Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 18
18 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Næsta stopp
Toyota o
Nú er tækifærið til að láta sína villtustu bíladrauma rætast. Komdu og
reynsluaktu nýjum glæsilegum *Avensis. Veglegir vetrarpakkar að
verðmæti 125.000 krónur fylgja fyrstu 8 beinskiptu *RAV4 sem
seljast. Í markaði jeppamannsins í Arctic Trucks verður frumsýndur nýr
38 tommu *LandCruiser með sérstakri túrista breytingu. Skoðaðu *Yamaha
vélsleðana og *Yamaha vélhjólin og líka 38 tommu *Hilux bílana sem eru á
tilboðsverði. Lexus *RX300 og Lexus IS200 verða líka í öndvegi og hægt
verður að eignast þá á sérlega góðum kjörum. Í Toyota Betri notuðum bílum
Það verður allt opið upp á gátt hjá okkur á Nýbýlaveginum um helgina
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
*
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
*
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
Þegar ég tók við Forlaginu á sín-um tíma var það í mjög sér-
stakri stöðu,“ segir Kristján B. Jón-
asson, fyrrum útgáfustjóri Forlags-
ins, sem hefur tekið við sem þróun-
arstjóri Eddu útgáfu, og vísar til
þess að þá hafi stofnandi Forlags-
ins, Jóhann Páll Valdimarsson,
gengið á vit nýrra ævintýra sem
framkvæmdastjóri Genealogia Is-
landorum. „Ég tók strax þá stefnu
að efla nýsköpun í bókaútgáfu,
hleypa að nýjum höfundum og
hleypa nýstárlegum verkefnum af
stokkunum. Það má því segja að
mitt nýja starf sé í góðu framhaldi
af því. Mitt hlutverk verður að
grípa ný tækifæri og hlúa að nýjum
verkefnum sem nýtast mismunandi
útgáfusviðum allt frá kortaútgáfu
til kiljuútgáfu, ferðamannabókum
til fagurbókmennta en ekki síður að
huga að því hvernig þessar vörur
komast best á markað. Þetta er það
hugmynda- og verkefnastarf sem
ég hef unnið undir merkjum For-
lagsins. Nú er það hafið upp á
stærra og víðara svið og tengist
meira markaðsmálum þannig að ég
get beitt mér á fleiri vígstöðvum.“
Kristján segist mjög spenntur
fyrir þessu nýja starfi og breyting-
arnar hafi ekki komið honum á
óvart þar sem þetta sé afrakstur
hugmyndavinnu sem hafi staðið
síðan snemma síðasta haust. En er
þetta merki um að Forlagið hafi
ekki gengið upp?
„Eitt af því sem skipulagsbreyt-
ingar Eddu útgáfu snúast um er að
leggja til hliðar þrjú útgáfumerki,
Forlagið, Iðunni og Þjóðsögu. Hins
vegar þýðir það ekki að þau verði
slegin af. Ákveðnir titlar halda
áfram að koma út undir þessum
merkjum. Staðreyndin er hins veg-
ar sú að Vaka-Helgafell, Almenna
bókafélagið og Mál og menning eru
mjög sterk vörumerki sem menn
vilja nú byggja enn frekar upp,
ekki síst vegna þess að þau hafa
alltaf verið alhliða útgáfur. Það er
þessi alhliða hugsun sem lögð verð-
ur megináhersla á og stefnt verður
að því að búa til stórar útgáfur sem
höfða til mjög breiðs lesendahóps.
Forlagið eins og það var skilgreint
innan Eddu hafði ekki þessa stöðu
en hugsunin á bak við það nýtist nú
fyrirtækinu öllu.“
Kristján segist því halda áfram
að gera margt af því sem hann hafi
verið að gera á undanförum árum.
„Ég vinn áfram með þeim frábæru
höfundum sem ég hef starfað með.
Ég hef rætt við þá um þessar breyt-
ingar og þeir ætla undantekninga-
laust að halda áfram samstarfinu.
En það er líka ljóst að ég hef núna
miklu meira svigrúm en áður. Það
getur verið erfitt að finna tíma til
að fylgja eftir á skipulegan hátt
þeim hugmyndum sem fæðast hjá
útgáfustjórum og höfundum eða
bara hverjum sem er og því er öll-
um stórum forlögum nauðsynlegt
að hafa rými fyrir þessa gerjun.
Það þarf einfaldlega að stuðla að
vöru- og markaðsþróun. Sem þró-
unarstjóri get ég horft yfir allt
sviðið og mótað verkefni í sam-
vinnu við mjög fjölbreyttan hóp
fólks og séð hvar best er að bera
niður í markaðslegu tilliti. Ég hef
fullt umboð til að hrinda slíkum
verkefnum í framkvæmd. Ég er í
stöðu þar sem ég leita uppi hæfi-
leikafólk, er á höttunum eftir hug-
myndum og tækifærum og fæ tíma
og rými til að breyta þeim í bækur
og koma þeim á markað. Þetta er
nokkuð sem við hjá Eddu höfum lát-
ið okkur dreyma um. Núna látum
við drauminn rætast.“
svanborg@frettabladid.is
Ef mér yrði boðið að fara á morg-un hvert sem hugurinn girntist
út í heim myndi ég fara til Kína,“
segir Ásta R. Jóhannesdóttir al-
þingismaður. „Mig hefur lengi
langað til að koma þangað. Fyrir 15
árum eða svo, þegar ég vann sem
fararstjóri, var ég beðin að fara
þangað með hóp af Íslendingum.
Ég lagðist í mikinn lestur um land
og þjóð til að undirbúa mig fyrir
þessa langferð og var búin að ferð-
ast í huganum vítt og breitt um
þetta víðfeðma og heillandi land.
Ég sá í hillingum Kínamúrinn, For-
boðnu borgina, gljúfrin, Shanghai
og fleiri staði sem voru á dag-
skránni.
En ég fór aldrei.
Ég var send í staðinn með góðan
hóp landa okkar í mikla og
skemmtilega ferð um gjörvalla
Suður-Am-
eríku, sem
ég hefði alls
ekki viljað
missa af,
enda er sú
he imsálfa
ó t r ú l e g a
fögur með
fjölbreytt
menningar-
líf og forn-
ar minjar
Maja, Inka
og Asteka
og stórkostlegt og margbreytilegt
náttúrufar.
En allt frá því að ég var næstum
því farin til Kína hefur mig dreymt
um að komast þangað. Mig langar
að sjá terracotta-herinn, sigla um
gljúfrin miklu og fara um svæðin
sem munu fara undir vatn við
stíflugerðina gríðarlegu, sem nú er
að hefjast, komast á múrinn og
skoða eitthvað af þeim miklu lista-
verkum úr fortíðinni sem þar er að
finna og svo margt, margt fleira.
Ljóðlínur Tómasar Guðmunds-
sonar „Það kvað vera fallegt í
Kína. Keisarans hallir skína,“
vörpuðu líka ævintýraljóma á
landið í huga mínum sem barn.
Mig hefur lengi dreymt um að
komast þangað. Ég vona svo sann-
arlega að sá draumur rætist ein-
hvern tíma á næstunni.“ ■
Kristján B. Jónasson hefur tekið við nýju starfi:
Getum látið
drauminn rætast
KRISTJÁN B. JÓNASSON
Hefur tekið við nýju starfi innan Eddu
útgáfu sem þróunarstjóri. Hann segir
að það starf sem hann hafi unnið að
undir merkjum Forlagsins sé hafið upp
á stærra og víðara svið.
ÁSTA R.
JÓHANNESDÓTTIR
Var einu sinni næstum
því farin til Kína og hefur
síðan dreymt um að
komast þangað.
KÍNA
Er draumaáfangastaður Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur.
Lengi dreymt um
að ferðast til Kína