Fréttablaðið - 25.01.2004, Page 30
matur o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Vín 2004, vínsýning Vín-þjónasamtakanna, verður
opin í dag frá kl. 14.00 til 18.00
í Þingsölum Hótel Loftleiða.
Þrír fyrirlestrar verða í boði
fyrir gesti. Kl. 14.30 stígur á
stokk Einar Thoroddsen og
fjallar um víngerð í Bordeaux.
Á eftir honum kemur Frakk-
inn Stéphane Oudar frá vín-
fyrirtækinu Bouchard Ainé &
Fils og mun hann segja frá fyr-
irtækinu og víngerð í Búrg-
undarhéraðinu. Síðasta lestur-
inn flytur Þorri Hringsson en
hann ætlar að líta á nýjungar í
spænskri víngerð, sem hann
telur verða næsta stóra dæmið
í vínheiminum. Þorri er jafn-
framt kynnir á sýningunni,
sem haldin er í samvinnu við
alla helstu innflytjendur vína
og er mikil áhersla lögð á sam-
spil víns og matar. Miðaverð
er 1.000 kr. og Riedel-glas
fylgir með á meðan birgðir
endast. Vínþjónasamtökin
leggja áherslu á ábyrga með-
ferð áfengis og er aldurstak-
mark 20 ár. ■
Gestir á vínsýningunni á Hótel Loftleiðum ídag geta fengið að smakka rauðvínið
Frontera Cabernet Sauvignon og hvítvínið
Frontera Chardonnay ásamt fleiri tegundum
frá Concha y Toro. Frontera er rúbínrautt að
lit með fjólurauðum jaðri. Ilmar af brómberj-
um, melónum, þurrkuðum plómum og vanillu.
Langvinnt berjabragð með góðum endi. Pass-
ar vel með ostum, pasta og rauðu kjöti.
Concha y Toro er stærsti vínframleiðandi í
Chile og framleiðir meðal annars Sunrise sem
er eitt vinsælasta rauðvínið í flösku á Íslandi
og Casillero del Diablo sem þýðir „Kjallari
djöfulsins“!
Frontera í flöskum er fáanlegt í Vínbúðum
Kringlunnar og Heiðrúnu á 950 kr. Frontera
er einnig fáanlegt í 3 lítra kössum á 3.490 kr.
í öllum helstum Vínbúðum. ■
Fleira gleður bóndann enþorramatur, þótt góður sé.
Eitt af því er safarík nautasteik
á diskinn. En hvernig eigum við
að velja hana og elda? Kjötiðn-
aðarmennirnir Helgi Víkingsson
og Halldór Jónsson í Kjöthöll-
inni litu upp frá vinnu sinni til
að gefa okkur ráð um hvað beri
að gera – og hvað að varast.
„Sumir leita að rauðri kjöt-
sneið og halda að hún verði mjúk
við steikingu en það er misskiln-
ingur. Í það kjöt vantar algerlega
fitu þannig að steikin verður
seig, nema hún sé barin fyrir
eldun,“ segja þeir og til saman-
burðar sýna þeir framhryggjar-
sneið úr nauti sem þeir segja
uppáhaldssteik karlanna, prime
ribs! Hún er með hvítum ögnum
sem fljótt á litið virðast vera sin-
ar en þeir segja fína fitu. „Fitan
leysist upp og verður að safa og
maður þarf ekki einu sinni olíu
eða smjörlíki á pönnuna. Bónd-
inn á mesta heiðurinn af gæðum
þessa kjöts. Hann elur nautið á
káli og lætur það ekki hreyfa sig
um of. En svo þarf kjötið líka að
hanga í tvær vikur til að meyr-
na.“
Þeir félagar segja kjöt í frauð-
plastbökkum sjaldnast meira en
vikugamalt. „Kjöt rýrnar þegar
það hangir. Þess vegna er því oft
vakúmpakkað sem nýjustu, þá
vegur það meira,“ segja þeir til
skýringar.
Þá er það steikingin. „Það er
fljótlegt að elda nautasteik í
sneiðum. Pannan þarf að vera
glóandi heit og svo fer það eftir
því hvernig fólk vill hafa steik-
ina hversu oft henni er snúið en
svona kjöt á að steikja sem
minnst. Þeir sem eru hræddir
við rauða litinn eiga bara að
hafa sneiðarnar þynnri. Nauta-
kjöt má ekki steikja lengi, það
getur orðið grjóthart.
Ef um heila vöðva er að ræða
eru þeir hins vegar steiktir við
lágan hita. 160-180 gráður er
æskilegur hiti á roast beef í
þriggja tíma steikingu. Það má
líka vera á 80 gráðum í álpappír
í 12 tíma. Svo þarf það að hvíla
aðeins eftir steikingu. Þá fær
maður súperkjöt.“
Að lokum benda þeir fólki á
síðu Félags íslenskra kjötiðnað-
armanna, www.fik.is, þar sem
fólk getur lagt inn fyrirspurnir
ef aðstoð vantar.
gun@frettabladid.is
Margrét Guðbrandsdóttir,kennari og matgæðingur í
Hafnarfirði, er þekkt að því að
bera á borð ljúffenga rófu-
stöppu sem passar einkar vel
með súrmat og sviðum. Hún
rekur reyndar uppruna stöpp-
unnar til annarrar ágætrar
konu í Firðinum sem hún kallar
Millu. „Milla er tengdamóðir
systur minnar og er nákvæm-
lega þrjátíu árum eldri en ég
svo við eigum alltaf merkis-
afmæli saman. Hún er snilldar-
kokkur og ég hef fengið frá
henni margar stórkostlegar
uppskriftir,“ segir Margrét og
lætur okkur í té þessa, sem
passar í eitt meðalstórt eldfast
mót:
BÖKUÐ RÓFUSTAPPA
1,2 kg rófur
1 egg
1 bolli brauðrasp, helst heimagert
1 bolli mjólk
3/4 bolli sýróp
múskat eftir smekk
1 msk. smjör
2 msk. brauðrasp
Rófurnar eru flysjaðar og soðnar
í saltvatni. Síðan eru þær stappaðar.
Eftir það eru þær settar í hrærivél
og hrærðar með egginu, brauðrasp-
inu, sýrópinu, mjólkinni og múskat-
inu.
Eldfast fat er smurt og stöpp-
unni hellt í það. Smjörið sett í smá-
bitum ofan á og raspi dreift yfir.
Bakað í ofni í tvo tíma á 150 gráðu
hita, án blásturs. ■
MARGRÉT GUÐBRANDSDÓTTIR
Hún tvöfaldar gjarnan uppskriftina enda
eldar hún oft fyrir marga.
Rófustappa í hátíðarbúningi:
Passar vel með
súrmat og sviðum
Vín á vínsýningunni
Vín á vínsýningunni
HELGI OG HALLDÓR Í KJÖTHÖLLINNI
„Þeir sem ekki vilja steikina rauða eiga að hafa sneiðarnar þynnri,“ segja þeir.
Vínber
Vínber eru aðallega ræktuð til víngerðar eneinnig til að borða fersk og þurrka í rúsín-
ur. Uppruni þeirra er bæði rakinn til Kákasus
og Miðjarðarhafssvæðisins. Vín er síður en svo
nýtt af nálinni því vitað er um víngerð allt aftur
til steinaldar en aðferðirnar hafa þó þróast mik-
ið í tímans rás. Hér á landi eru fersk vínber iðu-
lega höfð með ostum. Í þeim löndum sem berin
gróa mun þó vera algengara að hafa vínið sem úr
berjunum er gert með ostunum. ■
Nautasteik valin og elduð:
Fína fitan leysist
upp við steikingu
Dagskrá vín-
sýningarinnar í dag
Frontera
Cabernet Sauvignon
Vin.is kynnir úrvalportvína á vínsýning-
unni á Hótel Loftleiðum.
Samspil portvíns, gorg-
onzola, þurrkaðra ávaxta
og súkkulaðis verður
sérstaklega kynnt. Milli
kl. 15 og 16 í dag verður
áherslan á ostana og
milli 16 og 17 verður
Hafliði Ragnarsson
súkkulaðimeistari á
staðnum og kynnir sam-
spil súkkulaðis og port-
víns. Þá hefur Vin.is gef-
ið út sérstakt rit um
portvín þar sem eigin-
leikum þess er lýst
ásamt upplýsingum um
gerð portvína, geymslu-
möguleika þeirra og
fleira.
Ferreira Tawny er blanda úr víni sem hefur þroskast á eik í
2-5 ár. Vínið hefur ljósan lit og ferskan ilm og undirliggjandi
vott af oxun af geymslu á eikartunnum sem gefur víninu gott
jafnvægi milli tanníns og sætu. Frábær drykkur fyrir eða eftir
máltíð. Passar einnig vel með þurrkuðum ávöxtum, svo sem
ferskjum, sem og mjúkum ostum og súkkulaði.
Verð í Vínbúðum 2.190 kr. ■
Ferreira
Tawny