Tíminn - 04.12.1971, Side 13
LA®GAKÐABGUR 4. desember 1971
síWÓTTSR
mÁ
SÞROTTIR
m
„\l.v - • ]*>
-Vr'*.-*/--- ■■■■;--. ■■ - ■
Hvað fær FH næst?
Evrópukeppninnar í dag. — „Vildi helzt fá Hellas
mótherja/1 segir fyrirliði FH, Birgir Björnsson
Dregið í 8-liSa úrslitum
frá Svíþjóð, sem næsta
EfeaSa US fær FH sem mót-
hei’ja í 8 líða úrslitum Evrópu-
keppninnar f handknattleik? —
/ Við-'því fæst svar í da.g, því að þá
ver.Sur dregið um hvaða lið
skuli mætast í þessari umferð
í aðalsÉöðvum vestur-þýzka hand-
knattleikssanihanösins í Dort-
mund. En Vestur-Þýzkaland sér
um Evrópukeppnina að þessu
simri.
Það ver.3ur spennandi að vita
hvaða lið FH fær. Undir því er
að sjálfsögðu mikið komið ef
BH á að komast í undanúrslit
keppninnar. Möguleikarnir hjá
FH á að fá lið, sem er svipað að
styrkleika eru miklir, þvi að af
liðunum 7 sem FH getur dregizt
gegn, eru 3 frá hinum Norður
löndunum, og á þeim og FH er
lítill munur. — þ.e.a.s. ef FH-
ingum tekst sæmilega upp.
Aftur á móti er hætt við að
möguleikarnir minnki til að kom
ast í undanúrslit keppninnar, ef
FH dregst á móti einhverju hinna
liðanna, því þau eru að flestra
áliti talin sterkari en Norður-
landaliðin.
Við skulum nú sjá hvaða 8 lið
það eru sem enn eru í keppn-
inni:
Hellas, Svíþjóð
Oppsal, Noregi
FH, íslandi
Efterslægten, Danmörk
Partisan, Júgóslavíu
Presov, Tékkóslavíu
1. mafa, Rússlandi
Gummersbach, V-Þýzkalandi.
Við höfðum í gær tal af Birgi
Björnssyni, fyrirliða FH, og
Birgir Björnsson, fyrirliSi FH —
Hann vill helzt fá Hellas frá SviþjóS,
sem mótherja í naestu umferð.
spurðum hann um, hvaða lið
hann vildi helst fá í næstu um-
ferð.
„Ég vildi helst fá Hellas frá
Svíþjóð“ sagði hann. „Það yrði
einna ódýrast fyrir okkur, og
Hellas ættum við að geta sigrað.“
Það eru fleiri en Birgir seim
vilja fá Hellas, sem mótherja. í
viðtali í norskum blöðum sagði
liðsstjóri Oppsal, Björn Hvidsten,
að hann vildi helzt fá Hellas, sem
mótherja í næstu umferð. Hann
gaf upp sömu ástæðu og Birgir
Björnsson, fyrir því, enda mun
Oppsal vera illa á vegi statt fjár
hagslega eftir þátttöku sína í
tveim undangengnum umferðum
keppninnar, en liðið hefur þurft
að ferðast mikið og dýrt í þeim
báðum.
f fyrrakvöld náðum við tali af
fyrirliða Partisan Bjelovar, Hor-
vat, en hann er jafnframt fyrir
liSi júgóslavneska landsliðsins,
sem hér lék í vikunni. Horvat,
sagði að hann vildi helst fá FH,
sem mótherja. Það væri alltaf
gaman að koma til íslands, og
svo væri nú imikill möguleiki fyr
ir sitt Iið að komast áfram ef
það fengi FH sem mótherja, a.
m. k. meiri en ef þeir fengju
eitthvert hinna liðanna. — klp —
Frjálsíþróttaafrekin 1971:
Mjög göður toppur
í 100 til 800 m.
Þegar litið er á afrekaskrá árs-
ins í frjálsum íþróttum kemur í
ljós, að afrek beztu manna eru
jafnbetri en árið áður og breiddin
er meiri í ýmsum greinum en und
anfarin ár, sérstaklega í hlaupa-
greinum, og er það vel.
Við ætlum nú að birta beztu af-
rek sl. sumars og í dag koma
fjórar greinar, 100, 200, 400 og
800 m.
Bjami Stefánsson, KR, ber höf-
uð og herðar yfir keppinauta sína
í þremur fyrstnefndu greinunum
og setti met í 400 m. eins og
kunnugt er. Hann er líklegur til
stórafreka á næsta ári, sérstak-
lega í 400 m. Ekki kæmi á óvart
þó að hann hlypi á 46.5 sek. eða
betra. Af ungu mönnunum er Vil-
mundur Vilhjálmsson, KR, efnileg
astur og hann ætti að hlaupa 400
m. á betri tíma en 50 sek., jafn-
vel 49.0 sek. Meðaltal 10 beztu í
400 m. er það bezta sem náðst hef
ur frá upphafi, eða 50.68 sek.
Þorsteinn Þorsteinsson, KR, er
langbeztur ,í 800 m. en þrír aðrir
hlupu á betri tíma en 2 mín. Þeir
Ágúst Ásgeirsson, ÍR, og Sigvaldi
Júlíusson, UMSE, eru í öðru og
þriðja sæti. Sá fyrrnefndi bætti
árangur sinn verulega frá árinu
áður, en Sigvaldi var aðeins lak-
ari. Vonandi æfa þeir vel í vetur,
en þá sjáum við 1:55.0 eða betra
í sumar. Haukur Sveinsson, KR,
æfði lítið en hljóp þó á 1:59.8 mín.
Ifann getur mun betur. Margir
ungir menn, sem mikils má af
vænta komu fram á sjónarsviðið
í 800 m. á siðasta sumri.
Hér koma afrekin:
100 m. hlaup: Sek.
Bjarni Stefánsson, KR 10.7
Valbjörn Þorláksson, Á 11.0
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 11.2
Jón Benonýsson, HSÞ 11.2
Sigurður Jónssori, HSK 11.2
Sævar Larsen, HSH 11.3
Marinó Einarsson, KR' il.4
Skarphéðinn Larsen, USU 11,4
Stefán Hallgrímsson, UÍA 11.5
Kristinn Magnússon, UMSK 11.5
Trausti Sveinbjörnsson, UMSK
H.6
Ámi Johnsen, ÍBV 11.6
Sverrir Pálsson, HSÞ 11.6
Júlíus Hjörleifsson, UMSB 11.6
Karl Ragnarsson, USVH 11.6
Karl W. Fredreksen, UMSK 11.6
200 m. hlaup: Sek.
Bjarni Stefánsson, KR 21.7
Þorsteinn Þorsteinsson, KR 22.7
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 22.8
Valbjöm Þorláksson, Á 22.8
Friðlrik Þ. Óskarsson, ÍR 23,4
Lárus Guðmundsson, USAH 23.5
Marinó Einarsson, KR 23.7
Jón Benðnýsson, HSÞ 23.7
Stefán Hallgrímsson, UÍA 23.8
Transti Sveinbjömsson, UMSK
23.8
Framhald á bls. 14
Bjarni Stefánsson, KR, hafði yfirburði í
100, 200 og 400 m. hlaupi á frjálsíþrótta-
móti hérlendis I ár Hér kemur hann
fyrstur i mark í 400 ni. hlaupl
Elnn stærsti íþróttaviðburður helgarinnar verður án efa fimleikasýningin
í Laugardalshöllinni á morgun. í henni taka þátt milli 400 og 500 manns.
Þessi mynd er frá æfingu eins flokksins, sem þar kemur fram —
(Tímamynd — Gunnar).
Fim.leikasýn.Lngin.
verður það stærsta
Klp-Reykjavík. Það er engipn
verkfallssvipur á íþróttafólki okk
ar þessa dagana, frekar en aðra
daga. HelgiJi, sem nú fer í hönd
verður nýtt að fullu, þó öllu meir
og betnr á sunnudaginn, sem er
þéttskipaður sýningum og bolta-
lcikjum.
Mesti íþróttaviðburður helgar-
innar, verður án efa fimleika-
sýningin í Laugardalshöllinni á
morgun kl. 15,00. Þar sýna marg
ir flokkar allar tegundir af fim
leikum, og má búast við að
margir leggi leið sína í höllina
til að sjá þá, enda eru fimleikar
fögur fþrótt, og það sem meira
er, sjaldgæf hér á landi.
f boltaleikjunuim verður bæði
keppt í 1. og 2. deild fslands
mótsins í handknattleik og
Reykjavíkurmótinu í körfuknatt-
leik. í 2. deildinni fer einn leik
ur fram, Grótta leikur við KA,
UNGLINGA-
SUNDMÓT ÍR
Unglingasundimót ÍR fer fram
þann 13. desember n. k. Keppt
verður í 7 sundgreinum sveina,
telpna, stúlkna og drengja, svo
og 4 boðsundum.
Þátttaka tilkynnist til Ágústar
Mackintos Sundhöll Reykjavíkur
sínri 14059 fyrir 10. desember.
og í 1. deildinni fara fram tveir
leikir í Hafnarfirði, Haukar leika
við Víking og ÍR við FH. í körfu
knattleiknum fara fram leikir í
yngri flokkunum svo og tveir
leikir í M. fl. karla, KR leikur
við Val og ÍR við ÍS. Þá verður
einnig badminton á dagskrá í dag
— sjá nánar fþróttir um helgina,
hér á síðunni.
ÍÞRÓTTIR
um helgina
LAUGARDAGUR:
Handknattleikur:
íþróttahúsið Seltjarnamesi
kl. 20,00. 2. deild, Grótta
KA.
Badminton:
Álftamýraskóli kl. 16,00.
Haustmót TBR.
SUNNUDAGUR:
Handknattleikur:
íþróttahúsið Hafnarfirði kl.
20.15. 1. deild, FH-ÍR og
Haukar-Víkingur.
Körfuknattleikur:
Laugardalshöll kl. 18,00
Reykjavíkurmótið. Þrír leik-
ir í yngri fl. og tveir í M. fl.
karla. KR-Vaiur og f R-ÍS.
Fimleikar:
Laugardalshöll kl. 15,00.
Fimleikasýning.
Sjónvarpið fær
Á ársþsngi Frjálsíþróttasam
bands fslands, sem nýlega fór
fram urðu nokkrar umræður
um íþróttafréttir Sjónvarpsins.
Þingfulltrúar, sem til máls
tóku voru á einu máli um
það, að frjálsar ílnóttir væru
mjög afskiptar í íþróttafrétt
um Sjónvarpsins og það svo,
að hér væri um alvarlegt mál
að ræða. Ekki nóg með það,
að fréttir af frjálsum íþrótt-
um, bæði i.nnlendar og erlend
ákúrur frá FRÍ
ar, væru litlar, heldur væru
þær svo illa unnar, að til
skammar væri fyrir Sjónvarpið.
Á ársþinginu var einróma
samþykkt tillaga til útvarps
ráðs og forráðamanna Sjón-
varpsins, um að bæta þennan
þátt þessa sterka fjölmiðils,
ekki endilega lengja þáttinn,
heldur vanda betur til hans
og gera ekki svo mikið upp
á milli íþróttagreina og nú
er gert.