Fréttablaðið - 25.01.2004, Side 9
9SUNNUDAGUR 25. janúar 2004
FASTEIGNASALAR „Við viljum um-
fram allt girða fyrir að svona lag-
að komi upp þar sem næstum al-
eiga fólks er
undir,“ segir
Magnús Einars-
son, fram-
kvæmdastjóri
Félags fast-
eignasala, um þá
stöðu sem við-
skiptavinir fasteignasala lenda í
þegar um er að ræða fjársvik.
Nokkur mál hafa komið upp að
undanförnu þar sem fasteignasöl-
ur eru ýmist grunaðar um fjár-
svik eða hafa orðið uppvísar að
slíku. Í þeim tilvikum hafa við-
skiptavinir verið berskjaldaðir og
þá gjarnan tapað hátt í aleigunni
vegna skúrka í stétt fasteignasala.
Hæst ber þar fjársvik fasteigna-
sölunnar Holts í Kópavogi þar
sem viðskiptavinir voru hlunn-
farnir um langt á annað hundrað
milljónir.
Nýtt frumvarp um ábyrgð fast-
eignasala er í smíðum en þar eru
engin ákvæði um það að fast-
eignasalar eigi að leggja fram
tryggingar gegn fjársvikum.
Magnús gagnrýnir að næstum
hver sem er geti stofnað til fast-
eignasölu án þess að leggja fram
neinar tryggingar.
„Við viljum að menn sem
stunda fasteignasölu leggi fram
verulegar tryggingar í formi
bankaábyrgðar. Þannig verður
eitthvað í húfi fyrir byrjendur og
það lendir á þeim sjálfum ef þeir
svíkja viðskiptavini sína. Þá getur
ekki hver sem er komið inn af göt-
unni og stofnað fasteignasölu í
skjóli einhvers sem hefur löggild-
ingu sem fasteignasali en skiptir
sér ekkert af rekstrinum,“ segir
Magnús.
Hann segir að félagið vilji
ganga enn lengra en frumvarpið í
að krefjast meiri menntunar og
starfsreynslu löggiltra fasteigna-
sala.
rt@frettabladid.is
Vilja tryggja aleigu
fólks gegn svikum
Félag fasteignasala vill herða lög um fasteignasala. Félagið vill að þeir
sem stofna til fasteignasölu leggi fram milljónatryggingar til að mæta
hugsanlegum svikum.
HOLT
Fasteignasalinn var staðinn að því að svíkja langt á annað hundrað milljónir út úr viðskiptavinum.
Þingkona gagnrýnd:
Skilur sjálfs-
morðsárásir
LUNDÚNIR, AP Þingkona frjálslyndra
demókrata hefur verið harðlega
gagnrýnd fyrir að segja að hún
myndi hugsanlega
íhuga að gera
sjálfsmorðsárás
ef hún byggi á
h e r n u m d u m
svæðum Palest-
ínu. Jenny Tonge
segist geta skilið
hvers vegna
P a l e s t í n u m e n n
grípi til slíkra ör-
þrifaráða þar sem það fylgi því
óbærileg þjáning að lifa undir
stjórn Ísraela.
Þingmenn annarra flokka hafa
krafist þess að Tonge taki ummæli
sín til baka en hún stendur fast á
sínu. „Ég sagði ekki að ég gæti
fyrirgefið þeim sem gera sjálfs-
morðsárásir. Enginn getur fyrir-
gefið þeim. En ég skil hvers vegna
fólkið sem býr þarna gerir sjálfs-
morðsárásir,“ sagði Tonge. ■
NEYTENDUR Mikill verðmunur
reyndist vera milli tannlækna á
þeim gjaldskrárliðum sem Sam-
keppnisstofnun kannaði. Munur-
inn á lægsta og hæsta verði
reyndist vera frá 100% og upp í
650% eftir einstökum gjaldskrár-
liðum. Þannig var 100% verðmun-
ur á lægsta og hæsta verði á
heilgómasetti af fölskum tönnum.
Lægsta verð var 100.000 krónur
en hæsta verð 200.000. Þá kostaði
frá 2.000 krónum upp í 15.000
krónur að setja plastfyllingu í tvo
fleti í jaxl, sem svarar 650% verð-
mun á lægsta og hæsta verði.
Samkeppnisstofnun hefur nú í
haust kannað verð á nokkrum
gjaldliðum hjá starfandi tann-
læknum á Íslandi. Eyðublöð voru
send út til 251 tannlæknis og svör
bárust frá 86% þeirra.
Könnunin náði til sex gjaldliða
fyrir tannlækningar, veittar sjúk-
lingum sem tryggðir eru sam-
kvæmt almannatryggingalögum.
Verðlagning tannlækna er
frjáls og þeim því heimilt að verð-
leggja þjónustu sína í samræmi
við eigin forsendur. Því getur
verð fyrir sambærilega þjónustu
verið afar misjafnt milli tann-
lækna. ■
Verðkönnun hjá tannlæknum:
Sjöfaldur verðmunur
JENNY TONGE
Þingkona frjáls-
lyndra demókrata.
TANNLÆKNINGAR
Verðmunur hjá tannlæknum er allt að
650% samkvæmt verðkönnun.
„Þannig
verður eitt-
hvað í húfi fyr-
ir byrjendur.
ÆRUMEIÐINGAR „Ég hef lagt fram
kæru til lögreglunnar í Keflavík
því ég tel að með þessum skrifum
sé verið að gera starf mitt sem
fréttamanns ótrúverðugt,“ segir
Hilmar Bragi Bárðarson, frétta-
stjóri Víkurfrétta. Ákveðið hefur
verið að leggja niður spjallþræði
á vef Víkurfrétta tímabundið í
kjölfar þess að einhver óprúttinn
gerði sér að leik að skrifa inn á
spjallþráðinn undir nafni og net-
fangi Hilmars Braga.
„Ég hafði um nokkurt skeið
þurft að benda fólki sem skrifaði
inn á spjallþráðinn á að haga sér
skikkanlega og gæta hófs í skrif-
um sínum, en án árangurs.
Nokkuð hafði borið á rætnum
þráðum og níði í garð nafn-
greindra einstaklinga og allt í
skjóli nafnleyndar. Í kjölfarið
birtist svo þetta bréf í mínu
nafni.“
Hilmar Bragi hefur lagt fram
kæru til lögreglunnar í Keflavík
vegna ærumeiðingar og mis-
notkunar á nafni og netfangi.
Máli sínu til stuðnings afhenti
hann útskriftir af spjallþráðum
Víkurfrétta ásamt gögnum sem
eiga að gera lögreglunni fært að
rekja slóðina aftur til sendand-
ans. „Ég vil að haft sé uppi á
þessum aðila og hann látinn
standa fyrir máli sínu. Mér
finnst ótækt að menn hagi sér
svona.“ ■
Víkurfréttir hafa lokað spjallþræði vegna níðskrifa:
Fréttastjóri kærir
til lögreglu
HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
Hilmar Bragi segir að til standi að opna spjallþráðinn á ný eftir að búið sé að leita
annarra leiða til að halda spjallinu úti án þess að nafnleynd komi þar við sögu.
40 ÖKUMENN KÆRÐIR Fjörutíu
ökumenn voru kærðir vegna
ýmissa umferðarlagabrota í
Hafnarfirði í síðustu viku.
Sautján keyrðu of hratt, fimmt-
án höfðu ekki farið með bílana
sína í skoðun, sex keyrðu á móti
rauðu ljósi og einn er grunaður
um ölvun við akstur. Sjö um-
ferðaróhöpp voru tilkynnt, en
engin slys urðu á fólki.
STOLIÐ ÚR LYFJAKISTU Brotist
var um borð í Birtu VE þar sem
báturinn lá inni í Friðarhöfn í
Vestmannaeyjum. Farið var í
lyfjakistu bátsins og öllu stolið
sem í henni var, verkjatöflum,
sáraumbúðum og fleira. Talið er
að þjófnaðurinn hafi átt sér stað í
byrjun janúar og vill lögreglan í
Vestmannaeyjum biðja þá sem
upplýsingar geta gefið að hafa
samband.
■ Lögreglufréttir
Félagsmiðstöðin Vest-End:
Nýr for-
stöðumaður
PATREKSFJÖRÐUR Bæjaryfirvöld í
Vesturbyggð hafa ráðið nýjan yf-
irmann félagsmiðstöðvarinnar
Vest-End á Patreksfirði. Tvær
konur sóttu um starfið og var það
einróma álit Íþrótta- og æskulýðs-
nefndar Vesturbyggðar að mæla
með ráðningu Söndru Skarphéð-
insdóttur og óskað eftir að hún
hæfi störf sem fyrst.
Hún tekur við af manni sem
látinn var víkja eftir að alvarleg
og ítrekuð kynferðisbrot manns-
ins gegn ungum drengjum á Pat-
reksfirði voru kærð til lögreglu.
Rannsókn málsins er að mestu
lokið og fer til ríkissaksóknara. ■