Fréttablaðið - 25.01.2004, Síða 46
Ég er reiður 46 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Vikan verður ansi annasömþví nú styttist óðum í frum-
sýningu á 5stelpur.com,“ segir
Unnur Ösp Stefánsdóttir. Hún,
Edda Björgvins, Björk Jakobs-
dóttir, Guðrún Ásmundsdóttir
og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
verða stelpurnar fimm sem
koma saman í Austurbæ í nokk-
uð nýstárlegri sýningu.
„Í starfi leikara koma annirn-
ar í miklum bylgjum. Við frum-
sýnum ekki fyrr en 6. febrúar,
en við erum að byrja að renna
og prófa á áhorfendum í vik-
unni. Þetta verður endalaust
grín og skemmtun, þar sem við
gerum grín að lífinu, okkur
sjálfum, strákunum og öllu
saman. Svo er mér sá heiður
veittur að leika með fremstu
gamanleikkonum landsins.“
Þetta er ekki eina verkefni Unn-
ar þessa dagana, því þar fyrir
utan er hún að undirbúa upp-
setningu á Hárinu sem verður
undir leikstjórn Rúnars Freys
Gíslasonar. „Við erum að undir-
búa prufur sem verða í marslok
og það er rosalega mikil vinna í
undirbúningnum. Þetta á að
verða stór og metnaðarfull sýn-
ing í tilefni þess að það eru tíu
ár liðin síðan Baltasar setti upp
Hárið. Þetta er svo rosaleg sýn-
ing og meiriháttar tónlist að það
er ekki hægt annað en að bjóða
nýrri kynslóð upp á að sjá þetta
verk.“
Auk alls þess er Unnur að
gera upp baðherbergið sitt og
svona hitt og þetta og því verða
fáar stundir á milli stríða hjá
henni í vikunni. ■
Vikan sem verður
UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR
■ Undirbýr frumsýningu á 5stelpur.com
Eins og þegar hefur veriðgreint frá mætti Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, sem
tilnefndur var til Íslensku bók-
menntaverðlaun-
ana fyrir bók sína
Halldór, ekki til
afhendingar verð-
launanna á Bessa-
stöðum á fimmtu-
daginn. Fjarvera
Hannesar var þó
fullkomlega eðlileg en hann sat
fund bankaráðs Seðlabankans á
meðan Ólafur Ragnar Grímsson
afhenti Ólafi Gunnarssyni og
Guðjóni Friðrikssyni verðlaunin.
Hannes hafði tilkynnt forföll sín
fyrir fram og þannig falla allar
samsæriskenningar um að hann
hafi ekki séð ástæðu til að mæta
um sjálfar sig. Þess má einnig
geta að einn dómnefndarmeðlim-
urinn, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, hefði átt að sitja banka-
ráðsfundinn með Hannesi ef hún
væri ekki á skólabekk á
Englandi en þessir pólitísku and-
stæðingar eiga báðir sæti í
seðlabankaráði.
Guðjón Friðriksson og HannesHólmsteinn áttu báðir bækur
í flokki fræðirita og bóka al-
menns efnis og öttu því kappi um
verðlaunin sem Guðjón hlaut nú í
þriðja sinn. Verk Guðjóns um
frelsishetjuna Jón Sigurðsson
þykir fyllilega standa undir verð-
laununum en þar
sem öll fræði-
bókaumræða hef-
ur mengast af
pólitík undanfarið
ræða menn það nú
sín á milli að það
hafi ekki spillt
fyrir Guðjóni að hafa Ingibjörgu
Sólrúnu í lokadómnefndinni en
Guðjón var yfirlýstur stuðnings-
maður borgarstjórans fyrrver-
andi auk þess sem eiginkona
hans, Hildur Kjartansdóttir,
sinnti veislustjórn í Höfða og öðr-
um verkefnum í borgarstjóratíð
Ingibjargar.
Ung ráð
Dorrit
Moussaieff?
Mist Hálfdán-
ardóttir
15 ára, nem-
andi Haga-
skóla
Mér líst bara mjögvel á hana. Hún
er alltaf ofboðslega fín
og sæt. Ég held að það
sé bara rosalega gott
fyrir Ólaf að hafa
hana. Ég held að hún
hafi engin áhrif á
komandi forseta-
kosningar.“
Sindri Eldon
18 ára, nemandi Borg-
arholtsskóla
Mér finnst hún frábær. Hress og við-kunnanleg. Mér finnst við líka
bara eiga ofboðs-
lega hressan for-
seta að vera með
svona útlending.
Það er gott dæmi
um það að ástin
sigrar allar vega-
lengdir, þó höf
skilji á milli. Hún
gerir það fyrir mig að vilja kjósa Ólaf.
Mér finnst bæði hann og konan hans
hafa góða áru.“
Agnar Burgess
20 ára, nemandi í MR
Mér finnst hún bara fín kona. Húnkryddar þetta allt. Það er ekkert
slæmt um hana að segja. Hún virðist
vera alvöru og kunna að hafa gaman
af lífinu. Það er fátt annað hægt að
segja um hana.
Það er mismun-
andi hvað fólk
horfir á. Hún hef-
ur engan veginn
slæm áhrif á mig
varðandi forseta-
kosningarnar. Ef
hún hefur ein-
hver áhrif þá eru
þau bara jákvæð.
Það er einhver Vigdísar Finnbogadóttur
fílingur yfir henni. Hún vill greinilega
vel. Svo er ekki verra að hún þekki
Sean Connery.“
Síðustu vikur í lífi Heru Hjart-ardóttur hafa án efa verið eft-
irminnilegar. Hún braust yfir
gullmúrinn í plötusölu fyrir jól
með plötuna Hafið þennan dag
eftir stranga plötukynningu og er
nýkomin heim eftir vel heppnaða
tónleika á tónleikahátíð í
Hollandi.
Það er því vel skiljanlegt að
hún njóti þess þessa dagana að
slappa af og sofa út. Kannski er
bara vissara að hafa það náðugt í
rúminu, því hún er ekkert svo
viss um hvað hún eigi að gera við
frítíma sinn.
„Ég á í miklum vandræðum að
finna mér eitthvað að gera á frí-
dögum hérna á Íslandi,“ viður-
kennir Hera. „Það er svo kalt úti.
Ég keypti hjólaskauta en ég get
ekki notað þá því það er of mikill
snjór. Ég vakna eiginlega bara til
þess að gera ekki neitt. Sef út,
vakna seint og spila á gítar. Það
er erfitt að finna sér eitthvað að
gera á daginn því enginn annar
er í fríi.“
Sköpunarkraftur Heru virðist
vera óþrjótandi
og ef hún er ekki
að semja lög á
gítarinn sinn á
hún það til að
prjóna eða perla.
„Yfirleitt þegar
ég er búin að
gera eitthvað þá
gef ég það, þó að
ég ætli alltaf að
eiga það sem ég geri sjálf. Ég
datt út í það að gera voðalega
mikið af skartgripum á tímabili
og ég held að ég eigi bara eitt par
af eyrnalokkum eftir.“
Hera er búin með allar spenn-
andi myndirnar á myndbanda-
leigunni og er greinilega svolítið
spennt fyr-
ir því að
fara aftur
til Nýja-
S j á l a n d s .
„Þar er al-
veg hell-
ingur að
gera,“ seg-
ir hún og
það lifnar
yfir henni. „Þá vaknar maður og
fer á ströndina, kaupir ávexti,
býr til ávaxtasalat og borðar úti í
garði. Svo tínir maður egg úr
hænsnahúsinu og sýður það eða
eitthvað. Þar fer ég frekar út í
göngutúr þegar allt þetta græna
er í kring og heitt úti. Þetta gráa
veður fer svolítið í mig. Mér er
alltaf kalt.“
Heru gekk vel að spila á tón-
leikahátíðinni í Groningen í
Hollandi, og í Belgíu fyrir ís-
lenska sendiráðið. Hún verður
hér á landi fram í mars og þá
hefst tónleikaferðin fyrir alvöru;
fjórar dagsetningar á Íslandi,
fjórar á Ítalíu, fjórar í Englandi
og ein í Glasgow. „Svo kem ég
aftur til Íslands í þrjár nætur og
flýg svo heim til Nýja-Sjálands,“
segir Hera að lokum. ■
HERA
„Mér finnst voðalega gott að liggja í rólegheitunum og fara í heitan pott og svona,“ segir
Hera.
Frídagurinn
HERA
■ Er að hvíla sig eftir heljarinnar törn. Á
líka í stökustu vandræðum með að finna
sér eitthvað að gera hér á klakanum.
Sefur út, spilar á gítar og prjónar
Endalaust grín og skemmtun
UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR
Var í hlutverki Krissu í Grease. Núna er
hún að æfa 5stelpur.com, undirbúa Hárið
og gera upp baðherbergið hjá sér.
Heimildarmyndin Heimur far-fuglanna var fyrsta mynd
Frönsku kvikmyndahátíðarinnar í
Háskólabíói á föstudaginn. Leik-
stjóri myndarinnar er Jacques
Perrin. Það kannast kannski fáir
við nafnið en hann er þó fjölda ís-
lenskra bíógesta að góðu kunnur
þar sem hann lék Toto litla á full-
orðinsárum í Cinema Paradiso
sem var á sínum tíma sýnd í Há-
skólabíói í rúmt ár.
Það var nú þannig að ég var aðendurnýja skírteinið mitt, en ég
er meindýraeyðir,“ segir Rafn Har-
aldsson á Bræðrabóli í Ölfusi, sem
veit ekki betur en að hann hafi op-
inbert leyfi til að eyða framsóknar-
mönnum.
„Þetta er í það minnsta góð saga
en síðast þegar ég endurnýjaði
fyllti ég út þar til gert eyðublað og
gaf upp hvaða meindýrum ég ætl-
aði að eyða en það eru fyrst og
fremst mýs og skordýr. Svo var
þarna auð lína þar sem maður gat
bætt við fleiri tegundum og ég
skráði framsóknarmenn þar. Þegar
ég var að labba út var gargað á eft-
ir mér að þetta mætti ekki en ég
sagði þeim að láta þetta fara svona.
Skírteinið skilaði sér skömmu síðar,
þannig að umsóknin virðist hafa
verið samþykkt athugasemda-
laust.“
Rafn segist helst þurfa að kljást
við mýs en neitar því ekki að sér
hafi borist nokkrar fyrirspurnir
vegna framsóknarmanna. „Þetta
hefur spurst út enda hef ég gaman
að því að segja frá þessu og krydda
söguna með þessu. Það er auðvitað
mikið af framsóknarmönum hérna
á svæðinu, meira að segja einn
aðalhöfuðpaurinn,“ segir mein-
dýraeyðirinn sem má uppræta
framsóknarmenn, rétt eins og
James Bond má eyða hverjum sem
er. Framsóknarmenn í Ölfusinu
geta þó andað rólega þar sem Rafn
hyggst ekki taka að sér verkefni
tengd þeim. ■
Meindýr
■ Meindýraeyðir í Ölfusi virðist hafa
lögverndað leyfi til að uppræta fram-
sóknarmenn á Suðurlandi. Honum líkar
tilhugsunin svo sem ekkert illa en lætur
þá þó óáreitta.
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Höfuðpáfi Framsóknarflokksins á Suðurlandi þarf ekkert að óttast þó að meindýraeyðir
á svæðinu telji sig hafa heimild til að uppræta
Má eyða framsóknarmönnum
Fréttiraf fólki
Fréttiraf fólki
„Ég er bara ekkert reiður en það
má segja að ég hafi verið að fá
nýja sýn á sumt fólk á síðustu
vikum,“ segir Pétur Blöndal al-
þingismaður, sem hefur verið í
eldlínunni vegna málefna Spari-
sjóðanna.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ingiríður Alexandra.
24. janúar 1989.
Tindastóll.