Fréttablaðið - 25.01.2004, Síða 23
23SUNNUDAGUR 25. janúar 2004
ferðum. Umræðan má ekki
stjórnast af einhverjum rétt-
trúnaði. Staðan sem uppi er nú
vegna Landspítala er ekki uppi
vegna stefnubreytingar sem
miðar að einkavæðingu, en
einkarekstur er hér á landi í
stórum stíl utan spítalans.
Stundum er talað eins og einka-
væðing og einkarekstur muni
bjarga öllu, eins og þá verði
skyndilega til nógir peningar.
Þetta finnst mér vera fljótandi
tal. Menn mega ekki gleyma að
við erum með einkarekstur víða
í heilbrigðiskerfinu, til dæmis í
sérfræði- og öldrunarþjónust-
unni. Þetta hefur gengið ágæt-
lega en kostar fjármuni, engu
síður en ríkisreksturinn.“
Getur verið að það sé Sjálf-
stæðisflokkurinn sem leggur lín-
urnar í heilbrigðismálum fremur
en Framsóknarflokkurinn?
„Nei, við mótum þessa stefnu
fyrst og fremst, en auðvitað er
hún niðurstaða samkomulags
tveggja flokka í samsteypu-
stjórn. Ríkisstjórnin og stjórnar-
flokkarnir standa að stefnunni í
heilbrigðismálum, en hún er út-
færð af mér hér í ráðuneytinu.
Samstarfsflokkurinn heldur
utan um fjármálin og peningar
eru auðvitað afl þeirra hluta sem
gera skal. Ég get ekki einfald-
lega sagt að hlutirnir eigi að
vera á ákveðinn hátt og farið svo
og sótt peningana í fjármála-
ráðuneytið.“
Ertu þá undir hælnum á Geir
H. Haarde fjármálaráðherra?
„Ég myndi ekki orða það
þannig en eðli málsins sam-
kvæmt þarf ég, eins og allir ráð-
herrar, að hafa mikið samstarf
við fjármálaráðherra. Það er
hann sem fer með fjármunina og
það sem gert er þarf að vera í
samkomulagi við ríkisstjórn-
ina.“
Finnst þér ekki að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi undanfarið ver-
ið að beygja þig í hverju málinu á
fætur öðru?
„Nei, ég hef náð samkomulagi
um þau mál sem ég hef farið
með og ríkisstjórnin og stjórnar-
flokkarnir standa að þeim.“
Sé ekki af hverju ég ætti að
víkja
Nýlega kom fram að hér á
landi hefur öryrkjum fjölgað um
50 prósent á sex árum. Verður
ríkisstjórnin ekki að bregðast við
þessu á einhvern hátt?
„Það þarf að skoða grannt
hvaða ástæður eru fyrir þessu.
Það var athyglisvert að heyra
kenningu um það að aukin harka
á vinnumarkaði sé orsök þessa.
Ég held að það sé mjög alvarlegt
mál ef menn eru dæmdir út af
vinnumarkaði vegna örorku.“
Nú verða breytingar hjá fram-
sóknarmönnum í haust. Halldór
Ásgrímsson verður forsætisráð-
herra og einn framsóknarráð-
herra verður að víkja úr emb-
ætti. Nú ert þú elstur framsókn-
arráðherranna og sennilega í erf-
iðasta ráðuneytinu, í það minns-
ta því vanþakklátasta. Óttastu
um ráðherradóm þinn?
„Ég hef ekki miklar áhyggjur
af þessu. Ég hef gefið kost á mér
til að vera áfram í þessu ráðu-
neyti og hef haft ánægju af því
að fást við þau verkefni sem hér
eru. Ég hef nóg að gera og mun
vinna mín verk af kostgæfni
þangað til 15. september. Síðan
verður ákveðið hver víkur. Ég sé
ekki af hverju ég ætti að víkja.
Framsóknarflokkurinn þarf fyr-
ir og eftir 15. september að
höfða til þess breiða hóps sem
studdi flokkinn til góðra verka í
kosningunum í fyrra.“
Muntu berjast fyrir þínu sæti?
„Auðvitað. Ég hef fullan hug á
að ljúka því verki sem mér var
falið.“
Hagur öryrkja hefur batnað
Það varð mikill hvellur fyrir
jólin vegna samkomulags sem
þú gerðir við öryrkja en þeir sök-
uðu síðan ríkisstjórnina um að
standa ekki við gerðan samning.
Hvernig horfa samskiptin við Ör-
yrkjabandalagið við þér?
„Ég sagði í umræðum fyrir
jólin að ég og fulltrúar öryrkja
hefðum kannski þurft að ganga
betur frá viljayfirlýsingu okkar.
Hins vegar er ég mjög ánægður
með að um áramótin tók gildi
mesta kjarabót sem þeir sem
ungir verða öryrkjar hafa fengið
um árabil. Sú kjarabót kom til af
því að ég og fulltrúar Öryrkja-
bandalagsins settumst niður og
töluðum saman og komumst að
þeirri niðurstöðu að rétt væri að
fara í þessar aðgerðir. Síðan
komu upp fyrir jólin mismun-
andi túlkanir á samkomulaginu.
Mér mislíkar hvernig málinu
var snúið upp í harða gagnrýni á
flokk minn, en ég hvorki vil né
get ráðið því hvernig andstæð-
ingar mínir haga orðum sínum.
Nú er orðið hljótt um málið enda
er þarna um að ræða gríðarlega
kjarabót sem ég er stoltur af. Ég
sagði jafnframt að vitaskuld lyki
réttindabaráttu öryrkja ekki
með þessum aðgerðum. Á miðju
ári munum við meta hvernig til
hefur tekist. Ég er stoltur af því
að hafa komið málinu í kring í
góðri samvinnu við Öryrkja-
bandalagið en þar eru fyrir bar-
áttumenn sem eru ekki þekktir
fyrir að skafa utan af hlutunum.
Þótt við höfum eldað saman
grátt silfur sjá það þeir sem vilja
sjá að aldrei hefur hagur öryrkja
batnað jafn mikið og á síðustu
árum. Það er auðvitað það sem
skiptir máli.“
Ef þú verður áfram heilbrigð-
isráðherra þegar Halldór
Ásgrímsson verður forsætis-
ráðherra, gerirðu þá ráð fyrir að
fá meira svigrúm en þú hefur
kannski fengið hingað til í emb-
ætti?
„Ef þú ert að tala um peninga
held ég ekki að það verði auð-
veldara að sækja þá til Halldórs
en annarra. Breytingar verða
alltaf með mannaskiptum en ég
á ekki von á því að ráðuneytin
leiki lausum hala undir stjórn
Halldórs. Framsóknarflokkur-
inn er í samstarfi við Sjálfstæð-
isflokkinn og verður það áfram
þannig að ég á ekki von á að það
verði kúvendingar í störfum rík-
isstjórnarinnar.“
Siglir ekki lygnan sjó
Ef Ísland á að teljast öflugt
velferðarríki, er þá ekki misráðið
að ætla sér að spara peninga í
heilbrigðiskerfinu?
„Ríkisstjórnin hefur verið að
leggja aukna fjármuni í heilbrigð-
is- og tryggingakerfið. Það eru tíu
milljörðum króna hærri framlög
til bæði heilbrigðis- og trygginga-
mála en var á árinu 2003. Þetta er
að hluta til vegna hækkandi bóta,
verðlagsuppfærslna, launahækk-
ana og vegna þess að verið er að
taka upp nýja starfsemi. Fjár-
þörfin er rík þrátt fyrir aukin
framlög og það sem við erum að
gera er einfaldlega að slá á sjálf-
virka útgjaldaaukningu. Við vilj-
um veita sem besta þjónustu í
heilbrigðiskerfinu, höfum sett
okkur metnaðarfull markmið og
verjum 40 prósentum af ríkisút-
gjöldunum í heilbrigðis- og trygg-
ingamál. Auðvitað verður heil-
brigðiskerfið, eins og aðrir þættir
í samfélaginu, að reka sína starf-
semi á hagkvæman hátt.“
Þú varst vinsæll og óumdeild-
ur þegar þú tókst við embætti en
ert nú orðinn frekar umdeildur
ráðherra. Ertu ekki farinn að lýj-
ast í öllu þessu mikla þvargi sem
fylgir þessu starfi?
„Ég er vanur að vinna og er í
ágætu formi. Ég hef gaman af
að vinna með því góða og öfluga
fólki sem er í heilbrigðiskerf-
inu. Það er vel menntað og kem-
ur sínum málum vel frá sér.
Áður var ég formaður fjárlaga-
nefndar og þá mæddi mikið á
mér, enda voru uppi miklar
kröfur, ekki bara í málum sem
vörðuðu heilbrigðiskerfið. Ég
var í sjónvarpsviðtali um dag-
inn um málefni Landspítalans
og mér fannst allt í einu eins og
ég hefði verið í því viðtali áður.
Svo rifjaðist upp fyrir mér sá
tími þegar ég var formaður
fjárlaganefndar en þá var ég
einmitt oft í viðtölum um spítal-
ann og fjárþörf hans, þannig að
þessi aðstaða er ekki ný. Á sín-
um tíma vann ég náið með fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra
hér í þessu ráðuneyti og var í
ýmsum verkum. Ég fékk einu
sinni það verkefni, ásamt Ein-
ari Oddi Kristjánssyni og fleir-
um góðum mönnum, að skera
niður 160 milljónir af lands-
byggðarsjúkrahúsunum. Það
urðu þvílík læti í kringum það
að þetta mál sem er uppi núna
er einungis dauft bergmál af
því. En það er alveg ljóst að
maður siglir ekki lygnan sjó í
ráðuneytinu fremur en í pólitík-
inni yfirleitt.“
kolla@frettabladid.is
Það þurfti að leita
leiða til að hagræða í
starfsemi spítalans en um
leið er mikilvægt að öryggis
sé gætt. Ef stjórnendur spít-
alans álíta að einhverjar af
þessum aðgerðum dragi úr
öryggi mun ég fara betur yfir
þau mál með þeim. Hlutverk
spítalans er mjög sérstakt.
Hann er endastöðin í heil-
brigðiskerfinu og getur ekki
vísað annað verstu tilfellum
sem til hans koma. Þarna
hafa stjórnendur og starfs-
fólk náð gríðarmiklum ár-
angri og til þessarar stofn-
unar er varið mjög miklum
fjármunum. Við höfum ekki
getað mætt allri fjárþörf og
þurfum að staldra við núna
en ég tel að stjórnendurnir
hafi mætt málinu af mikilli
ábyrgð og ég vil í góðri sam-
vinnu við þá komast út úr
þeim stormi sem nú gengur
yfir.
,,
HEILBRIGÐISRÁÐHERRANN
„Ég er stoltur af því að hafa komið málinu í kring í góðri samvinnu við Öryrkjabandalagið en þar eru fyrir baráttumenn sem eru ekki
þekktir fyrir að skafa utan af hlutunum. Þótt við höfum eldað saman grátt silfur sjá það þeir sem vilja sjá að aldrei hefur hagur öryrkja
batnað jafn mikið og á síðustu árum. Það er auðvitað það sem skiptir máli.“
Ísland
Áfram
í landinu
handboltastarfið
og styðjum
Kaupum
handklæði
Tökum vel á móti
handboltakrökkunum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA