Fréttablaðið - 25.01.2004, Side 26
26 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Maðurinn er
Myndverk vikunnar
Stafagátan
10
2332
1
14
123
271423
26
202312
142718
27
1
14
1
14
1
11
14
28
7
4
22
3
15
13
1
14
18
31
3
20
28
10
15
18
10
3
3
14
3 18
27
141927
10
102626
29
9
8 22827
109
182810
17
26
18
27
10
26211527
155
1
27316626281126224
1
10
27
3
23
30
18
24
26
12
1
872125
GÁTAN hér að ofan er í ætt við svonefnda hjartagátu sem margir kannast við. Gefið er eitt orð og stafina í
því orði seturðu í gátuna þar sem sömu tölustafi er að finna. Það er svo þitt að finna aðra stafi og þegar því
er lokið er auðvelt að fylla út lausnarorðið hér fyrir neðan, sem er kvenmannsnafn. Í gátunni er að finna
alla stafi íslenska stafrófsins nema c, z, q og w. Lausnarorð síðustu gátu var: Fanney
LAUSNARORÐIÐ ER: 23 20 26 29 1
B KÍR
Krossgátan
Lárétt: 2 fróðleikur um „allt“, 6 fræg bók, 7 les hægt, 9 valda tjóni, 12 við öll, 13 staðfesting á vöruflutningi, 15 þar sem menn
semja, 18 búa til, 20 röddin, 22 pár, 23 mikið fé.
Lóðrétt: 1 húðfelling, 2 ávöxtur, 3 snauð, 4 lengst frá, 5 vatnagangur, 8 skoðar vel, 10 ræktað land, 11 viljug, 12 samkvæmt tísku,
13 hesta, 14 lagtegund, 16 þvaðra, 17 gímaldið, 19 þræta, 21 síðdegi.
Lausn:
1
14
21
17
1110
16
23
20
15
22
18
13
8
9
6
19
12
7
432 5
Lárétt:2alfræði,6njála,7stautar, 9skaða,12mannkyn,13farmskrár, 15karphús,18skapa,20raustin,22krass,23auðmagn.
Lóðrétt:1hes,2akarn,3fátæk,4innstur, 5flóð,8rannsakar, 10akur, 11auðfús,12móðins,13fáka,14rómansa,16rausa,
17hítin,19karp,21nón.
Það er Ari Teitsson, formaðurBændasamtakanna, sem spurt
var um á blaðsíðu 20. Ari hefur
staðið í eldlínu hagsmunavörslu
bænda síðustu ár og verið undir
talsverðu álagi enda staða
margra bænda með erfiðara móti.
Hann setur íslenskt í öndvegi og
slær auðvitað ekki hendinni á
móti almennilegum þorramat. Ari
Teitsson ætti því að vera glaður í
bragði þessa dagana enda fá
bragðlaukar hans að njóta dá-
semda súrmetis af ýmsu tagi
næstu daga og vikur auk þess
sem nýjustu fréttir herma að
kindakjötssalan hafi aukist á síð-
asta ári. ■
EITTHVAÐ TIL AÐ HUGSA UM
Hvati verksins kemur frá dagblaðabunkanum en þar skírskotar listamaðurinn ítil þess sem
hún kallar „heildarfréttamennsku“ þar sem ekki er verið að vísa í neina eina ákveðna frétt
heldur hinn sjónræna tvívíða heim sem fréttamiðillinn býr til.
Rýmisverk – verk
til að hugsa um
Ari Teitsson
Myndverk vikunnar að þessusinni er nafnlaust rýmisverk
eftir Eygló Harðardóttur sem Lista-
safn Íslands keypti í júní árið 2002 á
250 þúsund.
Eygló Harðardóttir er fædd árið
1964. Hún lauk námi frá Myndlistar-
og handíðaskóla Íslands árið 1987
og fór eftir það í framhaldsnám til
Hollands í Akademi voor Beeldende
Kunst en Industrie, Enschede.
Rýmisverkið er verk til að hugsa
um, myndað úr rauðkartoni, pappír,
ljósritum, dagblöðum, gouache og
tempera sem er sett á vatnslita-
pappír. Tvö ljósrit af sama ramma
eru úr kvikmynd eftir Peter
Greenway „The Draughtsman’s
Contract“ frá 1981. Einnig er út-
færsla á Herman Hering-reitum
sem fjalla um sjónræna skynjun.
Stærð verksins er breytileg.
Verk Eyglóar Harðardóttur veit-
ir okkur sýn inn í hinn sjónræna tví-
víða heim sem birtist okkur á marg-
an hátt. Framsetning þessa verks er
tiltölulega tvívíð en upplifunin
margræðari.
Hvati verksins kemur frá dag-
blaðabunkanum en þar skírskotar
listamaðurinn til þess sem hún kall-
ar „heildarfréttamennsku“ þar sem
er ekki verið að vísa í neina eina
ákveðna frétt heldur hinn sjónræna
tvívíða heim sem fréttamiðillinn
býr til. Útlit dagblaða er klassískt
og má færa að því rök að eins og
fréttirnar eru settar upp í dagblöð-
um komi þær fyrir sjónir almenn-
ings sem trúverðugar fréttir. Hins
vegar er sannleiksgildið afmarkað
og í raun tvívítt. Fréttir eru t.d. háð-
ar þeim sem flytja þær. Heildarsýn
eða margræð sjónarhorn eiga ekki
við þegar við erum að tala um þenn-
an miðil.
Hinn sjónræni þáttur verksins
og ekki síst hlutverk litarins er mik-
ilvægur. Svartir reitir í gólfhlutan-
um eru teknir úr sjónskynjunar-
rannsóknum Hermans Hering um
skuggann sem birtist á hinum hvíta
fleti milli ferninganna þó að hann sé
ekki þar. Þessir reitir vísa um leið í
dálkauppraðanir dagblaða og hverf-
ulleik sannleiksgildisins, þess sem
við sjáum og því sem heilinn segir
okkur að við sjáum. Þannig er vegg-
hluti verksins dæmi um hvernig lit-
ir kalla fram andstæða liti í skynjun
áhorfandans og ef horft er á hring-
ina í einhvern tíma fljóta litirnir
saman. Í hinum hangandi hluta
verksins er svo leitað inn í hið opna
svæði hugans þar sem ein mynd
sem birtist í huga listamannsins
kallar á aðra. Þetta mætti kalla
fréttamyndir hugans. Enn ein vís-
unin í verkinu er í kvikmyndina og
hið sjónræna hugarspil sem áhorf-
andinn notar þegar hann horfir á
kvikmyndir. Tvær myndir í gólf-
hluta verksins eru teknar úr kvik-
mynd en önnur myndin hefur verið
„hreinsuð“ af öllum aukaatriðum.
Með þessu undirstrikar listamaður-
inn að í kvikmyndum er hreyfing í
tíma og rúmi en myndin á tjaldinu
eða skjánum er aftur á móti tvívíð-
ur flötur. Heili okkar býr hins vegar
til allt aðra mynd en þá sem birtist á
flötum fleti, þ.e. þrívíða mynd. ■