Fréttablaðið - 25.01.2004, Page 41
HANDBOLTI Það er að duga eða
drepast fyrir íslenska hand-
boltalandsliðið í dag er það mætir
Tékkum í lokaleik sínum í C-riðli
EM. Sigur tryggir liðinu farseðil í
milliriðil sem fram fer í Ljubljana
en tap þýðir flugmiði heim á
mánudag. Það er því mikið undir
og einnig hjá Tékkum því þeir eru
einnig taplausir og þurfa því
nauðsynlega sigur eins og Íslend-
ingar.
Tékkar eru með mjög ungt og
óreynt lið en leikjahæsti leikmað-
ur liðsins er hornamaðurinn Jan
Filip, sem spilar með Nordhorn í
Þýskalandi, sem hefur leikið 86
landsleiki. Flestir leikmenn eru
tiltölulega nýskriðnir yfir tvítugt
og hafa litla sem enga reynslu af
leikjum á stórmótum.
Filip er þeirra þekktasti leik-
maður en hann klárar ekki leiki
upp á eigin spýtur í horninu.
Helsta skytta Tékka er aftur á
móti Daniel Kubes, 25 ára strákur
sem er tæpir tveir metrar á hæð.
Hann leikur með sænska liðinu
Drott og er mjög ógnandi ef hann
nær sér á strik. Einnig þarf að
hafa góðar gætur á Filip Jicha,
sem er óhræddur við að skjóta á
markið sem og Alexandr Radcen-
ko.
Besti leikmaður liðsins er þó
tvímælalaust markvörðurinn
Martin Galia. Hann hefur verið að
fara á kostum með liðinu og er
gríðarlega öflugur, sérstaklega í
dauðafærunum, sem eru nú ekki
jákvæðar fréttir fyrir íslenska
liðið. Hann lifir sig þar að auki
mikið inn í leikinn og hann má
ekki skjóta í stuð. Þá er fjandinn
laus.
Varnarleikur liðsins er mjög
skrautlegur en þeir spila agress-
íva 3-2-1 vörn langt úti á vellinum.
Leikmenn liðsins vinna gríðarlega
vel fyrir hvern annann og virðast
hafa mikið úthald. Íslenska liðið
verður því að sýna mikla skyn-
semi í sínum sóknarleik því ef það
tapar boltanum eru Tékkar fljótir
að refsa með hraðaupphlaupi,
nokkuð sem þeir hafa gert tölu-
vert af í Slóveníu. Sóknarleikur-
inn er á löngum köflum mjög til-
viljanakenndur og þeir fá venju-
lega á sig mikið af mörkum úr
hraðaupphlaupum. Það þarf að
nýta sér enda hefur það oft verið
sterkasta hlið íslenska liðsins.
Á móti kemur að liðið er afar
baráttuglatt og hættir ekki fyrr
en lokaflautið glymur. Þeir eru
drifnir áfram af þjálfara sínum,
Rastislav Trtik, sem er mjög lif-
andi þjálfari og einnig vekur útlit-
ið hjá honum áhuga en hann er
ekki mikið fyrir að skerða hár sitt
og skegg. Er nokkurs konar nú-
tímaútgáfa af Róbinson Krúsó.
Tékkar hafa sýnt á sér tvær hlið-
ar á þessu móti. Þeir voru afar
slakir gegn Ungverjum en voru
virkilega beittir gegn heima-
mönnum og hefðu hæglega getað
farið með sigur af hólmi í þeim
leik.
Íslenska liðið ætti að öllu jöfnu
að leggja þetta lið að velli með
sínum venjulega leik enda erum
við með sterkari menn í nánast
öllum stöðum og höfum þar að
auki þá reynslu sem Tékkana
skortir. Sigur er krafa sem við
hljótum að gera til strákanna í
leiknum og ég veit að þeir gera
sömu kröfu til sjálfs síns. ■
41SUNNUDAGUR 25. janúar 2004
Celje, Slóveníu
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
■ skrifar um EM í handbolta.
Að duga eða drepast
Íslenska landsliðið mætir Tékkum í dag í úrslitaleik um sæti í milliriðli.
FILIP JICHA Á FLEYGIFERÐ
Tékkneska skyttan Filip Jicha reynir hér að brjótast framhjá Slóvenanum Ales Pajovic í leik þjóðanna á föstudagskvöldið.
Hörkuspenna í leik Dana og Króata í B-riðli EM í gær:
Heimsmeistarar með fullt hús stiga
HANDBOLTI Heimsmeistarar Króata
eru með fullt hús stiga í B-riðli
Evrópumótsins í handknattleik eft-
ir sigur á Dönum, 26-25, í hörkuleik
í Ljubljana í gærkvöld.
Danir höfðu frumkvæðið fram-
an af leik og leiddu 12-8 þegar rúm-
ar 22 mínútur voru liðnar af leikn-
um. Þá tóku Króatar sig til og skor-
uðu sex mörk fram að hálfleik og
leiddu 14-12 í hálfleik. Þeir skoruðu
síðan tvö fyrstu mörk síðari hálf-
leiks og höfðu þriggja til fjögurra
marka forystu allt þar til fimm
mínútur voru til leiksloka. Þá skor-
uðu Danir þrjú mörk í röð og jöfn-
uðu metin, 25-25. Það nægði þó
ekki því að Petar Metlicic skoraði
sigurmark Króata þegar ellefu sek-
úndur voru eftir. Blazenko
Lackovic var markahæstur hjá
Króötum með sex mörk, Slavko
Goluza og áðurnefndur Metlicic
skoruðu fjögur mörk hvor, Niksa
Kaleb, Ivano Balic og Igor Vori
skoruðu þrjú mörk hver og Renato
Sulic, Mirza Dzomba og Tonci
Valcic skoruðu eitt mark hver.
Vlado Sola varði þrettán skot í
marki Króata og Valter Matosevic
varði eitt. Sören Stryger var
markahæstur hjá Dönum með sjö
mörk, Michael Knudsen skoraði
fjögur mörk, Kasper Nielsen,
Klavs Bruun Jörgensen, Joachim
Boldsen og Lars Krogh Jeppesen
skoruðu þrjú mörk hver og Lars
Christiansen og Klaus Jakobsen
skoruðu eitt mark hvor. Michael
Bruun varði sjö skot í marki Dana
og Kasper Hvidt varði sex.
Króatar hafa sýnt mikla seiglu í
báðum leikjum sínum en þeir hafa
lent langt undir í fyrri
hálfleikjunum bæði gegn Spáni á
fimmtudaginn og Dönum í gær.
Þeir unnu upp fimm mark forystu
Spánverja, 10-5, og fimm marka
forystu Dana, 11-6. Það er engin
tilviljun að þetta lið er núverandi
heimsmeistari en liðið er til alls
líklegt á þesu Evrópumóti, hvatt
áfram af fjölmörgum löndum
sínum. ■
EKKERT PLÁSS
Danska skyttan Lars Krogh Jeppesen reynir
hér að koma boltanum framhjá Króatan-
um Denis Spoljaric í leik þjóðanna á EM í
handknattleik í Slóveníu í gær.
HANDBOLTI Rússar unnu Úkraínu-
menn 29-27 á öðrum leikdegi Evr-
ópumótsins í handbolta. Sigurinn
var mun öruggari en tölurnar
gefa til kynna því Rússarnir
leiddu allan tímann, mest með
átta mörkum þegar rúmar tuttugu
mínútur voru liðnar af leiknum.
Rússarnir náðu frumkvæðinu
strax í byrjun leiks og leiddu 8-3
eftir þrettán mínútna leik og 14-6
þegar rúmar átta mínútur voru til
leikhlés. Denis Krivoshlykov var
atkvæðamestur á þessum kafla og
skoraði fimm af mörkum Rússa.
Úkraínumenn náðu að laga stöð-
una fyrir hlé og minnkaði Andriy
Vasyuk muninn í 17-12 með loka-
marki fyrri hálfleiks.
Úkraínumenn hófu seinni hálf-
leikinn vel og minnkuðu muninn í
21-18 á fyrstu tíu mínútunum en
þá var Vladimir Maximov, þjálf-
ara Rússa, nóg boðið og tók leik-
hlé. Reiðilesturinn virkaði og
Rússar leiddu 28-23 þegar tíu mín-
útur voru eftir. Úkraínumenn lög-
uðu stöðuna á lokakaflanum en
voru aldrei nálægt því að jafna.
Alexander Tuchkin skoraði sjö
mörk fyrir Rússa, úr fjórtán skot-
um, Denis Krivoshlykov skoraði
fimm, Vitaly Ivanov og Alexey
Rastvortsev þrjú hvor, Eduard
Koksharov, Pavel Bashikin, Alex-
ander Gorbatikov og Alexey
Kamanin tvö mörk hver og Vi-
acheslav Gorpishin, Mikhail Chip-
urin og Artem Gritsenko eitt hver.
Alexei Kostygov varði tíu skot en
Andrej Lavrov aðeins þrjú.
Yuriy Kostetskyi skoraði sex
mörk fyrir Úkraínumenn, Sergiy
Shelmenko fimm, Bogdan Koltsov
og Oleg Kumogorodsky fjögur
hvor, Yuriy Petrenko og Andriy
Vasyuk þrjú hvor og Vitaliy Nat
og Yuriy Mankovsky eitt hvor.
Leikur Rússa og Úkraínumanna
var viðureign tveggja fyrrum
samherja. Vladimir Maximov,
þjálfari Rússa, og Sergej Kus-
hniriuk, þjálfari Úkraínumanna,
léku báðir með Ólympíumeistur-
um Sovétmanna árin 1976 og 1980.
Eftir þennan sigur eru Rússar
öruggir áfram í milliriðill ásamt
Svíum en Úkraínumenn spila
gegn Svisslendingum í dag um
þriðja sætið í riðlinum. ■
A-riðill Evrópumótsins í handkanttleik í Velenje í Slóveníu:
Öruggur sigur Rússa á Úkraínumönnum
MÖRKIN HJÁ ÍSLANDI Á EM
Ólafur Stefánsson 14/6
Guðjón Valur Sigurðsson 11
Jaliesky Garcia Padron 9
Snorri Steinn Guðjónsson 9
Rúnar Sigtryggsson 5
Sigfús Sigurðsson 4
Einar Örn Jónsson 4
Patrekur Jóhannesson 1
Tölfræði Íslands á EM í
Slóveníu:
Átta menn
hafa skorað
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson
hefur skorað flest mörk íslenska
liðsins í fyrstu tveimur leikjum
liðsins á Evrópumótinu en hann
hefur skorað samtals 14 mörk í
tveimur leikjum. Guðjón Valur
Sigurðsson kemur honum næstur
með ellefu mörk og nýliðarnir
Jaliesky Garcia og Snorri Steinn
Guðjónsson hafa skorað 9 mörk
hvor.
Alls hafa átta leikmenn í ís-
lenska liðinu komist á blað en þeir
Dagur Sigurðsson, Róbert
Sighvatsson og Ásgeir Örn
Hallgrímsson eru þeir einu sem
hafa ekki skorað af þeim ellefu
útileikmönnum sem hafa fengið
að spreyta sig til þessa í
Evrópukeppninn í Slóveníu. ■
LEIKTÍMI STRÁKANNA
Guðjón Valur Sigurðsson 2:00:00
Einar Örn Jónsson 1:59:28
Ólafur Stefánsson 1:52:30
Snorri Steinn Guðjónsson 1:21:50
Guðmundur Hrafnkelsson 1:17:42
Sigfús Sigurðsson 1:16:08
Jaliesky Garcia Padron 0:59:40
Rúnar Sigtryggsson 0:54:57
Patrekur Jóhannesson 0:50:45
Reynir Þór Reynisson 0:42:18
Dagur Sigurðsson 0:26:29
Róbert Sighvatsson 0:17:00
Ásgeir Örn Hallgrímsson 0:01:13
Ragnar Óskarsson 0:00:00
Tölfræði Íslands á EM í
Slóveníu:
Guðjón allan
tímann inná
HANDBOLTI Guðjón Valur
Sigurðsson er eini leikmaður
íslenska liðsins sem hefur spilað
allan tímann en alls hefur
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari leyft þrettán mönnum
að spreyta sig. Ragnar Óskarsson
er sá eini sem hefur verið í hóp-
num og ekki fengið að fara inn á
en Róbert Gunnarsson hefur
verið fyrir utan hópinn í báðum
leikjunum og þeir Gylfi Gylfason
og Gunnar Berg Viktorsson hafa
ekki verið skráð enn til leiks.
Það eru hornamennirnir sem
spila mest því Einar Örn Jónsson
hefur aðeins fengið að hvíla sig í
32 sekúndur. Ólafur Stefánsson er
síðan þriðji leikmaður íslenska
liðsins sem hefur fengið litla sem
enga hvíld en Ólafur hefur aðeins
hvílt í 7 mínútur og 30 sekúndur.
Fyrirliðinn Dagur Sigurðsson
hefur aðeins spilað í 26 mínútur
og 29 sekúndur og á þeim tíma
hefur hann misnotað öll 9 skotin
sem hann hefur tekið. ■
FLESTAR STOÐSENDINGAR Á
EVRÓPUMÓTINU Í SLÓVENÍU
Renato Vugrinec, Slóveníu 23
Volker Zerbe, Þýskalandi 14
Markus Baur, Þýskalandi 14
Grzegorz Tkaczyk, Póllandi 14
Yuriy Kostetskiy, Úkraínu 14
Ólafur Stefánsson, Íslandi 12
Guilleme Gille, Frakklandi 12
Marcin Lijewski, Póllandi 12