Fréttablaðið - 17.02.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
MANNRÉTTINDI OG HNATT-
VÆÐING Áhrif alþjóðlegra stórfyrirtækja
eru víða orðin meiri en þeirra ríkja sem
hýsa starfsemi þeirra. Páll Ásgeir Davíðs-
son mun í fyrirlestri í Háskólanum á Akur-
eyri, sem hefst klukkan 16.30 velta upp
spurningum um félagslega og mannrétt-
indalega ábyrgð alþjóðafyrirtækja og varpa
ljósi á þróun þessara mála á liðnum árum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VAXANDI VINDUR Í borginni eftir því
sem líður á morguninn. Víða hvasst
vestantil. Hvessir annars staðar í kvöld
og nótt. Lægir á morgun, fyrst vestantil.
Hlýtt í veðri. Sjá síðu 6.
17. febrúar 2004 – 47. tölublað – 4. árgangur
● heimildarmynd um rómeó og júlíu
Ragnar Bragason:
▲
SÍÐA 30
Hættulegt
hótel
● 58 ára í dag
Magnús Ólafsson:
▲
SÍÐA 16
Leiklistin
er frí
● troðfullt á listaverkasýninguna
Árni Johnsen:
▲
SÍÐA 31
Grjótið slær
í gegn
● góð ráð ● e-kortið
Kostakaup Margrétar Kaaber:
▲
SÍÐUR 18-19
Skipulagning og
útsjónarsemi
GAMLAR OG ÚRELTAR Utanríkisráð-
herra segir að Orion-eftirlitsvélarnar sem
farnar eru frá Keflavíkurflugvelli séu gamlar
og úreltar. Hann segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um það hvort vélarnar fari al-
farið. Sjá síðu 2
RÁÐHERRA GAGNRÝNDUR Fjár-
málaráðherra var gagnrýndur fyrir rýr svör
við fyrirspurn um álitamál og vandamál
sem upp hafa komið í skattmeðferð mála
tengdra virkjunarframkvæmdunum á Kára-
hnjúkum. Sjá síðu 2
BÓTALAUS EFTIR BRUNA Eigandi
atvinnuhúsnæðis sem brann í haust ætlar
í mál við Tryggingamiðstöðina sem býður
aðeins fimmtung af brunabótamati húss-
ins. Sjá síðu 4
BÚIST VIÐ AÐ DEAN HÆTTI Kosið
verður í Wisconsin í forkosningunum
demókrata í dag. Reiknað er með að
Howard Dean hætti tapi hann kosningun-
um. John Edwards hyggst halda ótrauður
áfram. Sjá síðu 10
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráð-
herra hefur ákveðið að auka við
loðnukvótann þótt ekki liggi end-
anlega fyrir magn þeirrar aukn-
ingar, en líklegt er að hún nemi
um 100 þúsund tonnum.
Á Alþingi í gær spurði Magn-
ús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda
flokknum, sjávarútvegsráðherra
að því hvort hann hefði áhyggjur
af því að of hart væri gengið að
stofninum með slíkri aukningu.
Ráðherra svaraði því til að mæl-
ingar hefðu gengið vel.
„Mæing er gerð á þeim hluta
loðnustofnsins sem núna gengur
til hrygningar og mun að stærst-
um hluta drepast að henni lok-
inni. Það er þess vegna ekki
ástæða til að hafa áhyggjur af
viðgangi loðnustofnsins,“ sagði
Árni M. Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra.
Ríflega 140 þúsund tonnum af
loðnu hefur verið landað á Íslandi
það sem af er vetrarvertíð. Þar af
eru landanir úr erlendum skipum
um 12.400 tonn.
Íslenskum skipum hefur þeg-
ar verið úthlutað 497.345 tonnum
til veiða á þessu ári og enn á eft-
ir að veiða ríflega 270 þúsund
tonn af þeim kvóta. ■
fjármál heimilanna
UNNIÐ AÐ LÖNDUN
Sjómenn á Bergi VE 1200 unnu að því að landa 1.200 tonnum af loðnu í gær. Ríflega 140 þúsund tonnum hefur verið landað á Íslandi
það sem af er vertíðinni. Þar af eru landanir úr erlendum skipum um 12.400 tonn.
LÖGREGLUMÁL Lögmaður þremenn-
inganna sem lögregla hefur viljað
ná tali af vegna líkfundarins í Nes-
kaupstað í síðustu
viku segir að sér sé
ekki kunnugt um að
þremenningarnir
hafi réttarstöðu
grunaðra manna, en
þeir gáfu sig fram
hjá lögreglu í
Reykjavík í gær-
morgun. Mennirnir segjast ekki
kannast við þann látna.
Þremenningarnir, tveir Íslend-
ingar og einn Lithái, gáfu sig
sjálfviljugir fram við lögreglu í
Reykjavík í gær. Skýrslur voru
teknar af mönnunum hjá embætti
ríkislögreglustjóra fram eftir
degi en þeir voru aldrei hand-
teknir. Um kvöldmatarleytið í
gær hafði ekki verið óskað eftir
frekari skýrslutökum af mönnun-
um. Lögregla vildi fá upplýsingar
um hvar mennirnir hefðu verið
og hvort þeir gætu gefið gagnleg-
ar upplýsingar við rannsókn
málsins.
Georg Lárusson hjá Útlend-
ingastofnun staðfesti við Frétta-
blaðið í gær að lögreglan hafi
óskað eftir upplýsingum um
nokkra útlendinga og að þeim
hafi verið afhent þau gögn sem
þeir báðu um. Að öðru leyti vildi
Georg ekki tjá sig um málið.
Litlar upplýsingar fengust hjá
lögreglu í gær. Norskur blaðamað-
ur hjá Verdens Gang sem verið
hefur fyrir austan vegna umfjöll-
unar sinnar um málið segist vera
mjög hissa á hversu litlar upplýs-
ingar sé að fá hjá lögreglu. Þá seg-
ist hann vera mest undrandi á að
lögreglan svari ekki símanum og
að ekki sé hægt að ná tali af lög-
reglumönnum þegar komið sé á
lögreglustöðina, nánast sé dregið
fyrir gluggana. Orðin sem hann
notaði voru ófagmennska og
ókurteisi, sem hann segist ekki
áður hafa kynnst við sín störf.
hrs@frettabladid.is
Loðnuvertíðin:
Kvóti aukinn um 100.000 tonn
Hafa ekki réttar-
stöðu grunaðra
Lögmaður þremenninganna sem skýrsla var tekin af vegna líkfundarins í
Neskaupstað segir þá ekki hafa réttarstöðu grunaðra. Þeir segjast ekki
kannast við hinn látna. Útlendingastofnun hefur veitt lögreglu upplýsingar.
■
Um kvöldmat-
arleytið í gær
hafði ekki verið
óskað eftir
frekari skýrslu-
tökum af
mönnunum.
VIÐ GRÁTMÚRINN
Margir gyðingar trúa því að setji þeir bréf
sín í rifur Grátmúrsins verði Guð við ósk-
um þeirra.
Ný þjónusta:
Guð fær
tölvupóst
JERÚSALEM, AP Gyðingar um allan
heim geta nú sent Guði tölvupóst
með milligöngu ísraelsks fjar-
skiptafyrirtækis.
Samkvæmt trúnni geta gyðing-
ar fengið óskir sínar uppfylltar
með því að setja bréf til Guðs í rif-
urnar á Grátmúrnum í Jerúsalem.
Ísraelska símafyrirtækið Bezeq
hefur um nokkurt skeið tekið að
sér að koma símbréfum að múrn-
um. Nú hefur verið ákveðið að
bjóða fólki að senda tölvupóst til
Guðs sem síðan er prentaður út og
borinn að múrnum. ■
Gæsluvarðhald:
Földu hassið
í húsgögnum
HASS Tveir menn og ein kona voru
úrskurðuð í tveggja vikna gæslu-
varðhald á föstudag eftir að þrett-
án kíló af hassi fundust í vöru-
sendingu og við húsleitir.
Tollgæslan í Reykjavík fann á
miðvikudaginn í síðustu viku níu
kíló af hassi sem voru falin í hús-
gögnum í vörusendingu sem kom
frá Danmörku. Fernt var handtek-
ið í framhaldinu og húsleitir fram-
kvæmdar og fundust þá fjögur
kíló til viðbótar. Þau þrjú sem
sitja í gæsluvarðhaldi eru maður
og kona á fertugsaldri auk manns
um þrítugt. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M