Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 21
Það eiga ekki allir gott með aðskilja þær hvatir sem að baki búa þegar fólk tekur upp símtólið, velur númer og tjáir sig um menn og málefni í innhringiþáttum út- varpsstöðvanna. Dágóður hópur er duglegur við þá iðju og sumum virðist ekkert óviðkomandi, þeir geta talað um allt milli himins og jarðar, hafa skoðanir á öllu. Út- varp Saga er helsti vettvangur innhringinganna um þessar mundir en síminn er einnig opnað- ur á Bylgjunni og Rás 2. Frétta- blaðið sneri dæminu við og sló á þráðinn til nokkurra sem eru dug- legir að hringja í útvarpið. Fjölmiðlun of yfirborðskennd „Ég hringi inn vegna þess að mér finnst fjölmiðlunin of yfir- borðskennd, raunveruleikinn í samfélaginu kemur ekki nógu vel fram,“ segir Guðbjörn Jónsson ráðgjafi. „Ég horfi á málin frá víð- ara sjónarhorni en flestir enda hef ég góða yfirsýn, skynja þjóð- félagið vel og veit hvernig hlut- irnir eiga sér stað.“ Guðbjörn vann lengi almenna verkamanna- vinnu og var til sjós en nam svo bókfærslu og rekstrarhagfræði og kom í kjölfarið nokkuð víða við í atvinnulífinu, meðal annars í hagdeild banka. „Lengi bjó ég við það að fá ekki greinar birtar í blöðum og hóf þess vegna að hringja í útvarpið,“ segir Guð- björn, sem helst hringir í Sigurð G. Tómasson og Arnþrúði Karls- dóttur á Útvarpi Sögu og talar þar um allt sem snýr að mannlegri til- veru. „Það er misjafnt hversu oft ég hringi,“ segir Guðbjörn, „stundum líður mánuður á milli símtala, stundum tveir og svo kemur fyrir að ég hringi nokkrum sinnum í viku“. Aðspurður segist hann ekki búast við að orð hans breyti miklu: „Ég er ekki með neinar sérstakar væntingar um að innlegg mitt skipti máli en vona þó að dropinn holi steininn og að umræðugrundvöllurinn í þjóðfé- laginu breikki,“ segir Guðbjörn og bætir við að hann fái talsvert af viðbrögðum við hringingum sínum og að margir klappi honum á öxlina. Að koma málstaðnum á framfæri „Ég er alltaf að reyna að koma málstaðnum á framfæri,“ segir Sigrún Ármanns Reynisdóttir, formaður Samtaka gegn fátækt, um sínar innhringingar. „Mörg umræðuefni tengjast fátækt, til dæmis vændi, þunglyndi, sjálfs- víg og barnaverndarmál, og þegar þau ber á góma þá slæ ég stund- um á þráðinn.“ Sigrún hringir að- allega í Útvarp Sögu og segir að sér sé prýðisvel tekið: „Það er bráðnauðsynlegt að alþýðan fái að hringja inn og tjá sig,“ segir Sig- rún og vandar ríkismiðlunum ekki kveðjuna í þeim efnum. Hún seg- ist heyra frá fólki að innlegg hennar skipti máli en þvertekur fyrir að þurfa að telja í sig kjark til að hringja inn: „Nei, nei, það var kannski fyrst, þegar ég var að byrja, en nú er þetta ekkert mál“. Lýðræðisþjóðfélag Árni Björn Guðjónsson, hús- gagnasmíðameistari og kaupmað- ur, hefur hringt reglulega í út- varpið um árabil enda ríkur af skoðunum og löngun til að koma þeim á framfæri. „Mér finnst inn- hringiþættir vera stórkostlegur liður í lýðræðisþjóðfélagi, það er nauðsynlegt að fjölbreyttar og marglitar skoðanir fólksins fái að koma fram og í raun ættu stjórn- völd að taka þetta allt saman upp á band til að heyra hvað þjóðin vill,“ segir hann, án þess þó að vilja fullyrða um hvort einhvern þverskurð af samfélaginu sé að finna í innhringiþáttunum. „Ég hef talað um allt mögulegt, enda hef ég skoðun á öllu,“ segir Árni Björn og rifjar meðal annars upp að þegar hann var í framboði fyr- ir kristilegan stjórnmálaflokk fyrir nokkrum árum hafi hann lesið upp úr fagnaðarerindinu í Þjóðarsál Rásar 2. Og efnin geta líka verið smærri í sniðum: „Ég hringdi í vikunni í Útvarp Sögu til að koma þeirri skoðun minni á framfæri að alltaf væri rætt við sömu mennina um efnahagsmálin, bara talað við menn frá Háskólan- um, Seðlabankanum og Íslands- banka og það þrátt fyrir að fjöl- margir aðrir hafi vit og áhuga á málaflokknum“. Heldur hefur dregið úr innhringingum Árna Björns í seinni tíð: „Ég var með maníu hér áður fyrr en þetta hef- ur minnkað,“ segir hann og full- yrðir að ókunnugir taki í höndina á honum úti á götu til að þakka honum fyrir innlegg sín í þjóð- málaumræðuna. „Ég vil hvetja fólk til að hafa áhrif á þjóðfélagið með því að skrifa í blöð eða hringja í útvarpið. Hafi það skoð- anir og geti fært rök fyrir máli sínu hlýtur það að hafa áhrif.“ bjorn@frettabladid.is 21SUNNUDAGUR 25. janúar 2004 Ég horfi á málin frá víðara sjónarhorni en flestir enda hef ég góða yfirsýn, skynja þjóðfélagið vel og veit hvernig hlutirnir eiga sér stað. ,, Hver er maðurinn? m helgina! notuðum bílum verða 80 bílar á sérstöku tilboðsverði. Einnig mikið úrval af notuðum vélsleðum. Sölumenn okkar eru í hátíðarskapi, nýttu þér það. Komdu í fjörið, njóttu gæðanna og skoðaðu nýjungarnar. Komdu á Nýbýlaveginn um helgina, - það verður bara skemmtilegt. Boðið er upp á glæsilegar veitingar alla helgina. Opið laugardag kl. 12-16 og sunnudag kl. 13-16. www.toyota.is ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 * ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 Heiðarlegur og snjall gleðimaður Hann er heiðarlegur og hrein-skiptinn og harður málsvari sinna skjólstæðinga,“ segir Gylfi Orrason knattspyrnudómari, sem hefur haft nokkur kynni af þeim sem spurt er um að þessu sinni. Frá öðrum höfum við það fyrir satt að viðkomandi þyki afar gott að borða þó hann beri þess ekki sérstaklega merki enda í fínu lík- amlegu formi. „Hann er bráð- snjall og fljótur að átta sig á að- stæðum en gleypir enga skoðun hráa,“ segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum á Langa- nesi, og bætir við að þar af leið- andi telji margir hann vera á móti mörgu. „Hann vill hins vegar vega og meta málin og rökræða þau og tekur rökum ef því er að skipta. Hann gerir það hins vegar ekki að óathuguðu máli,“ segir Jó- hannes. Kona sem rætt var við sagði okkar mann sjarmatröll og gleðimann á góðum stundum. Og nú spyrjum við: Hver er maður- inn? Svarið er á blaðsíðu 26. ■ Skoðanir landsmanna á þjóðlífinu liggja ekki alltaf á lausu. Sumum er þó mikið í mun að segja álit sitt og nota til þess innhringiþætti útvarpsstöðvanna. Halló, er einhver á línunni? GUÐBJÖRN JÓNSSON „Orð mín vekja athygli.“ SIGRÚN ÁRMANNS REYNISDÓTTIR „Ég er alltaf að reyna að koma málstaðnum á framfæri.“ ÁRNI BJÖRN GUÐJÓNSSON „Ég var með maníu hér áður fyrr.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.