariti samtakanna. Fundur í Valhöll 24. janúar. Segjum fleiri „Þó ég skuldi peninga gerir það mig ekki að glæpamanni.“ Mummi í Mótorsmiðjunni um launakröfur fyrr- um starfsmanna Radíó Reykjavíkur. DV, 24. janú- ar. Hmm „Menn gleyma því hins vegar að það mætti spara miklu meira fé með því að sleppa alþingiskosn- ingum.“ Eiríkur Jónsson um útreikninga á kostnaði við forsetakosningar. DV, 24. janúar. Orðrétt ALMANNATRYGGINGAR Um næstu mánaðamót fá 300 til 400 lífeyris- þegar sem búsettir eru erlendis leiðréttingu vegna óheimillar skerðingar tekjutryggingarauka. Úrskurðarnefnd almanna- trygginga kvað upp þann úrskurð fyrir jól að réttur til tekjutrygg- ingarauka skertist ekki vegna bú- setu erlendis. Tryggingastofnun ríkisins taldi að skerða ætti þann hluta lífeyrisgreiðslna en lífeyr- isþegi krafðist álits úrskurðar- nefndar almannatrygginga. Nefndin segir í úrskurði sín- um að skerðingin sé ekki heimil nema með skýrri lagaheimild. Slíka heimild sé ekki að finna í al- mannatryggingalögum og því skuli greiða tekjutryggingarauka án tillits til búsetutíma hér á landi. Í kjölfar úrskurðarins hefur lífeyristryggingasvið Trygginga- stofnunar ríkisins nú hafist handa við að leiðrétta greiðslur til þeirra lífeyrisþega sem fengið hafa skertan tekjutryggingar- auka af þessum sökum. Inneign nokkur hundruð líf- eyrisþega verður því greidd út um næstu mánaðamót. ■ Ferðamálaráð Íslands: Skrifstofa í Danmörku FERÐAMÁL Ferðamálaráð Íslands opnar skrifstofu í Kaupmannahöfn sem á að þjóna markaðsstarfi gagnvart Finnlandi, Svíþjóð og Noregi auk Danmerkur. Skrifstofa Ferðamálaráðs er til húsa í Norð- urbryggju, sameiginlegu menning- arsetri Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Norðurlöndin þykja eitt stærsta og mikilvægasta markaðssvæði íslenskrar ferða- þjónustu og þaðan komu meira en 80.000 gestir á síðasta ári. Fyrir voru skrifstofur í Frank- furt og New York en auk þeirra er fjórða markaðssvæðinu, Bret- landi, sinnt frá Íslandi. ■ INNBROT Í LAUGALÆKJARSKÓLA Brotist var inn í Laugalækjar- skóla í fyrrinótt. Til að komast inn brutu þjófarnir rúðu í nýrri tengibyggingu. Þaðan fóru þeir inn á skrifstofu og höfðu á brott með sér tölvu. Málið er í rann- sókn. HAFNAÐI Á LJÓSASTAUR Bíll hafnaði á ljósastaur á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í gærmorgun. Þrír voru í bílnum og voru tveir fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Hvorugur reyndist mikið slasaður. Mikil hálka var á vegum þegar slysið varð. ÓK UNDIR ÁHRIFUM LYFJA Lögreglunni í Keflavík barst til- kynning um útafakstur á Grinda- víkurvegi klukkan fjögur í fyrri- nótt. Lögregla og sjúkralið fóru á staðinn. Ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hlotið minni- háttar áverka. Grunur leikur á að maðurinn hafi ekið undir áhrifum lyfja. Tekið var sýni úr mannin- um til að skera úr um aksturs- hæfni. Bíllinn skemmdist mikið og var fjarlægður með kranabíl. ÓHEIMIL SKERÐING Lífeyristryggingasvið Tryggingastofnunar ríkisins endurgreiðir um mánaðamótin 300 til 400 lífeyrisþegum þann hluta tekju- tryggingarauka sem skertur var vegna bú- setu lífeyrisþega erlendis. Tekjutryggingarauki lífeyrisgreiðslna: Skerðing vegna búsetu erlendis óheimil ATVINNUMÁL „Ég hef orðið var við að það er skortur á lögfræðing- um,“ segir Eiríkur Tómasson, for- seti lagadeildar Háskóla Íslands. „Við viljum skýra það þannig að nemendur héðan standi sig vel í störfum. Jafnframt að þetta sé einnig þekking sem komi að góð- um notum víða og þörfin fyrir hana hafi farið vaxandi á síðustu árum. Þar á meðal benda menn á reglur Evrópusambandsins sem hér eru smátt og smátt að taka gildi. Það þarf lögfræðinga til að kunna skil á þeim.“ Lágmarkseinkunn í inngangs- fögum í lagadeild hefur til langs tíma verið 7 en hefur nú verið lækkuð niður í 6 og þar með sam- ræmd lágmarkseinkunnum í öðr- um greinum síðar á námsferlin- um. Spurður hvort ekki skyti skökku við að lágmarkseinkunnir í inngangsfögum hefðu verið lækkaðar, meðan stjórnendur Há- skólans ræddu þann möguleika að taka upp fjöldatakmarkanir í öðr- um deildum með inntökuprófum eða með öðrum hætti, til að halda honum innan ramma fjárlaga, kveðst Eiríkur ekki telja að svo sé. Hann segir að strangari kröfur séu gerðar í lagadeild en öðrum deildum Háskólans. Lágmarksein- kunn er 6 í lagadeild en 5 í öðrum deildum Háskóla Íslands og öðr- um háskólum. „Það væri þá eðlilegra að aðrir hertu kröfurnar en að við þyrftum að takmarka þegar við gerum þetta strangari kröfur en almennt gerist,“ segir Eiríkur. „Við höfum að vísu aðeins slakað á, en gerum þó meiri kröfur en almennt gerist í öðrum deildum.“ Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra hefur lagt fram frum- varp á Alþingi sem snertir starf lögmanna. Samkvæmt því hafa allir sem lokið hafa embættis- eða meistaraprófi við lagadeild há- skóla sem viðurkenndir eru hér á landi rétt til að gerast lögmenn. „Þá er lagt til að sá sem sækir um að öðlast héraðsdómslög- mannsréttindi þurfi, auk þess að standast sérstaka prófraun, að afla sér tiltekinnar starfs- reynslu,“ segir dómsmálaráð- herra. „Enn fremur, að sá sem óskar eftir réttindum til að verða hæstaréttarlögmaður skuli hafa haft réttindi sem héraðsdómslög- maður í fimm ár, flutt fyrir hér- aðsdómi eða sérdómstóli að minnsta kosti 40 mál munnlega og þreyti prófraun, sem felst í munn- legum flutningi fjögurra mála sem flutt eru fyrir fimm eða sjö dómurum í Hæstarétti. Sérstök prófanefnd sem starfað hefur fyr- ir þá sem vildu verða hæstaréttar- lögmenn, er þar með úr sögunni.“ jss@frettabladid.is Skortur á lögfræðingum Forseti lagadeildar segist hafa orðið var við skort á lögfræðingum. Þörfin fyrir lögfræðimenntaða einstaklinga hafi farið vaxandi, meðal annars vegna reglna Evrópusambandsins. Dómsmálaráð- herra hefur lagt fram frumvarp um rétt lögfræðimenntaðra manna til að gerast lögmenn. BJÖRN BJARNASON Frumvarp hans um breytingar á lögum um lögmenn liggur fyrir Alþingi. EIRÍKUR TÓMASSON Segir meiri eftirspurn en framboð af lög- mönnum. NEYTENDUR Útgjöld heimilanna vegna afnotagjalda og áskriftar að sjón- varpsstöðv- um getur verið tölu- v e r ð u r . Samkvæmt útreikning- um Verð- lagseftirlits ASÍ kosta afnotagjöld v e g n a Ríkissjón- varpsins nú 30.335 krónur á ári ef miðað er við 5% hækkun á áskriftargjöld- um sem urðu nú um áramótin. Fjölmargir neytendur kjósa að kaupa áskrift af öðrum sjónvarps- stöðvum. Samanlögð áskrift að RÚV og Stöð 2 kostar 7.168 krón- ur á mánuði, 86.016 krónur á ári. Neytendur geta eytt allt að 180 þúsund krónum á ári ef keyptur er pakki sem samanstendur af RÚV, Breiðbandinu (Úrval 40+) og Stöðvar 2 pakkanum sem í er áskrift að Stöð 2, Sýn, Bíórásinni og Fjölvarpinu. Verðlagseftirlit ASÍ gerði þrjár kannanir frá miðjum nóv- ember 2003 fram í miðjan janúar. Aðeins ein breyting varð á verði milli kannana í nóvember og des- ember; þegar áskriftarverð Stöðvar 3 lækkaði um 319 krónur en hækkaði um sömu upphæð í janúar. Þegar skoðaðar eru þær breytingar á verði sem urðu frá könnuninni 12. nóvember og 13. janúar kemur í ljós að afnota- gjaldið hjá RÚV hækkaði um 5% og Skjár 2 var lagður niður. Verð á öðru hélst óbreytt. ■ AFNOTA- OG ÁSKRIFTARGJÖLD SJÓNVARPS 13. JANÚAR 2004 RÚV 2.528 kr. Breiðbandið Evrópu 14+ 2.295 kr. Breiðbandið Blanda 16+ 2.595 kr. Breiðbandið Úrval 40+ 3.995 kr. Stöð 2 4.640 kr. Sýn 4.540 kr. Bíórásin Með Stöð 2 Fjölvarp 2.240 kr. Stöð 2 og Sýn 6.840 kr. Stöð 2 og Bíórásin 6.240 kr Stöð 2 og Fjölvarp 6.140 kr. Stöð 2, Sýn, Bíórásin, Fjölvarp* 8.440 kr. Stöð 3 2.540 kr. Skjár 1 Ókeypis Popptíví Ókeypis Omega Ókeypis Aksjón ÓKeypis * Afsláttur ef M12. Afnotagjöld og áskriftir sjónvarpsstöðva: Getur kostað 180 þúsund á ári SJÓNVARP Áskrift að sjónvarpi getur verið stór hluti af út- gjöldum heimilanna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.