Fréttablaðið - 25.01.2004, Side 29
SUNNUDAGUR 25. janúar 2004
Þorrablót í Köben:
Kynnisferð um Kristjaníu
Íslendingafélagið í Kaupmanna-höfn heldur árlegt þorrablót sitt
7. febrúar næstkomandi. Hljóm-
sveitin Skítamórall mun halda
uppi fjörinu ásamt fyndnasta
manni Íslands, Gísla Pétri Hin-
rikssyni. Blótið er haldið í Den
Grå Hal í útjaðri Kristjaníu. Á
boðstólum verður að sjálfsögðu
alvöru íslenskur þorramatur.
Icelandair býður upp á ferðir á
þorrablótið frá Íslandi og er hægt
að velja um ferð með eða án hót-
els. Nánari upplýsingar um þetta
má fá hjá söluskrifstofum
Icelandair. Þeir sem kaupa miða á
þorrablótið í gegnum Icelandair
eiga þess kost að fara í gönguferð
um Kristjaníu með leiðsögn
reyndra heimamanna í fríríkinu.
Sú ferð hefst klukkan 12 sama dag
og þorrablótið er haldið. Útlit er
fyrir að hver sé að verða síðastur
að sjá og upplifa hið sögufræga
fríríki Kristjaníu.
Miða á þorrablótið má einnig
panta á netfanginu thorra-
blot@email.dk. ■
Hin árlega Skíðavika á Ísafirðiverður haldin um páskana,
líkt og löng hefð er fyrir, og eru
Ísfirðingar og nágrannar byrjaðir
að undirbúa dagskrána, sem
aldrei hefur verið viðameiri.
Skíðavikan hefur verið snar
þáttur í menningarlífi Ísfirðinga
um langt árabil, allt frá árinu 1935
þegar gestir sigldu til Ísafjarðar
með farþegaskipinu Súðinni og
seinna Gullfossi til að taka þátt í
veglegum hátíðahöldunum. „Há-
tíðin á sér mikla sögu, enda elsta
bæjarhátíð landsins,“ segir Rúnar
Óli Karlsson, upplýsingafulltrúi
ferðamála á Ísafirði. „Hér hefur
verið gríðarlegur fjöldi gesta ár-
lega og fer fjölgandi. Oft hefur
íbúafjöldi Ísafjarðar tvöfaldast í
dymbilvikunni.“
Í ár verða á skíðavikunni fjöl-
margir listamenn, jafnt ísfirskir
sem aðkomnir, sem hafa troðið
upp á Skíðaviku í gegnum tíðina
og eiga margir fastan sess í dag-
skrá vikunnar.
„Dagskráin tengist fyrst og
fremst útivist og menningu og nú
ætlum við til dæmis að vera með
golfmót á snjó. Verðum hér uppi á
heiðunum á troðnum golfbraut-
um. Á kvöldin eru svo myndlistar-
sýningar og öðruvísi bíósýningar
þar sem verið er að sýna hasar-
myndir, tengdar íþróttum. Við
vorum með bílabíó í fyrra og
stefnum að því aftur í ár. Svo er
iðandi líf í bænum á kvöldin, alls
kyns tónlistaruppákomur og
skemmtilegheit. Þá verður að
venju tvíkeppni Byggðasafnsins
þar sem fyrsta skíðakeppnin á
Vestfjörðum er endurvakin. Hún
var fyrst haldin í Önundarfirði
1909 og kallaðist þá rennsli með
sneiðingum og 120 skrefa hlaup á
skíðum. Byggðasafnið skaffar
græjurnar, gömul skíði og stafi,
og snyrtilegur klæðnaður er áskil-
inn. Fólk verður að mæta í göml-
um jakkafötum af pabba eða afa
eða klæðilegum kjólum af ömmu
til að vera gjaldgengt.“
Skíðavikan hefst 7. apríl. ■
Björn Ingi Hilmarsson leikarifór til Rómar í fyrsta sinn í
sumar og fannst það alveg frá-
bær borg. „Mér fannst maturinn
og vínið frábært og svo eru Ítal-
irnir svo skemmtilegir,“ segir
Björn Ingi. „Svo er svo sterk
saga í þessari borg, rústirnar og
allt það. Þegar maður labbar til
dæmis inn í Colosseum verður
þetta allt svo áþreifanlegt fyrir
manni.“
Björn neyddist til að
flýja borgina vegna
þess að hitinn var
orðinn svo mikill en
segist engu að síður
staðráðinn í að fara
aftur til Ítalíu. „Al-
veg örugglega, því
fyrr því betra.“ ■
DEN GRÅ HAL
Þar verður þorrablót Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn haldið laugardaginn 7. febrúar.
120 SKREFA HLAUP Á SKÍÐUM
Ekki tjóir að mæta druslulegur til þessarar
keppni, enda snyrtilegur klæðnaður áskil-
inn. Keppnin er meðal fjölmargra dag-
skrárliða á Skíðaviku á Ísafirði.
Elsta bæjarhátíð landsins undirbúin:
Fjör á Ísafirði um páskana
DÝRÐLEG UPPLIFUN TIL FJALLA
Brotfluttir Ísfirðingar fjölmenna í heima-
byggð í dymbilvikunni, svo og aðrir gestir.
BJÖRN INGI
HILMARSSON
Fór til Rómar í fyrsta sinn í
sumar og heillaðist mikið.
Uppáhaldsborgin:
Skemmtilegir Ítalir
RÓM
Frábær borg að mati Björns Inga.