Tíminn - 04.12.1971, Side 5
LAUGARDADGUR 4. desember 1971
TÍMINN
JimmmmmmíLimmmmmm,mmmmm’
IMORGUN
mmi
i
i
i
(
i
Eklnr hafði komi'ð upp í far-
þcgaskrpinu og fólk hljóp í ör-
væntingu að björgunarbátunum,
þar sem skipstjórinn stóð og
stjómaði umferðinni. Skelfdur
Fransmaður reyndi að klifra um
borð í eiirn bátinn, en skip-
stjórinn kallaði til hans:
— Biddu rólegur, við tökum
konurnar fyrst.
— Já, en höfum við tíma til
þess? spitrði Frakkinn.
— tú lest liklega lexíurnar
þínar Péíer?
— Já, ég les allt sem ég get,
swascaði Pétur.
— Mér finnst, að Þú ættir
hekhir að lesa það, sem þú
getur ekki.
— Hvað er svona óvenjulegt
við að fara út með hundinn?
i
Ferðamaður er maður, sem
i ekur þúsundir kílómetra til að
láta taka mynd af sér við hlið-
i ina á bílnum sínum.
i
í
— Vízt fórum við í hnatt-
reisu með eina tösku. En liún
var full af ferðatékkum.
— Þjónn, það er alls ekkert
bragð af þessari súpu.
— Nei, ég veit það, en kokk-
urinn stakk af og tók hænuna
með sér.
Uppfinningamaður nokkur
hafði fundið upp nýja tegund
af fuglahræðu og var nú að
sækja um einkaleyfi á henni.
— Já, sagði skrifstofumað-
urinn, — en það er dálítið erf-
itt svona um miðjan vetur að
sanna, hvort hún fælir fuglana
raunveruléga burt af ökrunum.
— Nei, ég reyndi hana á
mínum akri í sumar, og það er
alveg öruggt.
— Jæja, dugði hún vel.
— Já, tveir þrestir urðu
meira að segja svo hræddir, að
þeir skiluðu aftur fræjunum,
sem þeir voru búnir að tína.
I • »
Ungur piltur með sítt hár
kom inn á rakarastofu og sett-
ist í einn af biðstólunum. í
hvert sinn, sem röðin kom að
honum, hleypti hann öðrum
fram fyrir sig. Þegar nokkur
tími var liðinn, fór hárskerinn
til piltsins og spurði, hvort þeir
ættu ekki a'ð skella sér í klipp-
inguna.
— Nei, ég er bara að fela
mig fyrir pabba. Honum dett-
ur aldrei í hug að leita hérna.
DEIMNI
Nú er þér óhætt að setja
tunguna upp í Þig aftur. Þetta
er skoðun, en ekki skoðana-
DÆMALAUSlkönnun
Þegar Jackie Kennedy giftist
Ari Onassis gerðu þau með sér
| samning um hitt og þetta varð-
| andj sambúð þeirra. Þar á með-
| al var grein 19 í samningnum,
| sem hljóðaði upp á, að Jackie
i þyrfti ekki að sofa í sama her-
: bergi og maður hennar. Það var
I lausmáll starfsmaður um borð
I í lystisnekkju Onassis, Christ-
1 inu, sem hefur sagt frá 19.
| grein samningsins. Jackie hef-
ur ekki geta'ð lokað munninum
á manninum, og situr nú og
bítur á jaxlinn, á meðan hann
segir enska sunnudagsblaðinu
The People frá hinu og þessu,
sem gerðist um borð í snekkj-
unni. ,,Það var mikið óveður á
Eyjahafinu, og Jackie lá alein
í káetunni sinni og skalf af
hræðslu. Klukkan var orðin
tvö, þegar hún hélt ekki út
óttann og skelfinguna lengur.
Hún ákvað að brjóta 19. grein
giftingarsáttmálans, og fór í
morgunsloppinn sinn, þaut nið-
ur stigann og inn í káetu Onass-
is, og bað hann að koma og
vera hjá sér. Það gerði hann,
að sögn sjómannsins. Smátt og
smátt lægði stonninn, en Jackie
var hrædd um, að veðrið færi
a@ versna á ný, og bað Onassis
að halda kyrru fyrir, og þar
með var 19. greinin fokin út í
veður og vind.
Christian Karafakis, 1 jónn
Jackiear hefur sagt frá ýmsu
fleiru. Hann segir, að frú
Onassis fari aldrei neitt án
þess að taka mcð sér silkilökin
sín, samtals tólf ganga á rúm.
Já, þetta eru ekki nein venju-
leg lök, heldur rósótt silkilök
• _________________________________
Þessar dömur sýndu | nýj-
ustu tízku á sýningu frá Frakk-
landi, sem haldin var í Lóndon
— ★-* —
á dögunum. Vanti frurnar smð
á jólakjólinn, eða nýja kápu, er
það hér að fá, Því þetta er það,
— ★ —- ★ —
og sængurver, handsaumuð og
útsaumuð, og hafa nunnur unn-
ið þau í ítölsku klaustri. Hún
sefur aldrei tvisvar í röð við
sömu sængurfötin, heldur skipt-
ir eftir hverja nótt, og það þarf
ekki einu sinni heila nótt til.
Það nægir, að hún leggi sig
stundarkorn miðdegis, hún læt-
ur skipta um á rúminu fyrir
kvöldið. En starfsfólkið leggur
ekki mesta vinnu í að skipta um
á rúminu, heldur í að Þvo
sængurfötin. Þau má ekki þvo
á veniulegan hátt, heldur verð-
ur að nota amerískan þvotta-
lög, sem muna verður eítir að
taka með, hvert svo sem frúin
fer. Það ku taka þrjá tíma dag
hvern að halda sængurfatnaði
Jackiear í því formi, sem hún
vill hafa þau, segir Karafakis.
— ★ — ★ —
Kóngafólk fylgist ekki alltaf
vel með því, sem um það / er
sagt, þar sem það er ekki í
nánu sambandi við umheiminn.
Sem dæmi um það segir eitt
sænsku vikublaðanna, að Svía-
konungur hafi ekki hugmynd
um það, að Christina prinsessa
hafi í lengri tíma verið í slag-
togi með honum Tosse Magnús-
son, og sé jafnvel trúlofuð hon-
um. Enginn hefur nefnt þetta
við konunginn, og hann les
víst ekki kjaftadálka vikublað-
anna, og því hefur hann ekkert
um málið heyrt-
Elisabet Englandsdrottning,
þjóðhöfðingi yfir þjóð, þar sem
yfdr ein milljón manna er at-
vinnulaus, hefur nýlega sjálf
fengið svolítinn glaðning frá
stjórnvöldum landsins. Skatt-
frjáls laun hennar hafa verið
hækkuð úr rúmum 100 milljón- ,
um króna í um 200 milljónir. ,
Þar við bætist, að skattfrjáisaar ,
eignir drottningarinnar og kon- ,
ungsfjölskyldunnar nema um
9000 milljónum króna.
-★-★-
Flugfreyjurnar hjá East Afri
can Aii-ways eru búnar að fá
nýja búninga, sem eiga að
halda á þeim hita, þegar þær
fljúga í norður átt. Flugfreyj-
urnar háfa fengið létta og
þunna kjóla, sem hæfa vel
veðráttuni í þeirra eigin heima
landi, en einnig hafa þær svo
fengiö hlýja ullarfrakka, fín-
ustu skinnhanzka og skinnstíg-
vél, og að lokum hatta úr
leopardaskinn. Reyndar hafa
dýraverndarfélög gripið inn í
og orðið þess valdandi, að
ákveðið var að hattarnir verða
úr gerviskinni, en ekki ekta
leópardaskinni. Leópardarnir
þurfa því ekki að óttast um líf
sitt af þessum sökum í fram-
tíðinni.
— ★ — ★ —
sem þykir finast í augnablikmu,
að sögn þeirra í London.
— ★ — ★ —